Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Qupperneq 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Qupperneq 30
,,Grána“ á strandstaðnum. um tíma. Rósa var einnig upphaf- lega frönsk siskiskúta, smíðuð í Dunkerque árið 1863, 148 brúttó- rúmlestir að stærð. Tryggvi Gunnarsson keypti hana á strand- stað í Fáskrúðsfirði 1878. Lauritz Petersen skipstjóri á báðum þess- um skipum var sæmdur riddara- krossi Fálkaorðunnar árið 1928 fyrir störf sín í þágu íslendinga. Hér fer á eftir úrdráttur úr bréfi sem hann skrifaði Chr. Havsteen, kaupstjóra hjá Gránufélaginu um strand Gránu og birtist í blaðinu Austra á Seyðisfirði 9. demember 1896: Suðureyjum, 23. október 1896. Þér munið hafa fengið að vita það hjá stórkaupm. F. Holme, að nú er gamla Grána strönduð, sem er hið mesta sorgarefni, því mér þótti undur vænt um skipið, en þakka þó Guði fyrir, að hann frelsaði mig og alla skipshöfnina úr þessum mikla lífsháska, er ég skal nú leyfa mér að skýra yður nokkuð nákvæmar frá. Snemma á laugardagsmorgun- inn þann 17. október sneri vind- urinn sér og kom á norðan, er varð bráðlega að fullkomnu hvassviðri með ákaflega háum brotsjóum af norðvestri. Klukkan hálf átta brotnaði bugspjótið efst, og urð- um við að höggva það frá okkur, svo að skipið brotnaði eigi að framan. Klukkan sex um kvöldið fengum við hinn voðalega brotsjó yfir okkur, er limlesti alveg vesl- ings Gránu og sópaði öllu á stjórnborða yfir borð, eftir að hafa brotið það og bramlað, brotið borðstokkinn á tveim stöðum og brotið stýrishúsið. Þá brotnaði líka alveg borðstokkurinn á bakborða, tók út báða bátana og matarílátin öll þeim megin, og fjórar tunnur af saltfirki, sem ég átti sjálfur. Þá fyllti káetuna og hásetarúmið al- veg af sjó. Stórseglsbómuna braut í sundur, en segl rifnaði til agna og sömuleiðis stagfokkan og fleiri segl, er við reyndum að setja upp, táðust í sundur í ofviðrinu svo gamla skinnið hallaðist nú svo mikið, að ljósberafjölin öðru megin var niður í sjónum. Og nú verð ég að játa það, að þá ætlaði ég engum okkar líf, er vorum um borð, og bað þá mína síðustu bæn (er ég hélt að mundi verða) til hins algóða himnaföðursins fyrir mér og vesalings konunni minni og bömunum mínu smáu. En þá rak skipið á land, úr öllum þessum ó- sköpum, og við héldum allir lífi. Þegar hinn voðalegi brotsjór reið yfir skipið, fékk ég mikið högg á lífið, svo ég gat varla staðið og er enn lasinn, en mest þjáir mig svefnleysi og sorg yfir að hafa misst mitt kæra skip, mína kæru „Gömlu Gránu“ sem ég hafði siglt með í sautján ár, og má aldrei hugsa svo til, að mér vökni eigi um augu. Við erum hér á lélegri bóndabæ en almennt gjörist á Is- landi, sem allur lekur, streymir yfir okkur, en fólkið vill allt fyrir okkur gjöra, sem það getur, og er ógn gott við okkur, en er hrætt um að ég ætli ekki að frískast, sem ég vona þó að verði með guðs náð, svo að konan mín og hin ungu böm mín verði eigi forstöðulaus, og fyrir þá von þakka ég góðum guði. Ég veit það að Grána var ekki eins heppin í siglingum í ár og vanalega, en ég get hvorki kennt mér um það eða strand hennar, ég hefi goða samvisku yfir því, að hafa gjört skyldu mína sem skip- stjóri á gömlu „Kæru Gránu“. Ég vil nú leyfa mér að biðja yð- ur herra kaupstjóri, að skrifa mér um það aftur, hvort ég get haft von um að fá atvinnu hjá Gránufélag- inu eftirleiðis, þó ég viti að ég hafi verið svona óheppinn í ár. Yðar skuldbundinn vin, Lauritz Petersen. Bréf þetta er birt hér vegna þess að það lýsir áþreifanlega þeim bágu kjörum og erfiðleikum skip- stjómarmanna seglskipatímabils- ins. Það reyndi á þolinmæði og þrautseigju þessara manna í bar- áttunni við hafið og hættur þess. En það voru þessir brautryðjendur sem lögðu þó grundvöllinn að því sem síðar varð í verslunar- og siglingamálum okkar Islendinga. Sem fyrr greinir, starfaði Laur- itz Petersen áfram hjá Gránufé- laginu lengi eftir þetta við góðan orðstír og danska ríkið heiðraði fátæka bændafólkið á eynni Lewis með að senda því forkunnarfagra klukku, áletraða í björgunarlaun. 30 VÍKINGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.