Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Síða 13
Sjómenn og fíkniefni
höfum upplýst um fikniefna-
smygl.
Svo eru auðvitað dæmi um
það að efni finnist um borð i
skipum án þess að eigandi
finnist að þvi og þá skapast
gífurleg pressa frá skips-
höfninni á að eigandinn gefi
sig fram. Slikt hefur leitt til
þess að menn hafi neyöst til
að gefa sig fram. Geri þeir
það ekki, hvilir ábyrgðin al-
gjörlega á skipstjóranum.'1
— Talandi um upplýsing-
ar; koma mikiö af upplýsing-
um í gegnum simsvarann
ykkar?
„Vissulega, en þær upplýs-
ingar eru oft lítils virði. Menn
nefnilega notfæra sér sim-
svarann líka til að reyna að
leiða okkur á ranga slóð;
benda á rangt skip til að við
verðum uppteknir þegar það
skip kemur sem er með
sendingu til þeirra.
Annars er rétt að benda á
það, að leyndin yfir þeim sem
gefa upplýsingar er starfs-
regla númer eitt i starfi okkar;
við verðum að vernda þá sem
hjálpa okkur. Þegar við vinn-
um eftir upplýsingum búum
viö svo um hnútana aö ekki
sé hægt að rekja aðgerðirnar
til þeirra.
Hér sést hvernig reynt var aö smygla amfetamínsdufti meö íslensk-
um togara á síðasta ári. Duftpokinn er límdur meö einangrunar-
banda undir blóögunarker. (Myndin er úr safni lögreglunnar).
Hins vegar fáum við ekki
miklar upplýsingar frá sjó-
mönnum í gegnum simsvar-
ann eða áður en skip koma
að landi. Slikar upplýsingar
myndu hins vegar hjálpa
okkur mikið í starfi, og það er
rétt að undirstrika það hér, að
leyndin sem ég minntist á
áðan gildir að sjálfsögöu fyrir
þá lika.
Það kemur nefnilega oft i
Ijós að menn vissu um send-
ingar en þorðu ekki að segja
frá vegna þess að þeir voru
hræddir við að flækjast i mál-
iö.“
Vinnuslys og fíkniefni
Áður en spjalli okkar
Arnars lauk skaut hann að
mér athyglisverðum vanga-
veltum, sem hann sagði að
farið hefðu um huga sinn
undanfarið.
„Það er mikið talað um
vinnuslys á sjó, sem von er.
Þessi slys veröa lika oft ansi
Ijót og erfitt um vik að koma
slösuðum manni undir lækn-
ishendur. Mér dettur hins
vegar i hug, hvort það gæti
ekki verið eitthvert samband
milli þessara vinnuslysa og
fíkniefnaneyslu um borð i
skipunum.
Menn sem teknir eru fyrir
fíkniefnamisferli hafa nefni-
lega sagt mér það oftar en
einu sinni, aö slikra efna sé
gjarnan neytt að staðaldri
meðan skip eru á sjó. Þarna
gæti verið samband á milli og
þið ættuð að skoða það mál.“
Það gerðum við og niður-
staöan varð skelfileg. Hana
má sjá í öðru viðtali um þessi
mál hér i blaðinu.
Þaö kemur
nefnilega ott í Ijós
aö menn vissu um
sendingar en þoröu
ekki aö segja frá...
VÍKINGUR 13