Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1994, Side 20
VÍKINGUR
200 tonn. Á þessum tíu árum fjölgaði
veiðiskipum umtalsvert. Smábátum,
undir 10 tonnum, fjölgaði mest og
skipum stærri en 500 tonn fjölgaði um
42.
Það hefur verið trú margra að
vertíðarbátum hafi fækkað, en sú er
einmitt raunin. Bátum frá 25 til 200
tonn hefur fækkað um 45 á þessum 10
árum. Þá hefur skipum frá 200 til 500
tonn fækkað um 15 á sama tíma.
I opnunni fyrir framan má sjá súlu-
rit sem skýra þær breytingar sem
orðið hafa á stærð fiskiskipaflotans
frá því kvótakerfið tók gildi, í ársbyrj-
un 1984.
Vegna mistaka er súlan yfir smæstu
bátana röng, en þeir eru tæplega
2.500.
Vigri er einn af þessum nýju stóru
togurum, en þeim hefurfjölgað mikið
á síðstu árum. Sama má segja um
smábátana á „kvótaáratugnum".
Útflöggun fiskiskipa:
Kanadatogararnir
mega koma „heim“
- sem og önnur fiskiskip sem skráð hafa verið í öðrum löndum
Alþingi samþykkti, á síðustu starfs-
dögum sínum í vor, að öll þau
fiskiskip sem Islendingar eiga og eru
skráð undir erlendum fánum megi hér
eftir skrá hér á landi. Gerð er undan-
tekning varðandi aldursregluna. Þessi
skip öðlast samt ekki veiðirétt í ís-
lenskri lögsögu.
Það eru fleiri takmarkanir, í sam-
þykkt Alþingis, en hvað varðar ald-
ursregluna. Lögin ná aðeins til skipa
sem Islendingar eignuðust á tímabil-
inu frá 1. september 1992 til 30. apríl
1994.
Það hefur því verið opnuð smuga
vegna þeirra skipa sem þegar er búið
að kaupa.
Marel skipavogir
Markviss vinnubrögð - aukin verðmæti
Traustar - öruggar - áreiðanlegc
Marel hf. Höfðabakki 9 112 Reykjavík
Sími: 91-878000 Fax: 91-878001 Telex: 2124 MARELIS
20