Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Síða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Síða 8
Breyting á lögum um lífeyrissjóö sjómanna: Lífeyrisréttur sjómanna stórbættur í þinglok nú í vor var samþykkt breyting á lögum um lífeyrissjóð sjó- manna, þar sem lögbundin eru ákvæði þau um lífeyrisrétt sjómanna, sem samtök þeirrá hafa barist fyrir á und- anfömum árum. Ber þar hæst, að allir sjómenn eiga nú aðildarrétt að sjóðn- um, iðgjaldagreiðslur bátasjómanna ákvarðast af umsömdum launahækk- unum þeirra, og síðast en ekki síst, er nú kveðið á um það í lögunum, að sjómaður skuli njóta óskerts lífeyris er hann hefur náð 60 ára aldri, eða starfað í 25 ár til sjós. Samningamenn sjómannasamtakanna hafa átt við ramman reip að draga að knýja fram þær endurbætur sem nú eru orðnar að lögum, enda engin stétt í landinu eins dreifð milli landsbyggðalífeyrissjóða og fyrirtækjasjóða og sjómenn. Má segja, að með gildistöku þessara laga hafi miklu réttlætismáli verið komið í höfn, og sérstaða sjómannastéttar- innar viðurkennd að fullu hvað varðar starfsálag með tilliti til lífeyrisréttar. Eru sjómenn hvattir til að kynna sér vel ákvæði þessara laga, en helstu breytingarákvæði þeirra eru birt á næstu síðu. í eftirfarandi grein ritar Ingólfur Ingólfsson um lagabreytinguna og að- draganda hennar, en Ingólfur hefur, sem kunnugt er, unnið að lífeyris- sjóðsmálum fyrir hönd F.F.S.I. í f jölda ára. Ingólfur Ingólfsson: Brýn nauðsyn tíl sameiningar í einn sjóð Á undanförnum árum hefur það verið eitt mesta baráttumál forustu- manna F.F.S.Í. að fá viðurkennda sérstöðu sjómanna í lífeyrismálum og nauðsyn þess að tryggja þeim rétt til töku lífeyris við lægri aldursmörk en þau sem almennt gilda fyrir aðra launþega. Fyrir þá, sem ekki þekkja til sjó- mennsku og starfsaðstöðu sjómanna er rétt að taka fram, að til algjörra undantekninga telst, að sjómönnum endist starfsþrek fram yfir sextugs- aldur, og því algjörlega óraunhæft að miða lífeyrisaldur þeirra við 67 eða 70 ára aldur. Þessar staðreyndir eru löngu viðurkenndar hjá nágranna- þjóðum okkar, sem við sækjum helst fyrirmyndir til. Það var því sérstakí fagnaðarefni samtökum sjómanna, þegar ríkis- stjórn Ólafs Jóhannessonar gaf sam- tökunum fyrirheit um það, haustið 1978, að unnið skyldi á vegum ríkis- stjórnarinnar að raunhæfum úrbót- um lífeyrismála sjómanna með breyting á lögum um alm. tryggingar, sem tryggðu sjómönnum rétt til töku 8 lífeyris án skerðingar, við 60 ára aldur og að loknum 25 ára starfstíma sem sjómaður. Samsvarandi breyting skyldi og gerð á lögum um lífeyrissjóð sjómanna. Ekki reyndist vandkvæðum bundið að ná samkomulagi um þær breyt- ingar sem heitið hafði verið á alm. tryggingalögunum. En þegar kom að því að breyta lögum um Lífeyrissjóð sjómanna sló heldur í bakseglið. Málið var saltað og ekkert gekk fyrr en á sl. vetri að knúin var fram ný yfirlýsing frá núverandi ríkisstjórn við undirritun kjarasamninga farmanna í byrjun desember. í kröfum sambandsins var lögð áhersla á eftirfarandi atriði til breyt- ingar á lögum um Lífeyrissjóð sjó- manna: 1. Ákvæðum um aðild að Lífeyris- sjóði sjómanna yrði breytt þannig að allir sjómenn yrðu aðilar að honum og því aðeins heimild til aðildar að öðrum sjóðum, að við- komandi sjóður skuldbindi sig til að veita ekki lakari lífeyrisréttindi en Lífeyrissjóður sjómanna. Þessi krafa var reist á þeirri stefnu- yfirlýsingu sjómannasamtakanna frá 1969, að allir sjómenn skyldu tryggðir í einum lífeyrissjóði, en þá var knúinn fram í samningum réttur bátasjó- manna til aðildar að sjóðnum. En vegna krafna frá félögum í tveim byggðalögum um sérsjóði var horfið frá þeirri stefnu, að allir skyldu tryggðir í einum sjóði. Þetta leiddi svo til þess, að með tilkomu hinna fjöl- mörgu landshlutasjóða eru sjómenn tryggðir í tugum sjóða og mun engin stétt jafn dreifð innan þess myrkviðis, sem nær 100 lífeyrissjóðir í landinu mynda. Og er því augljóst, að í öllum sjóðum eru sjómenn í algjörum meirihluta og því óhugsandi að sér- staða þeirra hljóti viðurkenningu innan þeirra, enda þegar komin á það nokkur reynsla. Hins vegar er hvar- vetna mikill áhugi fyrir lífeyrisið- gjöldum og er hann í öfugu hlutfalli við áhuga og vilja forráðamanna VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.