Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 59

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 59
ALÞJÓÐLEGAR FRÉTTIR ÚR PACIFIC FISHING NOREGUR Eins og íslendingar hafa Norðmenn áhyggjur af þeim laxi sem sleppur úr eldiskvíum. Hafa þeir gert töluverðar rannsóknir á því hvað um þann fisk verður sem sleppur úr kvíunum og ætla að halda þeim áfram. Því hefur veriö haldið fram að eldisfiskur geti valdið erfðamengun í villt- um laxastofnum og einnig borið smitsjúkdóma í þá. Asmund Bjordal, sérfræðingur við norsku hafrannsóknastofnunina segir að enginn viti í raun hvað við tekur hjá þeim fiski sem sleppur úr kvíunum.,, Við vitum ekki hversu lengi hann er á sveimi í námunda við kvíarnar og hvaða ferðalög hann tekur síðan upp. Ef við komumst að því getum við fundið upp aðferðir til að ná sem mestu af flóttafiskinum aftur,“ segir Bjordal og bætir þvl við að fyrri rannsóknir hafi leitt í Ijós að laxinn hafi sjaldnast nokkurn raunverulegan áhuga á að yfir- gefa kvíarnar. NOVA SCOTIA Fiskimenn á Nýja Skotlandi reka nú áróður fyrir nauðsyn þess að stemma stigu við offjölgun gráa selastofnsins við strendur landsins en hann veldur miklum skemmdum á veiðarfær- um þeirra. Selurinn veitir fiskimönnum einnig harða samkeppni um fiskinn í sjónum því talið er að fullvaxinn selur éti 10-20 kg af fiski á dag. Gráselastofninn við Nova Scotia er talinn vera 30-40.000 dýr og á hverju ári fæðast 3-5.000 kópar. Því má leiða að því getum að stofninn éti yfir 300.000 tonn af fiski árlega. Auk þess breiðir selurinn út hringorm sem eykur kostnaö fisk- vinnslunnar á Nova Scotia um hálfan annan millj- arð króna á ári. NÝJA-SJÁLAND Veiðiþjófnaður er vaxandi vandamál á Nýja-Sjálandi og vex í takt við aukið atvinnuleysi, verðbólgu og verðhækkanir á fiski. Einkum eru það grunnsævistegundir sem verða fyrir barðinu á þjófunum og er td. talið að ólögleg- ar veiðar á fisktegund sem heimamenn nefna paua séu hartnær jafnmiklar og þær sem leyfðar eru. Tilraunir yfirvalda til að koma á kvótakerfi í fiskveiðum hafa orðið til að auka veiðiþjófnaðinn. Tækni veiðiþjófanna hefur tekið miklum framför- um, auk þess sem yfirvöld telja að þeir hafi komið sér upp viðamiklu dreifingarkerfi og notið við það aðstoðar skipulagðra glæpasamtaka. Slík sam- tök líta á sektir sem beitt er gegn þeim fáu sem staðnir eru að verki sem hvern annan sjálfsagðan kostnaðarlið í bókhaldinu. ÍRLAND Samtök umhverfisverndarsinna á sunn- anverðu írlandi, Earthwatch að nafni, hafa gefið út skýrslu þar sem greint er frá rannsóknum á mengun sem stafar af rekstri fiskeldisstöðva við strendur (rlands. Einkum hafa samtökin áhyggjur af útbreiöslu efnisins Nuvan 500 EC en það er notað til að eyða fiskilús sem herjar á eldisfiskinn. Þetta efni er eitt af þeim 26 efnum sem lífríki Norðursjávar stafar mest hætta af en það er talið drepa ýmislegt fleira en lýs og geta valdið tjóni á villtum fiskstofnum. Bent er á að í Noregi hafi aukin dánartíðni á humri og krabba verið rakin til svipaðs efnis. í skýrslunni er mælt með því að eldisstöðvarnar fækki fiski í kerjunum og athugi hvort ekki megi beita ferskvatnsböðum til að út- rýma lúsinni. Einnig er bent á þá möguleika að flytja eldisstöðvarnar í sjó sem ekki er eins saltur en við það fækki lúsinni sjálfkrafa, að seiðin séu alin lengur í kerjum á landi, eða að í kerin með eldisfiskinum séu settir smáfiskar sem lifa á fiski- lús. Loks er lagt til að sett verði löggjöf um notkun efna í fiskeldi og þurfi hún einnig að ná til annarra efna, svo sem ammóníakblöndu sem notuð er til að sótthreinsa svil, formalín og spanskgrænu sem notuð er til að lækna fisk af nýrnaveiki. NOREGUR Norska hafrannsóknaráðið hyggst taka í notkun dvergkafbáta til að athuga ýmsa fiskstofna sem lifa á miklu dýpi. Eínkum er þá átt við lýsu, karfa, grálúðu og smokkfisk. Dvergkaf- bátarnir hafa hingað til eingöngu verið notaðir til að kanna aðstæður á hafsbotni þar sem ætlunin er að bora eftir olíu. Þeir geta starfað á yfir 200 faðma dýpi og eru búnir myndbandsupptökuvél- um, bergmálsmælum og sónartækjum. KYRRAHAF Draanótaveiðar fiskiskipa frá Tai- wan, Japan og Suður-Kóreu valda þjóðum í sunnanverðu Kyrrahafi æ meiri áhyggjum. Stjórnvöld í Ástralíu hafa tekið upp samstarf við önnur ríki á þessum slóðum um að hamla gegn þessum veiðum sem taldar eru valda verulegum usla í lífríkinu. Bátarnir draga á eftir sér gríðarmikl- ar nætur, oft allt að 30 mílur að lengd, á miklum hraða og sækjast einkum eftir túnfiski. Auk þess að stuðla að rányrkju túnfisksins vili festast mikið af öðrum fisktegundum og einnig háhyrningum í nótunum. Áströlsk stjórnvöld lögðu fyrir fjórum árum bann við því að bátar notuðu lengri nætur en 2,5 mílur í fiskveiðilögsögu landsins með þeim afleiðingum að veiðarnar hættu að borga sig og lögðust af. Bátarnir færðu sig þá utar á alþjóðleg hafsvæði þar sem engin stjórnvöld geta bannað þeim að athafna sig. Fiskveiðiþjóðir í Kyrrahafi hafa beint því til ríkisstjórna Taiwans, Japans og Suður-Kóreu að þærstöðvi þessa rányrkju. Hefur sú beiðni borið þann árangur að kóresku bátarnir hafa snúið sér að öðrum veiðum og japönsk stjórnvöld íhuga að taka upp harðara eftirlit með veiðunum og jafnvel að koma á einhvers konar aflatakmörkunum fyrir dragnótabáta. Lítil við- brögð hafa hins vegar komið frá Taiwan en þaðan eru langflestir dragnótabátanna, á síðustu vertíð voru 130 bátar frá Taiwan af alls 163 bátum sem veiðarnar stunduðu. VÍKINGUR 59

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.