Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Síða 46
Björgvin Þór
Jóhannsson
Benedikt H.
Alfonsson
Apelco DXL 6500 lor-
an-C Navigator. Eins og
sést á myndinni kemur
fram á skjánum þeir að-
gerðar möguleikar sem
fyrir hendi eru og not-
andinn er beðinn um að
velja einn þeirra. Þann-
ig er hann leiddur í
hverja aðgerðina eftir
aðra.
46 VÍKINGUR
nyjuMGAR
TÆKMI
Siglinga- og fiskleitartækja
sýningin BETRI BRÚ 89 sem
stóö dagana 14. -17. des. 1989
var nú haldin í annað sinn.
Þetta er lofsvert framtak Sam-
bands seljenda skipatækja
(SSS) sem eiga [ samkeppni,
aö gefa kaupendum með þess-
um hætti tækifæri til að bera
saman tæki frá mörgum fram-
leiðendum. Kaupendurgeta þá
sparað sér sporin, borið saman
verð og gæði og fengið um leið
betri yfirsýn yfir hvað er á boð-
stólum á þessum markaði. f
þættinum Nýjungar og tækni
verður í þessu blaði og næstu
blöðum fjallað um tæki, sem
voru til sýnis á áðurgreindri
sýningu.
Lorantækið er eitt algeng-
asta siglingatækið og margir
telja að það leysi allan vanda
að hafa það um borð. Sá sem
hafi loran þurfi ekki að hafa
neina þekkingu í siglingafræði,
lorantækið bjargi málinu. En
þessi tæki sem og önnur sigl-
ingatæki eru aldrei annað en
hjálpartæki við siglingu skips-
ins. Lorantækjaframleiðendur
gera sér grein fyrir því en leggja
þó áherslu á að notkun tækis-
ins sé eins einföld og kostur er,
enda eru stöðugar framfarir í
þeim efnum. Ekki verður þó
komist hjá því að notandinn
þurfi nokkra tilsögn til að nýta
þá möguleika sem tækið gefur.
Nýjasta lorantækið frá banda-
ríska fyrirtækinu Apelco, en
það fyrirtæki er hluti af Rayt-
heon fyrirtækjasamsteypunni,
kynnti á s.l. hausti nýtt loran-
tæki sem er mjög auðvelt í
notkun að sögn framleiðenda.
Þetta tæki, sem nefnist Apelco
DXL 6500 loran-C Navigator
með sambyggðum skrifara var
sýnt á sýningunni Betri brú 89
af Sónar hf. Tæki þetta er forrit-
að þannig að notandinn er
leiddur í gegnum alla þætti
tækisins sem tengjast siglingu
og staðsetningu skipsins og
hann fær vitneskju um hvort
hann hefur farið rétt að.
DXL 6500 hefur minni fyrir
80 leiðarpunkta, sem hægt er
að ákvarða með lorantölum,
breidd og lengd eða stefnu og
vegalengd. DXL 6500 velur
sjálft bestu aðalstöðina og
aukastöðvarnar, þ.e. bestu
keðjuna miðað við staðsetn-
ingu skipsins, og leiðréttir auk
þess sjálfkrafa fyrir misvísun
og landfræðilegri skekkju
(ASF). Landfræðileg skekkja
stafar af því að tækið reiknar
með því að loranmerkið fari á
leiðinni til skipsins yfir sams-
konar yfirborð, þ.e. sjó, en oft
liggur leið þess einnig yfir land.
Þegar merkið fer yfir land dreg-
ur úr hraðanum og því seinkar.
Mælingin verður því röng sé
ekki leiðrétt fyrir þessu. DXL
6500 sýnir á skjánum staðsetn-
ingu skipsins, stefnu (course)
og hraða þess (speed) yfir
sjávarbotninn á hverjum tíma.
Á skjánum sést ennfremur með
hvaða hraða yfir sjávarbotninn
skipið færist í átt að ákvörðun-
arstað (Velocity Toward Dest-
ination = VTD). Þar sést hraði
eftir fyrirhugaðri siglingaleið
(Velocity Along Rute = VAR)
sem verður minni en hraði
skipsins á hverjum tíma ef ekki
tekst að halda stefnunni.
Stefna yfir sjávarbotninn í átt
að ákvöröunarstað (Course
Made Good=CMG) og hve
langt er þangað á hverjum tíma
(Distance) sést líka á skjánum.
Áttin til staðarins sem fara á til,