Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Blaðsíða 48
nyjuMGAR
TÆKMI
Starfsmenn A/S Ove
Christiansen taka
skrúfuásinn úr
umbúðunum eftir ferða-
lagiðfrá Rio.
Og hér er
verið að mæla
skekkjuna á ásnum i
rennibekknum.
6 tonna skrúfuás
fluttur um hálfan
hnöttinn til viðgerðar
Þegar danska skipið Mer-
candia President var á leið
inn i höfnina i Santos í Brasil-
íu rakst skrúfan i siglingadufl
sem maraði i kafi. Viö árekst-
urinn bognaði skrúfuásinn
um 6/10 úr millimetra sem
var nóg til þess að skipið gat
ekki haldið áfram för sinni fyrr
en skrúfuásinn hafði verið
réttur eða skipt um hann.
Mercandia President var
tekið í slipp i Rið de Janeiro
og útgerðin hafði samband
viö eitt af þeim fáu fyrirtækj-
um í veröldinni sem geta gert
við svo litla öxulbeygju en
það var A/S Ove Christensen
í Hirtshals.
Frá Hirtshals voru sendir
tveir menn til Ríó að skoða
ásinn. Í samráði við trygging-
arfélagið var ákveðið að
senda ásinn til Hirtshals eins
fljótt og auðið væri. Það er
langt á milli Rio og Hirtshals
svo að ekki var um annað að
ræöa en senda skrúfuásinn,
sem var 6 tonn að þyngd,
loftleiðis. Hann var settur inn
i Júmbóflutningavél og fluttur
til Parisar þar sem flutninga-
bill þeið og flutti ásinn til
Hirtshals. Þangað kom
skrúfuásinn aðfaranótt
fimmtudags. I Hirtshals var
unnið nótt og dag við að rétta
ásinn. Undir hádegi á föstu-
dag var skekkjan oröin 3/100
úr millimetra, sem er betra en
á nýjum ás.
Skrúfuásinn var nú fluttur
sömu leið og á sama hátt til
baka til Ríó, þar sem hann var
settur á ný í Mercandia Presi-
dent. Útgerðarfélagið og
tryggingarfélagið voru ánægð
með hvernig staðið ar að við-
gerðinni. Vegalengdin i heild,
sem skrúfuásinn var fluttur,
var rúmir 20.000 km og
kostnaðurinn við flutninginn
með flugvélinni var
1.000.000 krónur.
En tíminn sem skipið var
stopp var dýrmætur, svo aö
þrátt fyrir dýran flutning borg-
aði sig að leggja i þennan
kostnað.
A/S Ove Christensen sem
leysti áðurgreint verkefni af
hendi hefur þróað aöferð við
að rétta skrúfuása siöan að
mikið var um réttingar á
skrúfuásum togbáta er fengu
hlera í skrúfuna og getur nú
rétt skrúfuása af næstum
hvaða stærð sem er. Hingað
til hefur stærsta verkefnið
veriö að rétta skrúfuás ferj-
unnar Dronning Margrethe,
sem gengur yfir Stórabelti.
Frá byrjun hefur verksmiðjan
rétt meira en 600 skrúfuása,
vinduása, stýrisstamma o.fl.