Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Qupperneq 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Qupperneq 18
Utan úr hcimi Sigurbjörn Guðmundsson 18 VÍKINGUR Stuttarfréttir Kaupskipafloti Sviþjóöar 1. 10. 1986 var 439 skip, 2,6 millj. tonn. Þetta er lægsta tala kaupskipaflotans síðan eftir heimsstyrjöldina seinni. 1976 var kaupskipafloti Svia undir sænskum fána 13 millj. tonn. Útreikningar A.P. Möllers sýna aö þegar á þessu ári geta Danir fengið 70% af olíu sinni og gasi á heimaslóð. Bergesen tók nýlega viö stærsta málmgrýtisskipi heimsins frá Suður—Kóreu. Stærðin er 365000 tonn. Margumræddur sparnaöur við að sigla undir NIS (Nor- vegian International Shipp- ingregister) verður á bilinu 4—7 millj. n.kr. pr. skip. Alltaf má fá annað flagg. Kýpurbúar eru n að hressa upp á eftirlitið á smáskipum sinum, en þeir hafa lengst af tekið við og skrásett hjá sér gömul skip frá Evrópu. Þá opnast bara önnur leið: Fáni Hondúras. Mercandia skipafélagið hefur alla tið haft skip sin undir dönskum fána, en nú hefur það bæst i hóp þeirra félaga er flytja skip sin undir „flóttafána“. United States Lines gefst upp með 12 stærstu gáma- flutningaskip heimsins, er hvert um sig tók 440 TEUs gáma. Norskir útgerðarmenn vilja starta NIS þegar 1. mars í ár. Rússar hafa byggt 5 kjarn- orkudrifna isbrjóta við Eystrasaltsskipasmíöastöð- ina í Leningrad, hestaflafjöld- inn er 75000. Nafnið er „Leonid Brezjenev. Kjölur hefur verið lagður að sjötta systurskipinu, og áætlaö er aö byggja einn i viðbót með hestaflatölunni 150 000 hestöfl. Kaupskipafloti heimsins minnkaði um 11,4 millj. tonn. Af siglingaþjóöunum hvarf mest frá norska kaupskipa- flotanum, yfir 6 millj. tonn. ísraelskur skipstjóri hefur verið dæmdur i tveggja ára fangelsi fyrir að hafa hent laumufarþega í sjóinn fyrir utan strönd Mozambique. Á þessu ári mun þýski kaupskipaflotinn undir „þæg- indafánum" verða stærri en sá, er siglir undir þýsku flaggi. Trans Nordia, 7 manna áhöfn Pappirsflutningaskipið „Trans Nordia" er 110 metra langt, og dw. er 3900 tonn. Áhöfnin er nú 7 menn, og á að fækka i 6 menn áöur en langt um liður. Veriö er að byggja fleiri skip af sömu stærð. Varla þarf að ræða um vinnuálag áhafnar eða fritim- ann. Menn geta sér nær um hvernig mannlegum sam- skiptum verður fullnægt viö slikar aðstæður og eins hvernig það fer með menn að skreiðast beint í koju af vökt- um sinum þvi timi til að sinna áhugamálum og mannlegum samskiptum er enginn orð- inn. Öll eiga skipin að sigla á erfiðum hafsvæðum, þar sem umferð er mikil. Hvernig sjó- menn framtiðarinnar eiga eft- ir að endast á þessum skip- um, verður framtíöin að skera úr um. Gamli góði tíminn Félag sænskra yfirmanna leit dagsins Ijós árið 1907. Árið 1910 birtist eftirfarandi tilskrif frá einum félags- manna. í dag mundu slík skrif vera talin óraunveruleg, jafn- vel fáránleg. Þrátt fyrir efa- semdir þá látum við tilskrifið flakka.,, Burt með kvenfólk sem þjónustufólk úr skipunum. Það, sem veldur mestum vanda viö að halda uppi aga um borð, er kvenfólk i þjón- ustuliði skipanna. Yfir- og undirmenn verða að sýna sjóferðabækur eða meðmæli til að fá skipsrúm, en kven- fólkið þarf ekki á slíkum gögnum að halda. Árangurinn lætur ekki á sér standa: Um borð kemur samsafn alls hins lélegasta, sem finnst af kven- fólki: Fallnar konur, skitugar og óforskammaðar. Þegar frammi sækir munu þær hrækja i andlit yfirmanna sinna, og þótt þær verði rekn- ar munu þær klukkustund seinna fá pláss á næsta skipi útgerðarinnar, enda hagvan- ar á kæjanum". Svo mörg voru þau orð um ástandið á þeim tíma. Krafðist félags- maðurinn þess að yfirmanna- félagið sneri sér til útgerð- anna um að viðkomandi „þokkadísir" fengju sjóferða- bækur eins og aðrir sjómenn, annars tæki yfirmannafélagið til sinna ráða. Siðan þetta var skrifað hefur mikið vatn til sjávar runnið, timarnir hafa breyst og kynslóðirnar með þeim. Konur hafa nú orðið á sér allt annað álit og ánægju- legt að hafa þær með til sjós. J
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.