Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Síða 12
HVAÐ GERÐIST
Loönuát þorsksins
þrefaldaöist frá 1984 til
1985 með þeim
afleiðingum að
loðnustofninn nær
kláraðist. Jafnframt át
þorskurinn stöðugt meiri
síld, smáþorsk og ýsu.
12 VÍKINGUR
fiskstofna í Barentshafi en
sprengingarí rannsóknar-
skyni."
Nýtt hljóð í
strokkinn
Allt til nú hafa skýringar á
hruninu í Barentshafi verið í
svipuðum dúr og nefnt var hér
að ofan. Því kom mér það veru-
lega á óvart að heyra nýja skýr-
ingu sem brýtur í bága við allt
sem hingað til hefur verið sagt.
Og það var ekki neinn maður
úti í bæ sem gaf hana, heldur
sjálfur Odd Nakken, forstjóri
norsku Hafrannsóknastofnun-
arinnar.
í dagblaðinu Bergens
Tidene laugardaginn 6. janúar
sl. er haft eftir Odd Nakken:
„Niðurstöður úr fjölstofna
rannsóknum benda til þess að
fæðuþörf hins mjög svo vax-
andi þorskstofns hafi tvöfaldast
frá 1984 til 1986. Þetta kom
mest niður á loðnunni. Loðnuát
þorsksins þrefaldaðist frá 1984
til 1985 með þeim afleiðingum
að loðnustofninn nær kláraðist.
Jafnframt át þorskurinn stöð-
ugt meiri síld, smáþorsk og
ýsu. Árið 1985 og 1986 át
þorskurinn um 500 þúsund
tonn af síld, og trúlega er þetta
meginskýringin á því að þessir
tveirsíldarárgangareru horfnir.
Þrátt fyrir að þoskurinn æti
upp loðnu og síld og seinna
bæði ýsu og þorsk, fékk hann
samt ekki nóg æti. Frá 1986
hefur þorskurinn vaxið miklu
hægar en hann gerði áður.
Meðalþyngd 5 ára þorska var
1,8 kg veturinn 1986 en meðal-
þyngd 5 ára fiska árið 1988 var
einungis 0,7 kg.
Auk þessara náttúrulegu or-
saka bættist við að miklu af
smáfiski var kastað fyrir borð,
sérstaklega 1986/7. Þótt það
sé smáræði samanborið við
vaxtarrýrnunina og það sem ét-
ið var, má ekki alveg líta fram
hjá því.“
Odd Nakken sagði ennfrem-
ur að ekki hefði verið hægt að
komast hjá hruninu í loðnu-
stofninum þótt dregið hefði
verið úr loðnuveiðunum, eða
þeim næstum hætt, frá árinu
1983. En hrunið hefði etv. ekki
orðið eins snöggt. Nú er loðn-
ustofninn að rétta við aftur.
„Seiðaárgangurinn frá 1989
virðist vera af eðlilegri stærð og
vekur vonir um að stofninn sé í
framför. Allt útlit er fyrir að hægt
verði að hefja loðnuveiðar
snemma á þessum áratug, þótt
Hrun þorskstofiisins í Barentshafi:
ekki sé hægt að tímasetja það
nákvæmlega.
Ekki er hægt að búast við að
þorskstofninn rétti við fyrr en
nýr sterkur árgangur lítur dags-
ins Ijós. í fyrsta lagi fæðist slíkur
árgangur á þessu ári og yrði
hann þá veiðanlegur 1994-95.“
Auðvelt er að vera vitur eftir
á. Þá virðast hlutirnir auðskilj-
anlegir og auðskýrðir. En hvað
voru mennirnir að gera á haf-
rannsóknastofnuninni í Bergen
á meðan þorskurinn var að
hreinsa upþ Barentshafið, eitt-
hvert auðugasta hafsvæði
jarðar? Voru þeir að bíða eftir
því að Þorskstofninn stækkaði
svo hægt væri að veiða mikið
af stórum fiski? Sáu þeir ekki
hvað var að gerast fyrir framan
nefið á þeim? Hefði verið hægt
að gera eitthvað til þess að
draga úr þessu gereyðingarafli
sem sveltandi þorskurinn var?
Hefði verið rétt að ráðast á
þorskinn með öllum tiltækum
flota?
Víst var að á þessum tima
voru norskir fiskifræðingar að
reyna að fá Rússana til þess að
stækka möskvann og veiða
minna af smáfiski. Þeir voru
ómeðvitaðir um það sem var
að gerast í hafinu, blindaðir af
hugmyndinni að hægt væri að
byggja upp fiskstofna með frið-
un.
Hver verður sóttur til ábyrgð-
ar? Er einhver borgunarmaður
fyrir þessum mistökum? Og ef
til vill er mikilvægasta spurn-
ingin: Eru fiskifræðingarnir
sem í hlut áttu, menn til þess að
viðurkenna sín mistök og not-
færa sér hina nýju dýrkeyptu
reynslu?
Ef skýringar Nakkens eiga
viö rök að styðjast, þá hefur
„hin hefðbundna fiskifræði"
beðið alvarlegt skipbrot. Þá
þarf að fara að viðurkenna að
fiskarnir í hafinu stóra lúti sömu
líffræðilegu lögmálum og önnur
dýr sem lifa í afmarkaðra um-
hverfi, eins og í heiðatjörninni til
dæmis.
Vistkerfið virðist hafa
alveg farið úr skorðum
- segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar