Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Side 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Side 40
MEIRI HÁTTAR MÁL Arnaldur Valgarösson læknir: Viðbragöið get- ur veriö klukkutími hjá þeim, en er 20 - 30 mín- útur hjá okkur. 40 VÍKINGUR þrifum aö hafa Varnarliðið, því stjórnmálamenn og þeir sem stjórna peningamálum nota Varnarliðið sem skálkaskjól. Þeir horfa alltaf til Keflavíkur- flugvallar og segja: Þarna er björgunarsveit. Eins og fram hefur komið þá hefur Varnarliðið gert marga góða hluti, en við getum hrein- lega ekki reitt okkur á það. Án þess að fara út í einstök tilfelli, þá eru mörg dæmi um að þeir hafi ekki getað sinnt kalli, oftast vegna þess að vélarnar eru ekki tiltækar. Sigurður Steinar: Þeirra vinnuaðferðir eru líka allt aðrar. Við getum gert hluti sem við getum réttlætt sjálfir, en þeir í Varnarliðinu þurfa að fara eftir mjög ströngum reglum og ég veit dæmi þess að menn hafa verið kallaðir fyrir herdómstól fyrir brot á slíkum reglum. Mínútur skipta máli Páll: Það er líka annað í þessu máli sem er viðbragðið. Það er ekki það sem þeir segja, það er miklu seinna, og miklu seinna helduren hjá Landhelg- isgæslunni. Og í björgunar- störfum skipta mínútur oft veru- legu máli. Arnaldur: Viðbragðið getur oft verið klukkutími hjá þeim, og þegar við erum að tala um slas- að fólk þá skiptir hver mínúta máli. Okkar viðbragðstími er hins vegar 20-30 mínútur. Páll: Eins og talað hefur verið um þá vinnum við allt öðruvísi en Varnarliðið. Við er- um miklu fljótari. Þegar Varnar- liöið fær björgunarbeiðni þá koma þeir saman og ræöa mál- in, afla upplýsinga um veður og annað og eru um klukkutíma að koma sér af stað. Hins vegar þegar við fáum beiðni, þá er hreinlega rokið af stað og upp- lýsinganna er aflað þegar við erum komnir af stað. Nú, ef það reynist síðan ófært, þá er snúið viö. Arnaldur: Það er líka spurn- ingin um að þekkja staðhætti. Við þekkjum alla staðhætti, en þeir ekki. Þeirra flugmenn þekkja ekkert til hérna. Erum vísir að björgunarsveit Páll: Mér finnst það alveg skelfileg tilhugsun að tilvist Varnarliðsins hér á landi komi í veg fyrir að eðlileg þróun geti átt sér staö í björgunarmálum íslendinga. Við höfum að vissu leyti sannað okkur í þessum málum, en ég vil hins vegar ekki taka það djúpt í árinni að kalla okkur björgunarsveit. Ég kalla okkur ekki björgunarsveit fyrr en við höfum þann tækja- kost sem er nauðsynlegur. Tækjakost sem er alltaf tiltæk- ur. í dag erum við nokkurskon- ar visir að björgunarsveit. Við

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.