Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Blaðsíða 41
ÞYRLUMÁL erum með eina þyrlu og oft er hún óflughæf, til dæmis vegna viðhalds eða bilana. Það er komið að því að þyrlan er óflug- hæf lengur og lengur á hverju ári. Það hreinlega gengur ekki. Óskabjörgunar- sveitin — Það hefur verið talað um að staðsetja björgunarþyrlur í hverjum landsfjórðungi, koma upp einskonar björgunarneti. Hvað finnst ykkur um það? Hver er ykkar óskabjörgunarsveit? Páll: Ég hef nú ekki velt þessu svona fyrir mér, heldur hef ég reynt að sjá einhverja eðlilega þróun í þessum mál- um. Mín ósk í dag er sú, að við fengjum aðra þyrlu eins og TF Sif. Og þá er ég að tala um að fá hana strax. Hún yrði staðsett meira og minna úti á landi, ekki á neinum föstum stað, heldur þar sem þörfin er í það og það skiptið. En draumauppsetn- ingu er ég ekki með núna. Jú, við getum sagt eina stóra þyrlu í hverju kjördæmi! En ef við erum að tala um svona björgunarnet, þá er þetta alveg gífurlegt kerfi. Að staðsetja þyrlu með áhöfn og viðhaldsaðstöðu í hverjum fjórðungi er náttúrlega meiri háttar mál. Þessar hugmyndir eru auð- vitað ekkert nema rabb stjórn- málamanna. Þessar hugmynd- ir sem hafa komið upp ættu þá eftir að fara í gegnum þingið, velkjast þar í nokkur ár. Þess vegna er ég að tala um þessa þróun. Við þurfum að eignast þyrlu eins og TF Sif. Eiga tvö systurskip, tvær nýjar þyrlur, þannig að önnur vær alltaf flug- hæf og hin flughæf 50% af tím- anum. Og þegar því takmarki er náð, þá getum við farið að hugsa fyrir stóru þyrlunni. Föst staða læknis nauðsynleg Arnaldur: Ég á náttúrlega einhvern draum líka, en sem fyrsta skref, þá vildi ég hafa tvær þyrlur og staðsetja aðra þeirra á Norðausturlandi, en hina á suðvesturhorninu. TF Sif getur í raun ekki þjónað nema Suður- og Vesturland- inu, ekki til að bjarga mannslíf- um. Þetta yrði auðvitað mjög dýrt, að hafa tvær þyrlur með tveimur áhöfnum, og ég sé ekki að það yrði auðvelt að manna þær báðar læknum. Ég myndi líka vilja að í framtíðinni yrði föst staða læknis við þyrluna, því hingað til hafa menn staðið þyrluvaktirnar af áhuga og í aukastarfi og þyrlustarfið kannski liðið fyrir það. Undirstöðurnar fara að hrynja Sigurður Steinar: Minn draumar er sá, að hér yrði ein öflug björgunarsveit og hún myndi náttúrlega yfirtaka björg- unarsveit Varnarliðsins. Þær þjóðir sem eru í NATO myndu taka þátt í þessari björgunar- sveit, ásamt Alþjóða flugmál- astofnuninni og Alþjóða sigl- ingamálastofnuninni vegna þess að þessar stofnanir eru settar af Sameinuðu þjóðunum og hafa vissum skyldum að gegna. Hér er geysilega mikil flugumferð og þaö má ekki gleyma henni þegar talað er um björgunarþáttinn og síðan eru miklar siglingar hér um norður Atlantshaf. Ég tel að það þyrftu að vera minnst 3-4 öflugar björgunar- þyrlur í þessari sveit, þyrlur með afísingarbúnaði. Aðal- stöðin yrði annaðhvort í Reykjavík eða í Keflavík, en síðan hefðu þessar vélar að- stöðu á ísafirði, Akureyri og Neskaupstað þar sem yrði flug- skýli, aðstaða fyrir áhafnir og minni háttar viðgerðir. Það skiptir mjög miklu máli að þyrlur séu staðsettar úti á landi, því þær þurfa helst að vera í nám- unda við skipaflotann. Við hjá Landhelgisgæslunni höfum bakkað mjög mikið með okkar kröfur. Við vorum alltaf að tala um að kaupa eina stóra og öfluga björgunarþyrlu með afísingarbúnaði, en það virðist hreinlega ekki vera grundvöllur fyrir þeirri hugmynd. Menn hlusta ekki á þetta og það er alltaf verið að tala um einhverja aura og það viröast ekki neinir peningar mega fara í þetta, en hins vegar þarf að byggja Þjóð- arbókhlöðu, Listasafn eða eitt- hvað annað. Þá eru alltaf til peningar. Hins vegar eins og staðan er í dag, þá þurfum við þyrlu eins og TF Sif ekki seinna en á miðju þessu ári. Þæryrðu gerð- ar út frá t.d. Reykjavík, en við hefðum svo aðstöðu úti um land. Mér finnst alveg út í hött að tala um að staðsetja þyrlur úti á landi, því menn eru að tala um mikla peninga í sambandi við þessa þyrlu sem við viljum fá, en það eru helmingi hærri upphæðir sem þyrfti til að setja þyrlur út á land. Ég tel að ef ekkert verður að gert núna, þá fari þessar undir- stöður sem við höfum verið að byggja undir okkur að molna. Og þær geta hrunið nokkuð hratt. Ef menn þykjast ekki hafa efni á að kaupa þyrlu sem kost- ar kannski á bilinu 280-340 milljónir króna, þá er þessi þjóð illa stödd. Aö staðsetja þyrlu með áhöfn og viðhaldsaðstöðu í hverjum fjórðungi er náttúrlega meiri háttar mál. VÍKINGUR 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.