Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Blaðsíða 34
Nanna Dröfn
Sigurdórsdóttir
blaöamaður skráði,
spyrill með henni var
S.V.
SKIPHERRA, FLUGSTJÓRIOG LÆKNIR
HJÁ GÆSLUNNITEKNIR TALI
Umræða um þörfina á
bættum búnaði björgunar-
sveitar Landhelgisgæslunn-
ar hefur verið mikil á undan-
förnum misserum, og ekki
að ástæðulausu. Landhelg-
isgæslan hefur yfir að ráða
einni björgunarþyrlu, TF Sif,
en hefur einnig til afnota litla
þyrlu sem að vísu er ekki vel
til björgunarstarfa fallin.
Margar og ólíkar skoðanir
hafa komið fram um þessi
mál, en flestir eru sammála
um að björgunarsveit Land-
helgisgæslunnar þurfi nauð-
synlega á annarri þyrlu að
halda, annaðhvort sömu
gerðar og TF Sif eða jafnvel
stærri og fullkomnari. Þá
hefur líka verið talað um
nokkurskonar,, björgunar-
net“, það er að segja, að
staðsetja þyrlur og annan
björgunarbúnað í hverjum
landsfjórðungi, eða jafnvel
víðar.
34 VÍKINGUR