Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Page 12
Skapmikill í hópi félaga sinna í Stýrimannafélaginu á skrifstofu félagsins. „Fyrstu feröirnar voru ólíkar þeim sem nú eru; gjarnan viku- eöa hálfs- mánaöarsiopp á hverjum stað. “ 12 VÍKINGUR mesti lúxus sem almenningur gat hugsað sér; að sjá útlönd berum augum, hin löndin. Á þessum árum, og sérstak- lega á árunum undir “60, voru fraktskipin ofsalega vin- sæll vinnustaður af þessum sökum — og það þurfti nán- ast klíku til að komast á þau“. — En þú? „Nei, ég sótti þara um“. — Og starfiö var semsé sveipaö þessum dýröarljóma. En veruieikinn; haröar kojur, veltingur, vosbúö, kuldi og langar fjarverur innan um fá- mennt liö karlmanna. Var raunin nokkuö svona rósrauö i svita starfsins? „Auðvitað er þetta bara vinna þegar til kemur. Vinna, mikil vinna og löng vinna“. Tillitssemi — duttlungar Eru þér minnisstæöir menn frá þessum fyrstu árum á Fell- unum — þú hefur alltaf veriö hjá Samþandinu? „Ég man að fyrstu árin voru skipin mikið i tímabundnum verkefnum erlendis, verkefn- um sem gátu tekið mjög lang- an tíma. Ég minnist sérstak- lega ferðar á gamla Helga- fellinu sem varöi i sex mán- uði. Og þessir gömlu skip- stjórar i ferðum sem þessum eru manni náttúrlega einna minnisstæðastir. Ég nefni til dæmis Berg Pálsson, sem er nýlega kominn á eftirlaun. Lika Bernharð heitinn Páls- son, sem lést fyrir um tveimur árurn". — Haröir karlar? „Já, vissulega. Þessir menn sigldu í stríðinu. Og það sást á þeim að þeir höfðu oftsinnis lent í kröppum leik. Reynt margt, harðnað i lífsins ólgusjó. Báðir tveir, einnig Arnór Gíslason, sem lét af störfum fyrir sex eða sjö árum. Þetta voru miklir persónuleikar...“ — Og kannski borin ótta- blandin viröing fyrirþeim? „Já, já — efalítið". — Hvernig líkar þér þetta litla samfélag — áhöfnin — í sjálfu sér? „Það er margt gott um þetta litla samfélag að segja. Það getur verið ósköp nota- legt. Þaö skapast samstaða hjá mönnum, altso — úti á sjónum, ég veit ekki hvernig færi í landi. Mér hefur virst að þetta samfélag gangi mjög vel upp þegar og ef menn sýna hver öðrum mikla tillits- semi. Hún ræður úrslitum, viss sveigjanleiki í samskipt- um, aldrei stifni. Tillitssemin er geysilega mikið atriði i sona þröngum hópi“. — En svo eru til töffarar og tiktúrur? „Jú, jú — mikil ósköp. Menn eru misjafnlega góðir og ólikt hvað mönnum finnst eiga við frá einum tima til annars. Það eru þarna alltaf skritnir persónuleikar inn á milli, menn með ýmsa siði, en svona yfir höfuö held ég að menn reyni af fremsta megni að umbera duttlungana". Tungumál og milljónir — Ævintýrin, sögurnar? „Þegar ég lít um öxl finnst mér ég ekki hafa lent i rosa- legum ævintýrum, engum einstökum eða sérstaklega frásagnaverðum, þó svo allt hafi þetta verið næsta ótrú- legt á meðan það varöi, svo sem fyrsta ferðin um Róm, páskar i Genúa og svo framvegis. Fyrstu ferðirnar voru líka ólíkar þeim sem nú eru; gjarnan viku- eða hálfs- mánaöarstopp á hverjum stað." — Þú hefur aldrei veriö hættkomin? „Nei, aldrei svo að alvar- legt geti talist. Ég hef verið varkár". — En tungumálaerfiöleik- ar? „Já, og þeir eru náttúrlega kapituli út af fyrir sig. Þetta var hægfara sjálfsnám hjá manni, handapat og svo smám saman orðaskil i er- lendum borgum. Það er auð- vitað i fyllsta máta óeðlilegt að það skuli aldrei hafa verið markviss tungumálakennsla í Stýrimannaskólanum — og þó hún hafi mikið batnað, frá þvi sem var þegar ég nam þar, þá er hún ennþá langt frá því sem vera ber. Stýrimenn og skipstjórar eru yfirleitt full- trúar útgerðarinnar í erlend- um höfnum og þurfa aö koma fram fyrir hennar hönd og taka jafnvel ákvarðanir sem

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.