Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 41
VÍKINGUR
p\ónus
tusídur
Umsjón: Olafur A. Guðmundsson
Hjónin Kristbjörg Ólafsdóttir og Kristján Richter í anddyri
fyrirtækisins.
Heildverslun K.
Richter 25 ára
K. Richter heildverslun var
stofnuð í bílskúr á Sunnuflöt
27 í júlí 1970 af hjónunum
Kristjáni Richter og Krist-
björgu Olafsdóttur. Fyrirtækið
fagnaði því 25 ára afmæli í
sumar.
Eins og hjá mörgum öðrum
fyrirtækjum var byrjað smátt.
Upphaflega voru söluvörurn-
ar islenskir vettlingar og sleik-
ibrjóstsykur. Hjónin hjálpuð-
ust að við reksturinn. Kristján
fór í söluferðir um landið, en
Kristbjörg sá um skrifstofu-
störfin. Fljótlega bættust við
kústar frá Burstagerðinni.
Þegar fyrirtækinu hafði vaxið
fiskur um hrygg hófst innflutn-
ingur á árinu 1974 og voru
það gúmmíhanskar frá
Þýskalandi ásamt burstum.
Fyrirtækið stækkaði smám
saman og var fyrsti starfs-
maðurinn ráðinn árið 1973. I
dag eru 4 sölumenn starfandi
við fyrirtækið en starfsmenn
eru alls 1 2.
Fyrirtækið flutti árið 1 984 í
eigið húsnæði að Smiðsbúð
5, en það er 860 fm að
stærð. Sala fyrirtækisins er
um 150 milljónir króna á ári.
Það kann að koma sumum á
óvart að aðalsöluvara heild-
verslunarinnar eru íslenskar
DNG og
Sjóvélar
sameinast
Fyrirtækin DNG og Sjóvélar
hafa nú ákveðið að sameina
krafta sína við framleiðslu og
markaðssetningu tölvustýrðra
færivinda og sjáfvirkra línuk-
erfa. Markmiðið með sam-
einingunni er að mynda sterkt
lamir frá Lamasmiðjunni í
Reykjavik. Það er engu að
síður staðreynd. Einnig má
nefna pensla frá Penslum í
Hafnarfirði og íslenskar máln-
ingarrúllur. K. Richter býður
úrval af handverkfærum fyrir
málara, múrara og trésmiði
og eru þær í smásölu í öllum
helstu byggingarvöruver-
slunum á höfuðbor-
garsvæðinu.
Kristján segir að mörg smá-
fyrirtæki framleiði ágætar
vörur, en oft sé markaðsset-
ningin og sölumennskan það
sem standi þeim fyrir þrifum.
Þess vegna hefur fyrirtækið
alltaf lagt áherslu á að selja
íslenskar vörur jafnframt inn-
flutningnum.
fyrirtæki með sérhæfingu í
þróun, framleiðslu og sölu
búnaðar til krókaveiða. Fyrir-
tækið verður staðsett bæði á
Akureyri og á höfuðborgar-
svæðinu og getur því sinnt
viðskiptavinum enn betur.
Meðal nýjunga hjá fyrirtæk-
inu er C-6000i-vindan, sem
er sjötta kynslóð færavinda
frá DNG. Akveðin markmið
voru sett i upphafi um þróun
vindunnar, svo sem um
þyngd, straumnotkun, útlit,
fyrirferð og ýmsar tækni- og
framleiðslubreytingar. Það
má segja að þessi markmið
hafi náðst.
Undanfarin fimm ár hafa
Sjóvélar unnið að þróun
sjálfvirks línukerfis fyrir stóra
og smáa báta. Línukerfið
samanstendur af línuspili,
uppstokkara, beitingatrekt,
beituskurðarhníf og maga-
sínum þar sem línan er
geymd. Nú er búið að setja
fjögur slík kerfi í báta og eitt
hefur verið í notkun frá því í
maí og gengið mjög vel.
Pi6i.usW*ídur