Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Side 30
SKRAPK)
Nokkur
nöldurs
orð...
.. .og
svar
30 VÍKINGUR
Reykjavík 30.12.1986.
Kæri Vikingur!
Nokkur nöldurs orö, ég hef veriö kaupandi Víkingsins frá byrjun og oftast haft ánægju
og fróöleik aflestrinum.
Jólablaöið í ár er 110 blaösíöur, í því eru 33 blaösíöur auglýsingar, annaö lesmál er
þannig aö ég festi ekki hugann viö efniö, og kláraöi varla greinarnar. Stööugar myndir frá
Sparisjóði Vélstjóra þannig aö maöur er farinn aö þekkja á myndum öll þau stórmenni
sem þar ráöa ríkjum og hluta af starfsfólkinu. Einnig eru fréttir og myndir frá Farmanna-
sambandinu, myndir frá þeim samtökum eru í flestum blööum. I einu blaöinu taldi ég 7
myndir af Guöjóni A. Kristjánssyni, maöurinn myndast vel, en 7 myndir af sama mannin-
um ísama tölu blaöi er heldur sterk blanda fyrir mig.
Rétt fyrir jól fór ég aö heimsækja fólk, á tveimur heimilum var ég spuröur um hvernig
mér fyndist Víkingurinn, fólkiö var ekki ánægt meö blaöið, ég komst í vanda, þar sem mér
er mjög hlýtt til blaösins. Þaö er sjálfsagt ekki mikiö mál, þótt einn gamall karl sé ekki
ánægöur meö blaöiö, en mér heyrist aö ég sé ekki einn á báti, en mér finnst blaöinu hafa
hrakaö og jólablaöiö er alveg íbotni.
Meö kærri kveöju,
Guömundur Guömundsson
Svar.
Þakka þér fyrir bréfiö og
hlýjan hug þinn til Sjó-
mannablaðsins Víkings.
Vissulega er gott fyrir okkur
sem aö blaðinu vinnum aö
fá aö vita mat ykkar les-
enda á efninu sem viö
sendum ykkur, og þú sýnir
öörum eigendum og les-
endum blaðsins gott for-
dæmi, þegar þú sendir okk-
ur línu til aö láta okkur vita
af þinu mati. Hitt er svo ann-
aö mál aö ég er afar leiður
yfir því hversu þú ert
óánægöur meö blaðið. Og
Guðmundur, þér urðu á
heldur slæm mistök: Þér
láðist aö nefna hvers konar
efni þér þætti fengur í og þú
teldir líklegt til aö bæta
blaðið. Auðvitað er útilokað
aö koma til móts við óskir
þinar og annarra óánægðra
lesenda, nema við vitum
hverjarþæreru.
En ég vil gjarnan svara
aðfinnslum þinum, þeim
sem koma fram i bréfinu
þínu. Þar er fyrst aö telja að
þér finnst hlutfall auglýs-
inga vera of hátt i blaðinu.
Þvi er fyrst til að svara að
viö teljum auglýsendur vera
nokkurs konar „barómet" á
blaðið. Það, að aulýsendur
eru fúsir til að auglýsa i
blaðinu, segir okkur að þeir
telja að blaðið berist viða og
sé vel lesið, ella mundu þeir
ekki telja fé sinu vel variö i
auglýsingar þar. i annan
staö er aö nefna aö útgáfu-
kostnaður er mikill. Undir
verulegum hluta þess
kostnaðar standa auglýs-
ingarnar. Tæpast munu
áskrifendur vilja greiða tvö-
falt áskriftarverð, til þess að
fá auglýsingalaust blað. í
þriöja lagi eru auglýsingar
efni, sem oft spara lesend-
um fé og fyrirhöfn þegar
þeir þurfa að kaupa vöruna
sem auglýst er.„
Annað efni er þannig að
eg festi ekki hugann við
efnið og kláraði varla grein-
arnar“, stendur i bréfinu
þínu. Þetta skil ég svo að
efni greinanna sé leiðinlegt
eða illa fram sett, nema
hvort tveggja sé. Þar er úr
vöndu að ráða. Efni blaðs-
ins er einkum þrenns konar:
a) faglegt efni fyrir sjómenn,
unnið af fagmönnum. Þar er
átt við fiskifræðinga, út-
vegsfræöinga, starfsmenn
að öryggismálum o.s.frv.
sem fjalla hver um sitt svið
á faglegan hátt. b) Félags-
mál sjómanna, þar sem for-
ustumenn innan sjómanna-
samtaka, einkum FFSÍ,
reifa mál sem þeim þykir
eiga erindi við lesendur og
c) annað efni til skemmtun-
ar og/eða fróðleiks, oftast
unnið af sjómönnum eða
reyndum og viðurkenndum
blaðamönnum. Reynt er eft-
ir mætti að blanda þessum
þáttum í hverju blaði, svo aö
sem flestir finni eitthvað við
sitt hæfi. Auövitað tekst þar
misjafnlega til og smekkur
lesenda er líka misjafn. Og
þá kem ég aftur að því sem
ég nefndi fyrr; þið verðið að
láta okkur vita um óskir
ykkar til þess að við getum
reynt að mæta þeim.
Næsta athugasemd þín
finnst mér ekki sanngjörn,
það verð ég að segja. Við
athugun kom í Ijós aö í rit-
stjórnartið minni hér viö
J