Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Síða 45
FALSAÐA LINURITIÐ
Þetta línurit hefur skreytt
nokkrar blaöagreinar að und-
anförnu og þaö hefur veriö not-
að á opinberum fyrirlestrum.
Línuritinu er ætlaö að sýna
fram á aö fiskiskipastóll (slend-
inga sé of stór. Mætustu menn
hafa litið á þaö og séö sem var,
aö stækkandi floti hefur fært
heim minni afla, eöa hvaö?
Sýnir línuritið það ekki?
Nei, alls ekki. Línuritiö sýnir
skipastól íslendingaog HEILD-
ARVEIÐI á islandsmiðum,
sameiginlegan afla íslendinga
og útlendinga. Haganlega gert
eins og annaö sem notað er í
áróðrinum.
Afli íslendinga þessi ár var
sem hér segir:
1950-59 = 261 þúsund tonn
1960-69 = 242 “ “
1970-79 = 281 “ “
1980-89 = 367 “ “
Séu þessar tölur settar upp í
mynd, kemur allt annaö út:
Aflinn hefur vaxið í takt viö
skipastólinn, nema síðustu ár-
in, en þá kemur hann raunar
ekki skipastólnum viö því hann
er ákveðinn í ráðuneytinu.
En þetta falska línurit vekur
upp spurningu um hvort það
sanni ef til vill þaö gagnstæða
viö þaö sem þvi var ætlað? Það
sýnir að meðan sókn í fiski-
stofnana var óheft og skipastóll
frá mörgum þjóðum, sem eng-
inn veit hvað var stór, var árið
um kring á íslandsmiðum, var
veiðin miklu meiri en síðar
varð. Raunar var það trú
manna sem til þekktu að veiðin
þá hafi verið miklu meiri en upp
var gefiö.
Það er fyrst eftir að íslend-
ingar eru orðnir einir um miðin
og farnir að rækta fiskistofnana
og ala upp ungviði í hafinu að
veiðinni fer að hraka verulega.
Hvers vegna?
Ýmsir menn eru þeirrar
skoðunar að það eigi lítið eöa
ekkert skylt við stærð fiskveiði-
fiotans. J.K. og S.V.
Falsaða línuritið.
Þetta línurit sýnir stærð
ísienska fiskveiðiflot-
ans og veiði hans.
VÍKINGUR 45