Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 53
Hluti af tækjabúnaði í lofskeytaklefa.
skip lætur mjög vel að stjórn og
heldur línu alveg sérlega vel, með
gíró kompásnum og sjálfstýring-
unni. Við höfum næg verkefni
framundan. Við erum að vísu að
fara í þriggja mánaða leyfi núna,
við vorum að koma úr einni ferð
sem tók á fimmta mánuð, og við
eigum heilsárs verkefni framund-
an sem byrjar í janúar.
Ingólfur: Eru það samskonar
rannsóknir?
Sigurður: Já, að mestu leyti.
Næsta verkefni er suður í Mexíkó.
Ég veit nú að vísu ekki nákvæm-
lega hvers konar rannsóknir það
eru. Við vinnum þær fyrir sjóher-
inn og það getur verið að þær
rannsóknir séu að einhverju ieyti
frábrugðnar, því ég get ekki skilið
hvaða ástæðu sjóherinn hefur til
að leita að olíu.
Ingólfur: Þetta skip hentar
kannski vel, vegna þess að það er
lítið og eyðslugrannt.
Sigurður: Já, miðað við amer-
ísk skip sem eru öll með hrað-
gengar dieselvélar og feiknalega
eyðslufrek, þá er hann alveg í
sérflokki. Við höfum þessvegna
getað verið mjög vel samkeppnis-
færir, því að við höfum getað farið
fyrir minni pening en aðrir. Það
VÍKINGUR
Svona lítur splæs út gæti Ólafur verið að segja.
hefur náttúrulega ekki haft neitt
lítið að segja að þetta er ein stór
fjölskylda sem að vinnur við þetta.
.Ingólfur: Það eru tvær fjöl-
skyldur sem eiga þetta ekki satt?
Sigurður: Jú, það er Birgir
Helgason og hans kona og krakk-
arnir hans eru að vinna í þessu
núna líka. Og svo er það ég með
mína stóru fjölskyldu, sem hefur
verið uppistaðan í þessu öllusam-
an allan tímann, Birgir er að
koma inn í þetta núna með okkur.
Ingólfur: Nú er það vitað á ís-
landi að það eru að minnsta kosti
tvö varðskip, sem eru að ganga sér
til húðar sem slík. Nú hefur því
verið fleygt kannski meira í gamni
heldur en alvöru, að þú sért vænt-
anlegur kaupandi. Er það rétt?