Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Qupperneq 36
Oryggisventill
Þessi teikning hangir
uppi á vegg í húsakynn-
um Tilkynningaskyld-
unnar og starfsmenn
þar hafa á henni tals-
veröar mætur. Kannski
er áhrifarfkasta vopniö í
baráttunni viö aö fá sjó-
menn til aö viröa til-
kynningaskylduna,
einmitt á valdi kvenna.
36 VÍKINGUR
Hvenær er álagiö mest á
ykkur vegna tilkynninga?
Mest er álagiö frá kl. 20.30
til 24.00, sérstaklega yfirver-
tiöina. Eins er mikiö álag milli
kl. 11.00 og 14.00. Og þar
sem aöeins einn maöur
kemst fyrir á vakt i einu er
þaö svo oft á tiöum, aö hann
kemst ekki frá til aö fá sér að
boröa á þeim tima þegar
álagið er mest. Tilkynninga-
skyldan fyrir bátana er frá kl.
10.00 til 13.00 og svo aftur
kl. 20.00 til 22.00. Þetta er
skyldutiminn en svo eru bátar
aö tilkynna sig á öllum öörum
tímum, þegar þeir fara á sjó
og þegar þeir koma aö landi.
Upphafið
Fyrst var fariö aö tala um
nauðsyn tilkynningaskyld-
unnar áriö 1962 þegar
Stuðlaberg fórst. Skipiö var
týnt í 2 daga. Þaö tók samt
nokkur ár að koma henni á.
Það var ekki fyrr en 1968 að
hún tók til starfa. i byrjun voru
þaö sildarbátarnir sem áttu
að gera vart við sig og það
var rannsóknaskipiö Árni
Friöriksson sem var miðstöð
fyrir þá. Árið 1977 kom Pétur
Sigurðsson alþingismaður
því i kring að sett voru lög
sem skylduðu báta að til-
kynna sig.
Guðjón segir að fyrst hafi
skipstjórar verið afar tregir
aö tilkynna sig. Þaö rikti enn-
þá sá hugsunargangur hjá
þeim að vera ekkert að gefa
það uþþ við Pétur og Pál hvar
þeir væru, svo ekki sé nú tal-
aö um ef þeir voru i fiski. En
þetta hefur breyst mikið til
batnaðar.
„Samt eru enn margir bátar
sem aldrei tilkynna sig. Aldrei
nokurntimann. Þeireru á skrá
hjá okkur yfir þá báta sem eru
meö talstöð og ber að til-
kynna sig en þeir gera það
aldrei", segir Eysteinn.
Hvaö eru þeir margir sem
aldrei tilkynna sig?
Þeir segjast ekki vita þaö
nákvæmlega, vegna þess að
þeir vita ekki hve margir bátar
eru með talstöö, sem eiga að
vera meö hana. Þetta er auð-
vitaö alvarlegt mál, því örygg-
isstuöullinn lækkar til muna
eftir því sem fleiri bátar láta
vera að tilkynna sig. Svo týn-
ist eöa jafnvel ferst bátur. Þá
er spurt hvers vegna tilkynn-
ingaskyldan hafi ekkert gert i
málinu. Viðkomandi bátur
hefur ef til vill haft það fyrir
sið að tilkynna sig aldrei.
Þetta er óviðunandi með öllu.
„I sjálfu sér er aðeins til ein
lausn á þessu máli. Hún er sú
að hreinlega neyða skip-
stjóra með einhverjum hætti
til að virða tilkynningaskyld-
una. Hugsaðu þór hve mikið
öryggisstuðullinn færi upp við
þaö“, segirGuðjón.