Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 54
Einar Vilhjálmsson tollvöröur Mikil framför þótti aö geta unniö innanhúss viö saltfiskinn. Sjóminjasafn Um nokkurra ára skeið hef- ur rikisfé verið variö til vafa- samra framkvæmda, við litið byggðasafn i Hafnarfirði, og þeim brögðum beitt að kalla þetta „Sjóminjasafn Islands", til þess að réttlæta málið og ná opinþeru fé. Upphaf þessa þyggða- safns má rekja til áhugastarfs Gisla Sigurðssonar f.v. lög- regluvarðstjóra, sem nú er látinn, en hann starfaði af áhuga og fórnfýsi aö söfnun muna og minja og tryggði varðveislu þeirra. Ráðamenn þæjarins sýndu málinu tak- markaðan áhuga i fyrstu, en þar kom aö áhugi þeirra vaknaöi. Þeir settu nefnd i málið, og hröktu Gisla frá þessu óskaþarni hans og settust að i búi hans á safn- inu. Gisli haföi af elju og dugnaði unniö virðingarvert starf fyrir bæjarfélagið með undirbúningi að stofnun byggðasafnsins, en við hið breytt viðhorf, þegar hann var hrakinn frá áhugamáli sínu, var endir bundinn á raunverulegt söfnunarstarf og sýndarmennska tók við. Nú voru kerfismenn búnir að taka málið i sinar hendur og var búið til fyrirtækið „Sjó- minjasafn lslands“, og pen- ingar fengnir úr rikiskassan- um til aö kosta þessa stofn- un, sem getur aldrei orðiö þaö sem nafnið bendir til, heldur aðeins byggðasafn. Látið er í veðri vaka að sem útgerðar- bær sé Hafnarfjörður umfram Reykjavik og aöra útgerðar- staði, safnið skreytt með lánsmunum frá Þjóðminja- safni og úr einkaeigu til þess að svo líti út i augum almenn- ings, að um verulegt sjó- minjasafn sé að ræða. Sögu- fölsun er siðan beitt til frekari áróðurs og er t.d. „Coot“ tal- inn fyrsti togari Islendinga, sem knúinn var vélarafli, enda þótt togarinn Egería sé skráður á Seyðisfirði 1897 og gerður út þaðan til 1902, er hann var seldur til Noregs. Þá hafði Otto Wathne gert til- raunir með bómutroll á gufu- skipinu „Miaca" 1886. Menn hafa nýlega stritaö með sveittan skalla við að ná gufukatli Coot af strand- staðnum í þeirri trú að þeir væru að bjarga minjum úr elsta togaranum, en leifar „Miaca“ eru á strandstað i Vöölavík þar sem þessi fyrsti togari íslendinga strandaði áriö1888. Við skulum vona að hætt verði að ausa fé í þetta byggðasafn Hafnfirðinga og þeir látnir einir um það að gera það svo úr garði sem þeim hæfir, en hafist verði handa um að koma uþp raun- verulegu sjóminjasafni i Reykjavík og það tengt Sjó- mannaskólanum, sjómanna- samtökum, útgerðaraðilum og stofnunum í sjávarútvegi auk Þjóöminjasafns. Svo hepþilega vill til aö hús sem hæfir þessu safni er til staðar þar sem eru Kveldúlfshúsin við Skúlagötu. Sjálf húsin eru veröugar minjar um umsvif eins mesta framfaramanns í íslenskri útgerðarsögu, Thors Jensen. Væri það ekki verö- ugt verkefni á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar aö friðlýsa þessar byggingar og stofna til sjóminjasafns með þeim hætti? Ekki þarf að efa að ráöamenn Eimskipafélags Isl. væru fúsir til að láta húsin af hendi ef eftir væri leitað. Efri hæð sjávarmegin er heppileg til veitingarekstrar, þar sem koma mætti fyrir smærri grip- um svo sem módelum, komp- 54 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.