Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 58
fcavs\á
MIKILVÆGAR MARKAÐSFRETTIR
58 VÍKINGUR
AFLABRÖGÐ Nú áriö 1989 er liðið og tímabært
að gera það upp. Samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Fiskifélagi íslands virðist þetta hafa verið
fremur gjöfult ár þótt örlítið minna fiskaðist en árið
áður. En það var líka algert metár. Það sem
mestu réð um minni ársafla var að sjálfsögðu
loðnuveiðin sem brást á haustvertiðinni. Fyrir vik-
ið varð ársaflinn aðeins 678 þúsund tonn á móti
909 þúsund tonnum árið áður. Botnfiskafli stóð
hins vegar nokkurn veginn í stað, var 690 þúsund
tonn á móti 698 þúsund tonnum árið áður. Heild-
araflinn varð 1.522 þúsund tonn á móti 1.752
þúsund tonnum árið áður. Árið 1989 var þvi sjötta
árið í röð sem aflinn komst yfir 1.500 þúsund tonn
af fiski.
Þótt botnfiskaflinn breyttist lítið milli ára urðu
nokkrar sveiflur í stöku tegundum. Þorskveiðar
drógust saman úr 376 þúsund tonnum árið 1988 í
352 þúsund tonn í fyrra. Ýsuaflinn jókst hins veg-
ar úr 53 þúsund tonnum í 60 þúsund tonn og
grálúðuaflinn úr 49 þúsund tonnum í 59 þúsund
tonn. Veiðar á grálúðu hafa tvöfaldast á þremur
árum og er þessi fisktegund nú talin til mikilvæg-
ustu nytjafiska okkar. Töluverður samdráttur varð
í veiðum á rækju og humri en hörpudiskaflinn
jókst aftur eftir nokkra lægð síðustu tvö ár. Þá
veiddist nokkuð meira af síld en árið áður og
komst síldaraflinn í fyrsta sinn yfir 100 þúsund
tonna markið síðan í lok sjöunda áratugarins.
Verðmæti alls afla upp úr sjó er áætlað 37,5
milljarðar króna og hefur það nokkurn veginn
haldið í við verðbólguna, í krónum talið, þótt verð-
mætið sé nokkru minna en árið áður í erlendri
mynt. Fiskifélagið áætlar að verðmæti útfluttra
sjávarafurða hafi verið 57,5 milljarðar í fyrra. í
dollurum talið er um 4% samdrátt að ræða en sé
miðað við svonefnt SDR (vegið meðaltal erlendra
mynta) kemur út 1% verðmætisaukning.
Sumsé: ekkert metár, en heldur ekkert til að
örvænta út af.
ÍSFISKSÖLUR Minna var selt af ísfiski á bresku
mörkuðunum í fyrra en árið áður, hins vegar jókst
ísfiskútflutningurinn til VesturÞýskalands meira
en sem nam þeim samdrætti. Alls var flutt út
60.751 tonn til breskra hafna og hækkaði meðal-
verðið um 9% í pundum en 33% í íslenskum
krónum. Til þýskra hafna var flutt út 35.531 tonn
af ísfiski og hækkaði meðalverðið um 6% í mörk-
um en 33% í íslenskum krónum. 73% af fiskinum
sem landað var í Bretlandi voru flutt út í gámum
en 27% í fiskiskipum. í Vestur-Þýskalandi var
þessu öfugt farið, þangað voru 69% flutt út með
fiskiskipum en 31% í gámum.
ÞORSKUR Á nýliðnu ári var flutt út með fiski-
skipum og gámum 30.391 tonn af þorski til
breskra hafna og taldist það vera 11% heildarafl-
ans á þorski. Er það heldur minna en árin áður,
sala á ísuðum þorski í breskum höfnum hefur
veriö um 36 þúsund tonn síðustu þrjú ár. Meðal-
verðið sem fékkst fyrir þennan þorsk var hins
vegar heldur hærra í pundum talið en áður eða
slétt eitt pund fyrir kílóið. I íslenskum krónum var
meðalverð ársins 92,34 kr. í desembermánuði
var sama háa verðið uppi á teningnum og í nóv-
ember, 1,18 pund fyrir kílóið eða 116 íslenskar
krónur. Sömu sögu er að segja af íslensku fisk-
mörkuðunum, þar fengust að meðaltali 67,60 kr.
fyrir kílóið í desember. Sé litið á allt árið í fyrra varö
verðið lægst í marsmánuði, 43,30 kr. kílóið, en
hæst í október, 69,60 kr., og hélst svipað til ára-
móta. Alls var landað 20.063 tonnum af þorski á
íslensku mörkuðunum þremur í fyrra.
ÝSA Útflutningur á ýsu með gámum eða fiski-
skipum til breskra hafna hefur farið vaxandi und-
anfarin ár og nú er svo komið að liðlega þriðja
hver ýsa — 35% — sem dregin er úr sjó hér við
land endar á uppboði á bökkum Humberfljóts. í
fyrra voru flutt út 16.703 tonn og fyrir kílóið fékkst
1,08 pund eða 101,21 kr. að meðaltali sem er
svipað og árin á undan. Framboðið í desember
var í meðallagi, um 1.300 tonn, og verðið bæri-
legt, 1,18 pund eða 116,57 kr. fyrir kílóið. Á ís-
lensku mörkuðunum var verðið nokkuð gott í des-
embermánuði eða 85,70 kr. fyrir kílóið sem er ívið
lægra en í metmánuðunum september og októ-
ber. Allt árið i fyrra var landað 6.777 tonnum af
ýsu á íslensku mörkuðunum og varð verðið lægst
í marsmánuði, 53 kr. kílóið, en hæst í september,
91,50 kr. kílóið.
KARFI Útflutningur á ísuðum karfa til þýskra
hafna jókst verulega á síðasta ári eða úr 18.554
tonnum í 23.239 tonn. Hlutfall þessa útflutnings af
heildaraflanum varð 26% sem jafngildir því að
fjóröi hver karfi sem veiddist við ísland hafi verið
fluttur ísaður úr landi. Þrátt fyrir þessa aukningu
hækkaði meðalverð ársins og varð 2,64 mörk
eða 80,10 krónur fyrir kilóið. Framboðið í desem-
ber var í meðallagi, um 1.800 tonn, en verðið gott,
2,84 mörk eða 100,94 krónur fyrir kílóið. Verðið á
karfa hefur líka verið í hærra lagi á islensku mörk-
uðunum síðan í september og í desember var það
35,40 kr. fyrir kilóiö. Alls var landað 10.183 tonn-
um af karfa á íslensku mörkuðunum þremur á
árinu sem leið. Varð verðið lægst í júlímánuði, 24
kr. kílóið, en varð komst í október, 37,30 kr. kílóið
að meðaltali.