Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 59
Hcr oé nú
Myndbönd
Ekki er allt dans á rósum
Fast Forward er mynd um
„Bandaríska drauminn“. Níu
ungmenni ætla aö veröa
fræg. Þau eru frá litlum bæ i
Bandarikjunum og fengu lof-
orö frægs umboðsmanns um
áheyrn. Þau leggja i feröalag-
iö. Þegar þau koma til um-
boðsskrifstofunnar er sá
gamli horfinn til feðranna og
hefst þá baráttan um áþeyrn
hjá „vondamanninum“.
Myndin er fyrst og fremst
dans- og söngvamynd. Hún
ber þess lika merki þar sem
ungu leikararnir eru fyrst og
fremst dansarar og ráöa oft á
tiðum ekki viö leiktulkunina.
Myndin er ekki rós i hnappagt
leikstjórans Sidneys Poitier
en lögin eru góö og undir
öruggri stjórn þess sama og
stjórnaði „Thriller" Michaels
Jacksons, Quincy Jones.
Leikstjóri:
Sidney Poitier.
Tónlist:
Quincy Jones.
Aðalhiutverk:
Niu ungmenni.
Bandarísk:
söng-ogdansmynd.
Sýningartimi:
107 mín..
★
Mask
„Hvers virði er innrimaö-
urinn ef útlitið er ekki í lagi,
eða öfugt?“
Griman er áhrifarik mynd
um dreng sem fæöist meö
mjög stórt höfuö og baráttu
hans, móðurinnar og vina um
réttarstööu hans og ekki
hvaö sist baráttu við erfiðan
sjúkdóm. Hann er öðruvísi i
útliti og þaö virðist réttlæta
útskúfun. Cher leikur móöur-
ina á mjög áhrifaríkan hátt.
Hún er ekki þessi venjulega
mamma og heimilishaldið er
sérstakt. Móðirin dópisti og
vinirnir mótorhjólagengi.
Drengurinn kemst i skóla
og þá kemur í Ijós aö hann
ber af i flestum greinum.
Hann útskrifast með hæstu-
einkunn. Myndin er sérstök á
margan hátt. í mótorhjóla-
genginu eru „menn“ en ekki
ruddar og foringjar eins og
þeir eru oftast sýndir. Þetta
er frábær mynd og ekki hvað
sýst fyrir frábæra túlkun Cher
á hlutverki móöurinnar.
„Ég hef alltaf sagt það,
barnið mitt er engill."
Já þvi miður er þetta álit
allt of margra foreldra. Og ef
annað kemur í Ijós þá er ekki
hlustað eöa brugðist viö á al-
rangan hátt. Börn og ungling-
ar eru mjög viðkvæmar sálir
og bregðast yfirleitt öðruvisi
við en fullorðnir enda rök-
semdir fyrir gerðum þeirra oft
einfaldar ef þær eru þá
nokkrar. Um þetta fjallar
myndin „Ekki mitt barn“.
Foreldrar komast að þvi að
15 ára dóttir þeirra er byrjuð
að „fikta" við vimuefni. Þau
bregðast við á sinn hátt.
Myndin er góð en stundum
full dramatísk.
Foreldrar, þiö skulið sjá
þessa mynd. Er þetta
kannski ÞITT BARN?
Stefán Sturla
skrifar
VÍKINGUR 59