Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1990, Side 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1990, Side 60
„EG SKIPTI Gámur skrifar í vor er leið þegar sjómenn voru að reyna að ná nýjum kjarasamningum, sem raunar snérust ekki um annað en að fá olíukostnaðarhlutdeildina lækkaða, bentu menn einmitt á hættuna á því sem nú hefur gerst, ofsahækkun á olíu. Eins og menn muna voru útgerðarmenn ekki til viðtals um eitt né neitt þá. Verkfalli var skotið á frest en nú hafa yfirmenn á fiskiskipum boðað verkfall frá 20. nóvember næstkomandi. Mörgum þótti skrýtið hve seint sjómannafélögin öfluðu sér verkfalls- heimilda í vor er leið. Vertíðin var búin og verkfall hefði orðið máttlaust. Það vekur einnig furðu að boða til verkfalls 20. nóvember, þegar mest allur fiskikvóti skipanna er uppurinn. Enda er sagt að Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, hafi glott út í annað þegar honum voru boðuð tíðindin um verkfall 20. nóvember. Útgerðarmönnum er alveg sama um verkfall þar til vetrarvertíð hefst í janúar. Þá myndi verkfall hafa tilætlaðan árangur. Alltaf öðru hvoru heyrast sögur um nýjar að- ferðir til að komast fram hjá hinu óvinsæla kvóta- kerfi. Þeir bátar sem selja afla sinn á erlenda markaði verða fyrir kvótaskerðingu sem kunnugt er. Nú landa þessir bátar í gáma í nafni einhverra trillubáta sem eru innan við 6 tonn og eru því að veiða úr einum kvótapotti og verða því ekki fyrir neinni skerðingu við að selja aflann út í gámum. Við höfum heyrt dæmi um að menn eigi 6 tonna trillur sem aldrei fari á sjó en alltaf er verið að flytja út afla frá þeim í gámum. Það munu vera ár og dagar síðan fiskvinnslan í landinu hefur haft það jafn gott og um þessar mundir. Það er ekki bara að fiskverð erlendis sé það hæsta sem sögur fara af, bæði hjá frysting- unni og þá ekki síður á saltfiski, en verð hans hefur hækkað um 60% í dollurum á þessu ári, heldur hefur verð fyrir gámafisk á mörkuðum í Englandi og Þýskalandi aldrei verið jafn hátt og nú. Á sama tíma er stór hluti sjómanna aðeins með verðalagsráðsverð plús einhverja smá upp- bót fyrir fiskinn. Véla- og skipa- þjónustan FRAMTAK HF Kennitala 420588-1949 Stapahrauni 6 — Sími 91-652556 Alhliða vélaviðgerðir Rennismíði Plötusmíði Magnús Aadnegard, sími 50561 Þór Þórsson, sími 651643 Óskar Björnsson, sími 51325 Við viljum leysa vanda þinn. Velkominn vertu vinurinn. Alhliða rennismíði og fræsivinna nýsmíði og viðgerðir. — Endurbyggjum bensín- og díselvélar. — Slípum sveifarása, borum blokkir. — Plönum hedd, blokkir o.fl. — Réttum af höfuðlegusæti í blokkum. — Gerum viö kambáslegusæti í heddum. — Rennum ventla og ventilsæti. — 25 ára reynsla í málmsprautun á slitfleti, t.d. vökvatjakkstangir slit undan legum o.fl. Yfir 50 ára reynsla í viðgerðum. Vélaverkstæðið EGILL hf. Smiðjuvegi 9A — Sími 91-44445 - 200 Kópavogi.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.