Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1990, Page 12
9
SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN
12 VÍKINGUR
Svona sýning er því tvímæla-
laust mjög hagkvæm fyrir þá
sem starfa aö sjávarútvegi og
þeim verður endilega aö halda
áfram.
Gunnar Ragnars, forstjóri
Útgerðarfélags Akureyringa.
Ég held aö hún hafi tekist
ágætlega, veriö vel skipulögö
og - já, tekist ágætlega. Ég veit
nú ekki hvort ég get tekið eitt-
hvaö eitt til, sem mér þótti at-
hyglisverðara en annað. Þaö
var svo áður fyrr aö menn fóru
til kirkju til aö sýna sig og sjá
aðra, og mér er líkt farið hvaö
svona sýningar snertir. Þar sér
maður hlutina og getur gengið
aö mönnunum á einum stað,
hitt marga framleiðendur og
séö og heyrt hvaö þeir eru með
á prjónunum, allt á sama
staðnum og sama tíma. Þaö er
þetta sem mér þykir þægileg-
ast við svona sýningar.
Hvað gildi svona sýningar
áhrærir vísa ég til þess sem ég
sagöi hér að framan. Ég held
að þetta hafi mjög mikið gildi
þannig að þar hittast menn og
koma saman. Maður hittir
þarna menn úr hinum ýmsu
samtökum innan sjávarútvegs
og framleiðenda og það gefur
þessu mikið gildi.
Nei, sjávarútvegssýning hef-
ur ekki haft bein áhrif á val mitt
á búnaði fyrir skip. Það kann að
vera að þar kvikni fyrsti neist-
inn, en ég fer ekki á sýningu til
að versla, það gerist öðruvísi.
Ég veit í sjálfu sér ekkert um
þetta, en mér dettur í hug að
framboðið sé bara orðið allt of
mikið. Á þessu ári eru margar
sjávarútvegssýningar í Evrópu,
allt of margar, og það er mjög
slæmt. Ef aðeins væri ein sýn-
ing á þessu svæði á ári, sýning
sem væri orðin viðurkennd og
þekkt, þá kæmu menn þar
saman, en ef það á að fara að
dreifa þessu svona mikið óttast
ég að þær útþynnist. Það er
ástæða til að varpa því til sýn-
enda, eða þeirra sem skipu-
leggja sýningamar, hvort ekki
sé orðið allt of mikið af þessu.
— Ættum við þá að hætta að
hafa sýningar hér?
Auðvitað vill enginn hætta.
Það er gífurlega mikill akkur
fyrir okkur að hafa svona sýn-
ingu hér á landi. En eins og ég
sagði; ég held að það sé orðið
of mikið framboð af þeim.
Þorsteinn Árnason vélfræð-
ingur, starfsmaður Siglinga-
málastofnunar í Vestmanna-
eyjum og stjórnarmaður í
FFSÍ.
Mér þótti sýningin skemmti-
leg og víðtæk, þar var margt að
sjá.
Það sem mér þótti athyglis-
verðast voru auglýsingarnar
frá erlendum löndunarhöfnum,
þar sem þær voru að kynna sig
og auglýsa, mér þótti það einna
merkilegast. Það er svo gaman
að sjá hin ýmsu tæki, sem voru
sýnd, en ég veit ekki hvort þau
voru í sjálfu sér svo merkileg
eða nokkrar nýjungar. Ég les
mikiö af tækniritum og ég tók
ekki eftir neinu, sem ég var ekki
búinn að lesa um eða sjá áður.
Ég tel að svona sýningar hafi
mikla þýðingu fyrir sjávarútveg
og sjómenn, einkum auglýs-
ingagildið, því maður sér þar
ýmislegt sem maður man frek-
ar eftir þegar á því þarf að
halda. Það er líka mikils vert að
sjá þetta allt á einum stað og
geta gert samanburð.
Það er vel hugsanlegt að
sýning geti haft áhrif á val á
tækjum, ef maður er í þeim
hugleiðingum á þeim tíma sem
sýningin stendur yfir.
Ég held að minni aðsókn nú
en áður sé alls ekki merki um
dvínandi áhuga. Miklu frekar
held ég að aðstandendur sýn-
ingarinnar hafi rétt fyrir sér í því
að þeir sem komu nú séu kjarni
atvinnumanna og í sjávarút-
vegi en aðrir gestir hafi verið
færri. Ég held að á meðan ein-
hver þróun er í þessum málum
eigi sjávarútvegssýningar
framtíð fyrir sér og ég vil ekki að
þær leggist af.
Krlnglunnl.
Útbúum lyfjakistur
fyrir skip og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfjaskrín
fyrir vinnustaði, bifreiðar og
heimili.
Almennur sími 689970.
Beinar línur fyrir
lækna 689935.