Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Síða 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Síða 54
árstíma og ég held að okkur takist að sigla beina stefnu meðfram breiddargráðunni, þar til við komumst til staðar, þar, sem ég veit að vatn er að fá. Það er Eliza- beth eyja. Komo sigldi hægt meðfram norðvesturströnd Elizabetheyjar, með fá segl uppi. Tveir menn voru uppi í siglum, til þess að reyna að koma auga á sund milli rifa, sem bátur gæti farið um og Trevers skipstjóri fullyrti að þarna væri að finna. Það reyndist rétt og var skipinu þá lagt uppí vind. Trevers skipaði stýrimanninum að missa ekki sjónar af eyjunni. Bátur var settur út og í hann látnar tómar tunnur. Síðan fór hann sjálfur ásamt tveimur hásetum og Blake- ly í bátinn og reru til lands. Þetta var um kl. hálftvö um eft- irmiðdaginn. Áður en farið var frá borði, hafði Trevers tekið loftvog- ina, sem hékk á vegg kortaklefans og stillt vísinn niður um einn þumlung. Hann vissi hvað gerast myndi, þegar stýrimaðurinn at- hugaði loftvogina kl. 4, eins og hans var venja. Lítið brim var við ströndina þegar bátinn bar þar að og engir erfiðleikar við lendingu. Trevers fann brátt vatnsuppsprettu og há- setarnjr tóku til við að fylla tunn- umar. Hann stakk uppá því við Blakely, að þeir færu í gönguferð uppá hæð, sem gnæfði yfir þeim og taldi þar gott og fagurt útsýni, þannig að klifrið myndi borga sig. Útsýnið var vissulega fagurt, en Blakely fékk ekki lengi að njóta þess. Trevers tók stóran stein- hnullung og keyrði af miklu afli í hnakkann á Blakely, velti síðan hinum máttlausa líkama niður í litla klettasprungu, þar sem hann vharf undir þéttan hitabeltisgróð- ur. Gekk síðan í áttina til sjávar. Tímasetning hans reyndist hár- rétt, því þegar hann var kominn 54 hálfa leið til strandar, sá hann fyrstu rakettuna, sem skotið var upp frá Komo. Hann vissi að mennirnir við bátinn höfðu einnig séð raketturnar, og þegar hann kom þangað voru þeir búnir að koma öllum fullu tunnunum um borð í bátinn, að einni undanskil- inni. Hann sagði þeim, að hann hefði orðið viðskila við Blakely, rétt eftir að þeir lögðu af stað og leitað hans síðustu tvo klukku- tímana, þegar hann sá raketturn- ar. Þegar um borð var komið sagði stýrimaðurinn, Trevers að loft- vogin hefði fallið um þumlung síðan um hádegið og að hann væri ekki viss, en hún gæti enn verið fallandi. Trevers sagði að hann hafi gert rétt í að gefa þeim í landi merki og endurtók sögu sína um Blakely. Það varð löng þögn og mennirnir í kortaklefanum horfðu hver á annan. Trevers stundi þungt og sann- færandi og sagði hljóðlátlega við stýrimanninn: — Settu segl, góði. Ég get ekki hætt öryggi skips og áhafnar vegna eins manns, jafnvel þótt um sé að ræða eigandann. Strax og komið var til Suva, gaf Trevers yfirvöldunum skýrslu. Hann sagði að þeir Blakely hefðu verið að klifra uppá barm djúps gljúfurs, meðfram háum hamra- vegg. Þeir urðu viðskila, því að Blakely, sem var yngri maður, hefði gengið hraðar. Þegar hann, Trevers, hafði komist uppá hæðarhrygginn, eins og ákveðið hafði verið, var Blakely þar ekki. Þótt hann leitaði og hrópaði í tvo klukkutíma, hafði það engan ár- angur borið og Trevers áleit, að hinn ógæfusami útgerðarmaður hefði fallið niður af gljúfurbarm- inum. Hann sá engin ráð til að leita í gljúfrinu og svo sá hann raketturnar frá skipinu og neydd- ist til að hætta leitinni og fara um borð. Loftvogin hafði hríðfallið og þótt engin veruleg breyting yrði á veðurfarinu á leiðinni til Suva, hefði það verið óráð að taka þá áhættu að vera með skipið á þess- um slóðum, nálægt eyju þar sem mikið var af blindskerjum, sem ekki voru merkt á sjókortinu og mega búast við stórviðri þá og þegar. Trevers skipstjóri endaði skýrslu sína með því að fullyrða, að enginn maður gæti hafa komist lífs af í slíku falli, sem Blakely hafði orðið fyrir. Yfirvöldin höfðu aldrei heyrt um Elizabetheyju, hvað þá heldur komið þangað. Skýrsla Trevers var því tekin gild og — málinu þar með lokið. Trevers skipstjóri losaði farm sinn, hlóð skipið harðviði og sigldi norður á 40. brgr. Þar komst hann í norðvestan staðvindinn og fékk gott leiði til San Francisco. Hann brosti með sjálfum sér, þegar hann sigldi innum Gullnahliðið, því að þetta hafði orðið ábatasöm ferð og nú fékk hann sjálfur hluta af þeim gróða. Skipið var gott og svo var það hin unga, geðslega kona Adams. Adam var gamall maður og átti varla langt eftir ólifað og svo var alltaf möguleiki á að hjálpa uppá sakirnar, ef með þyrfti. Ádam myndi skilja eftir sig ekkju, sem eignaðist þrjáfjórðu hluta fyrirtækisins og þegar svo var komið, var það eiginlega skylda hans að giftast ekkjunni, henni til stuðnings og verndar. Sennilega myndi hann þá hætta allri sjómennsku og hann bjóst við að Patricia myndi kunna vel við sig í stóru, glæsilegu húsi í San Francisco. Sögulok Hið sterkbyggða hvalveiðiskip Orienda, seig hægt í áttina að norðurenda lágrar, skógivaxinnar eyju. Hinn gráskeggjaði maður, sem stóð á skutpalli var Sid Burns skipstjóri. Hann hafði, á sínum yngri árum, verið skipverji á barkskipinu Taiphia, sem hafði viðkomu á Elizabetheyju, til að taka vatn og mundi því að á VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.