Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Blaðsíða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Blaðsíða 9
GRÍMSSON UM ÞYRLUMÁL sem dómsmálaráöherra að það er meira en að segja það að kaupa slík tæki og reka þau. Það kostar upphæðir sem samrýmast ekki þeim vanda- málum sem við er að glíma í ríkisfjármálum. Jafnvel þótt menn gætu komið sér saman um að slíkt verkefni hefði for- gang, er ég ekki farinn að sjá önnur verkefni víkja þar á móti. Mér sýndist því, eftir allmikla íhugun að hér væri mjög erfitt um vik, þrátt fyrir mikinn vilja í landinu. Þá þarf að sjálfsögðu að svara þeirri spurningu, hvernig eigi að koma slíku máli í fram- kvæmd. Við höfum átt mikið og gott samstarf við björgunarsveit Varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli, sem mjög oft hefur komið til aðstoðar i neyðartilvikum og í reynd höfum við reitt okkur á þá sveit að verulegu leyti. Við get- um hinsvegar ekki stólað á hana nema að litlu leyti og þar að auki er hennar starfsemi eingöngu á Keflavíkurflugvelli. Við þau skilyrði sem nú eru að skapast í heiminum og með auknu samstarfi milli þjóða, hefur mér sýnst að það væri mjög vel mögulegt að koma á víðtækara samstarfi á sviði björgunarmála á Norður-Atl- antshafi. Ég held að menn muni minnka starfsemi á sviði varnarmála, sem hefur verið í verulegri útþenslu á norður- hveli jarðar á undanförnum ár- um og áratugum, og þá skap- ast áreiðanlega lag til þess að leggja aukna áherslu á örygg- is- og björgunarmál. Það er ekki, að mínu mati, hægt að ætlast til þess að ís- lendingar einir annist björgun- ar- og öryggismál á því stóra hafsvæði sem er í kringum ís- land. Þar eiga margar þjóðir hagsmuna að gæta og ég hef fundið fyrir áhuga nokkurra manna á auknu samstarfi á þessu sviði. Ég tel því eðlilegt að leita samstarfs við okkar helstu nágrannaþjóðir, ekki síst innan Atlantshafsbandalags- ins, og koma upp sameiginlegri björgunarsveit, sem annaðist björgunarstarf á þessu stóra hafsvæði. Ég er þá með það í huga að sameina það starf sem fer fram nú á okkar veg- um, á Keflavíkurflugvelli og fá til liðs aðrar þjóðir, sem hér eiga einnig hagsmuna að gæta, t.d. Norðmenn, Þjóð- verja, Breta og jafnvel Frakka, svo einhverjir séu nefndir. Einnig er það svo með vaxandi samstarfi milli austurs og vest- urs að vel getur farið svo að við munum sjá fram á aukið sam- starf við Sovétmenn á þessu sviði. Þótt það sé ef til vill fjar- lægt í dag, þá eru orðnar svo miklar breytingar nú á síðasta ári að slíkt gæti orðið áður en langt um líður. — Hvernig eróskamyndin í þínum huga af búnaði og staðsetningu slíkrarsveitar? — Ef vel ætti að vera þyrfti góð björgunarsveit að vera staðsett á Keflavíkurflugvelli, á Austurlandi, á Vestfjörðum og hugsanlega á Norðurlandi. Ef mynda ætti gott öryggisnet, þá er það að mínu mati ekki gert nema tvær til þrjár þyrlur yrðu staðsettar utan höfuðborgar- svæðisins, sem mundu þájöfn- um höndum þjóna hver á sínu svæði og vera varatæki ef á þyrfti að halda annars staðar. — Ertu þá með meðalstór- ar, eða kannski stórar þyrlur í huga á þessum útstöðvum, ef gert er ráð fyrir að höfuð- stöðvarnar yrðu á Keflavík- urflugvelli? — Útaffyrirsig hef ég enga sannfæringu um hverskonar tæki það ættu að vera, en ég tel að það ættu að vera að ein- hverju leyti þyrlur af fullkomn- ustu gerð. En hvort þær þyrftu allar að vera það, læt ég ósagt. — Hefurðu kostnaðartöl- ur að fara með í þessu sam- bandi? — Við höfum lauslegar at- huganir Landhelgisgæslunnar á því hvað þyrla af fullkomn- ustu gerð kostar. Mig minnir það vera á milli sex og átta hundruð milljónir. Það liggja líka fyrir athuganir á reksturs- kostnaði, sem er mikill. En ég er þeirrar skoðunar að það sé eðlilegt að við leitum eftir þátt- töku nágrannaþjóða okkar og samstarfsaðila innan Atlants- hafsbandalagsins, í þessu verkefni. — Er það óhjákvæmilegt, ef það á að takast? — Ég tel það bæði eðlilegt og óhjákvæmilegt, miðað við þann mikla kostnað sem við horfum fram á. En i sjálfu sér má segja að við íslendingar höfum burði til að byggja upp slíkt björgunarstarf, en hér er um það háar tölur að ræða að það mundi koma niður á öðrum verkefnum ríkisins og ég sé ekki að menn séu tilbúnir að fallast á það. Ég sé heldur ekki að það sé nokkur grundvöllur fyrir aukinni skattheimtu í land- inu um þessar mundir. — Þú nefndir hér að fram- an að þú hefðir orðið var við áhuga manna á þessu sam- starfsverkefni. Er sá áhugi innanlands, eða hefurðu rætt þetta á víðari vettvangi? — Ég hef bæði rætt þetta við mína félaga í þinginu og það er áhugi fyrir því þar að flytja slíkt mál inn á Alþingi. Jafn- framt hef ég heyrt í mönnum frá öðrum þjóðum, sem hafa sýnt slíku máli áhuga. Þannig tel ég þetta ekki úr lausu lofti gripið. — Megum við kannski vænta þess að um þetta komi fram þingsályktunartil- laga á næsta þingi? — Ég veit að það eru þing- menn með slíka tillögu í undir- búningi. Ef vel ætti að vera þyrfti góð björgunarsveit að vera staðsett á Kefla víkurflugvelli, á Austurlandi, á Vestfjörðum og hugsanlega á Norðurlandi. VÍKINGUR 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.