Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Side 51
um. Það hafa ein þrjú, fjögur
rannsóknarskip sprungið í loft
upp vegna þessa, þetta var orðið
ansi hættulegt starf. Þá vorum við
með gas í flöskum og Ieiddum það
í slöngum niður í vatnið, og skut-
um því svoleiðis, um leið og það
kom út í vatnið þá sprakk það.
Svona hefur þetta þróast, þannig
að nú eru þeir komnir út í þessar
loftbyssur. Þær eru mjög einfald-
ar, gera alveg sömu hluti. Ein
byssa nægir okkur alveg niður
í fimm þúsund fet. Við erum
með tvær byssur núna, og það er
áætlað að við getum skoðað tíu
þúsund fet niður í jarðlögin, sem
er alveg nóg fyrir svona for-
rannsóknir.
Ingólfur: Þetta eru þá berg-
málsmælingar?
Sigurður: Já, þetta er ekkert
annað. Þetta kemur allt á þessa
mæla okkar þarna uppi og þeir
eru alveg feiknalega nákvæmir,
þeir taka allan mismun og þú sérð
alveg jarðlögin þegar þú horfir á
þetta. Annars fáum við aldrei
neinar skýringar á því hvar líklegt
sé að eitthvað sé undir. Það er ekki
gefið út hér um borð. Þetta er allt
sett á segulband, og það er allt
tekið upp sem við gerum. Þetta er
Birgir Hclgason annar aðaleigandi.
VÍKINGUR
Jens Sigurðsson (Þorsteinssonar) í vélarrúmi Alberts.
meira að segja allt í sambandi við
„navigasjónina" uppi í brú. Það er
allt sett inn á sama segulbandið.
Kannski sjómenn á íslandi hafi
áhuga á því hvernig „navingasjón-
in“ fer fram.
Ingólfur: Já, skýrðu frá því.
Sigurður: Þannig er það að við
höfum eiginlega vegakort í
brúnni, sem er sent út af tölvu inn
í loftskeytaklefanum. Við mötum
hana með fimm mismunandi
upplýsingum. og út úr þeim
vinnur hún síðan staðar-
ákvörðun. Talvan notar allar þær
upplýsingar sem hún fær til þess
að vinna úr þeim sem nákvæm-
asta staðarákvörðun. En það er
svo hlægilegt, að ef við missum
rafmagnið í meira en hálftíma, þá
gleymir hún öllu sem hún er búin
að læra og við verðum að þjálfa
hana upp aftur. Þetta er hálfgert
viðundur. En við erum með
OMEGA og við erum með
SATELITE NAVIGATION og
svo erum við með ARCAS
NAVIGATION sem er „prívat“.
Það eru landsstöðvar sem eru
settar upp af fyrirtækinu sem við
vinnum fyrir, í samvinnu við ríkið.
Það verður t.d. að leigja fyrir þær
landssvæði til þess að framkvæma
þetta. Þær draga ekki nema
100—200 mílur, en eru það ná-
kvæmasta sem við höfum. Ef við
erum í meira en 150 mílum á
nóttinni, getum við ekki notað
hana og verðum þá oft að láta
reka af þessum ástæðum. Þetta
verður að vera svo nákvæmt að
miðja skipsins verður að vera
innan við þrjú fet á jarðkringlunni
af þeim stað sem við gefum upp.
51