Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Qupperneq 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Qupperneq 15
Naktar kvinnur og næturljómi — Fariö frá boröi í Everett USA Ágústkvöldið leggst yfir hafnar- bæinn Everett hjá Boston skyndi- lega eins og svört blæja í þann mund er allir halda heim til sín að loknum vinnudegi. Eina lífs- markið við kajann er að finna hjá svertingjanum sem kemur klukk- an átta og á vakt við skipið yfir nóttina. Hann situr hokinn undir stýri á bíl sínum, með hnén skorðuð við mælaborð ogið og reykir. Glóðin í sígarettunni lýsir upp blakkt andlit hans þegar hann dregur að sér reykinn. Ég þekki manninn ekki, en mig grunar að nóttin í manntómu hverfi við ís- lenskt skip verði honum löng. Ég rölti upp á próminaðið í rakri hitamollunni og horfi yfir til Boston þar sem skýjakljúfarnir trana sér upp í næturhimininn með ljósadýrð og lofa mannlífi. I sjálfri Everett er allt dautt. Guðjón loftskeytamaður segir mér frá því hvernig risastór hrað- braut sem gnæfir hátt yfir þorpinu varð til þess að ráða örlögum þess. Hér var áður blómleg pólakka- byggð, pólskir innflytjendur flykktust til Everett og þótti gott að búa hér innan um pólska siði og hugsunarhátt — hér var hægt að tala móðurmálið og drekka pólskan bjór og rabba saman um heimalandið úti á verönd eftir vinnu á kvöldin. En svo spennti risahraðbrautin krumlu sína yfir Everett og draumurinn um nýja Pólland varð að engu undir skugga hennar: allur bisness þaut yfir bæinn í þær áttir sem hrað- brautir liggja og Everett varð að VÍKINGUR bæ pakkhúsanna, gluggalausra gímalda sem eru umbúðir utanum umbúðir varnings, sem trukkarnir dreifa víðsvegar um þetta stóra land. Þessi varningur er líka ís- lenskur fiskur, og því liggur Sel- foss hér við bryggju og lætur dæla ísköldum verðmætunum úr iðrum sér. Niðrí messa eru menn komnir á betri buxurnar og farnir að dreypa á dönskum bjór. Við tökum í spil, og þeir sem eru svo heppnir að vera ekki á vakt ræða hvert halda skuli. Everett er dauð fyrir utan eina búllu, þar sem vörubílastjór- amir á stóru trukkunum koma saman á kvöldin og horfa á ungar stúlkur fara úr fötunum; kannske væri gaman að fara þangað, og kíkja á, og síðan til Boston síðar um kvöldið ef vel viðrar og ævin- týraþráin kviknar í mönnum. Svo förum við frá borði nokkrir í hóp, allir frískir og ungir, eða að minnsta kosti unglegir í andanum núna á þessum framandi slóðum og þræðum leið okkar til búll- unnar framhjá pakkhúsunum yfir svo mikið malbik að duga mundi hálfleiðina til Akureyrar. Allt í kringum búlluna, sem ber nafnið Vopnakista Artúrs konungs hafa trukkararnir skilið eftir farkosti sína: tveggja mannhæða há ferlíki með talstöðvum og margtóna lúðrum og svo mörgum og stórum dekkjum að hluthafar í Goodyear og Firestone geta sofnað með sigurbros á vör í nótt og næstu nætur. Þeir sem stýra þessum tækjum eru þjóðflokkur útaf fyrir sig. Þeir eru alltaf á leiðinni, eins og sumum hjörtum lætur best, og þeir eru síðustu landvinninga- menn og kábojar þessa mikla lands rúllað saman í eitt. Sumir þeirra eru þekktir fyrir að geta ekið sólarhringunum saman á engu nema kaffi og pepptöflum, og þeir hlusta á sína tregablöndnu trukkamúsík á meðan þeir þeysast eftir asfalteyðimörkinni milli vinja. Þetta villta vesturs líf heillar marga og ég hlakka ekki síður til að sjá þá en stúlkurnar sem hátta sig þegar við göngum inn í kóngabláan búllusalinn og þreif- um okkur áfram til sætis í dimm- unni við heljarlangt u-Iaga borð. Bílstjórarnir sitja allt í kringum okkur yfir öli, og skyndilega veit ég að bíómyndirnar sem ég hef séð um þá eru sannar: Þeir líta út eins og trukkarar og hafa sömu taktana og trukkaramir á breið- tjaldinu. Einkennisklæðnaður þeirra eru leðurstígvél, sum hver fagurlega skreytt, þröngar dökk- bláar gallabuxur og litríkar skyrt- ur með stórum perlumóður- hnöppum. Sumir eru með kúrekahatta, sem virðast sitja meira á hvirflinum en höfðinu. Þeir halla sér frá borðinu, sumir gleiðir, sumir hvíla ökla á öðru hnénu, og nú, þegar gulur bjórinn glitrar í glösunum og mjaðma- grindartónlist berst frá segul- bandinu, horfa þeir fram fyrir sig á sviðið, þar sem stúlka af japönskum ættum stendur hreyf- ingarlaus. Við horfum þangað allir. Þeir 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.