Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 14
Sjómenn og fíkniefni
Bíð eftir að einhver verði skotinn
Einn þeirra farmanna sem
dæmdir hafa verið fyrir fíkni-
efnasmygl, -sölu og -neyslu
á undanförnum árum, sam-
þykkti aö ræða þessi mál við
Viking. Honum var aö sjálf-
sögðu heitið fullkominni
nafnleynd, en til hægöarauka
getum við kallað hann Einar.
Þetta er ungur maður, sem
auðheyrilega hefur margt
reynt og ýmsu kynnst i gegn-
um þessa iðju. „Þetta er orð-
inn rosalega haröur bisniss",
segir hann; „ég biö bara eftir
að einhver verði skotinn á
færi“.
Þetta á sér skýringu i þvi
sem hann segir siðar i sam-
talinu; aö i Reykjavik og viðar
séu starfrækt fyrirtæki sem
beinlínis hafi verið sett á
stofn og haldiö gangandi með
sölu á fikniefnum og öðrum
smyglvarningi. Hér sé um aö
ræða videóleigur, tiskuversl-
anir og veitingastaði.
„Það leitar enginn á þessu
bisnissliði sem fer til útlanda
einu sinni og jafnvel tvisvar í
mánuði i innkaupaferðir",
segir Einar. „Og það virðist
enginn velta þvi fyrir sér
hvernig á þvi geti staöiö að
t.d. tiskubúðir sem varla selja
nokkurn skapaðan hlut allan
ársins hring skuli komast hjá
því að fara á hausinn. En
þetta er skýringin hjá ótrú-
lega mörgum. Ég er líka viss
um aö það kæmi undarlegur
svipur á almenning í þessu
landi, ef hann vissi hve margir
... efhann vissi hve
margir þeirra sem
hampaö er af
fjölmiölum sem
framúrskarandi
viöskiptajöfrum,
hafa komiö undir sig
fótunum og haldiö
sér gangandi á
dópsölu...
14 VÍKINGUR
þeirra, sem hampaö er i fjöl-
miölum sem framúrskarandi
viðskiptajöfrum, hafa komiö
undir sig fótunum og haldiö
sér gangandi á dópsölu."
Alltaf í rússi en
enginn sá neitt
Sjálfur komst Einar i kynni
við fikniefni þegar hann var
16 ára, en hann reykti fyrstu
hasspipuna. „Frá 17 ára aldri
til 28 ára reykti ég á hverjum
degi. Fékk mér fyrstu pipuna
klukkan hálfátta á morgnana
og hélt mér siðan við allan
daginn. Þetta kom hins vegar
aldrei niður á vinnunni hjá
mér og ég var mjög eftirsóttur
sjómaður. Og enginn hafði
hugmynd um að ég var i eilifu
rússi. Skýringin er sú, aö það
þekkti mig enginn um borð i
þessum skipum öðru vísi en
undir áhrifum; það var mitt
eðlilega ástand og enginn
gerði sér grein fyrir að ég var
undir áhrifum.
Þannig var ég meira og
minna i rugli frá 16 ára aldri.
Amfetamin haföi hins vegar
engin áhrif á mig fyrr en löngu
eftir að ég kynntist þvi. Ég er
svo ofsaleg ör að eðlisfari aö
það blátt áfram virkaði ekki á
mig.“
Vegna magasárs var Einar
settur á róandi lyf og varð
fljótlega háður þeim. Og það
var ekkert vandamál aö fá
lækninn til að skrifa lyfseðla.
„Sko; hann fékk hjá mér
brennivin og tóbak, og á móti
fékk ég þaö sem mig lysti af
Stesóliti. Ég var i heilt ár á
1000 milligrömmum af Stes-
óliti á dag, samkvæmt lyf-
seðli. Þetta er róandi lyf en
breytir um eðliseiginleika og
verður örvandi ef drukkiö er
kaffi með þvi. Þú getur gert
þér grein fyrir magninu út frá
þeirri staðreynd að 120 milli-
gramma skammtur af Stesól-
iti ertalinn banvænn.
Loks var ég orðinn svo
ruglaöur af þessu aö ég fór til
heimilislæknisins mins. Hann
brjálaðist þegar hann fékk að
vita hvað ég hefði verið aö
éta siðasta árið. Skipaði mér
aö hætta eins og skot og þaö
gerði ég. En staðreyndin er
sú, að það er ekkert mál að fá
skammt af róandi eöa örv-
andi lyfjum. Maður tekur bara
upp símann, hringir i lækni og
segir einhverja sorgarsögu
um erfitt heimilislíf, veikindi
barnanna eöa heimiliserjur.
Simalyfseöill er sendur i
næsta apótek að vörmu
spori.“
Löglegt smygl og
ólöglegt
Einar skiptir smygli í
tvennt; löglegt smygl og ólög-
legt. Undir löglegt smygl
flokkar hann þaö sem kalla
mætti hefðbundiö; tóbak,
áfengi, videóspólur og -tæki
o.þ.h.. Ólöglegt smygl er
fikniefnasmygl.
Hann hefur fengist við
hvort tveggja, - og það var
raunar magasár af stressi
vegna „löglega" smyglsins
sem fyrst kom honum i kynni
við lækni þann sem útvegaði
honum Stesólitiö sem áöur er
nefnt. Hann segist hafa séð
einni videóleigunni hér i borg
fyrir 20.000 spólum og
nokkrum videótækjum eitt
áriö, — og út frá þvi aö hann
seldi spóluna á 150 krónur
má sjá að til nokkurs hefur