Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 65
kringum sig þó að það sé stórhríð, þoka
og hvaðeina.“
DREYMIR FYRIR SLÆMU VEDRI
Tæknin er mikil og er mönnum til
trausts og halds á siglingum og við
veiðar. Aðurfengu menn vísbendingu
í draumum og fyrirboðum. Hvernig
var þessu háttað með þig?
„Mig dreymir aðallega fyrir veðri. Það
er sama með Hreiðar son minn. Afi
hans, Sigmundur, kemur til hans en segir
ekkert. Hann kemur bara í draumi í
gömlu peysunni sinni brosandi og þá fer
Hreiðar ekkert á sjó þó að það sé fínasta
veður.
Það var fyrir þremur eða fjórum árum
að Sigmundur hafði birst honum í
draumi, en Hreiðar fór niður á bryggju
og hitti trillukarl sem var með línu-
stampana á vagni á leið á sjó. Hreiðar
sagði karlinum að Sigmundur hefði
komið til sín í draumi og að hann ætlaði
ekki á sjó. Karlinn sneri þá við og hætti
við að fara á sjóinn. Sá þriðji var frammi
á bryggju og var búinn að taka línuna
um borð. Hreiðar sagði honum hvers
kyns var, en karlinn sagði að það væri allt
í lagi með sig og togarinn Kolbeinsey
væri á sjó.
Það var ekkert meira með það, nema
þremur og hálfum tíma seinna voru
menn komnir á bílum út í Breiðuvík. Þá
var komið vestanrok og björgunarsveitin
komin á staðinn. Hreiðar sagðist aldrei
hafa talað um þetta við karlinn. Það
haggast aldrei með svona drauma. Þó að
Sigmundur segði ekkert í draumunum
kom hann bara og gerði vart við sig. Nei,
það bregst aldrei með svona drauma.“
SJÓSÓKNARLOK
„Svo var það fyrir þremur árum að
Hreiðar kom með bíl og krana niður á
bryggju. Það var vinur okkar sem var
búinn að taka þannig upp báta í fjölda-
mörg ár. Þeir slógu bara á trilluna en ég
forðaði mér upp og settist á bryggju-
polla. Þeir fóru með hana. Ég var farinn
að finna fyrir því að ég var enginn maður
til að fara meira á sjóinn. Þá datt mér í
hug þessi vitleysa:
Ofi þó lífi á ólgusjó,
aldan kasti fleyi.
Hann sem œvibrautir bjó,
bregðast mun þér eigi.
Þetta orti ég þegar báturinn var tekinn
í land og svo labbaði ég upp bryggjuna.
Ég hefi ekki farið um borð síðan. En
trillan mín, Hafdís, er núna í Safna-
húsinu.“
SESTUR í HELGAN STEIN
Nú ertu heilsuhraustur öldungur,
búinn að vera farsæll sjómaður í 68
ár. Lumarðu ekki á skilaboðum til
unga fólksins? I hverju er ham-
ingjuríkt líffólgið?
„Mér er afskaplega vel til unga
fólksins. Lífshamingjan er fólgin í því að
vera reglusamur og heiðvirður. Ég er
alveg eyðilagður yfir því hvað fólk er
gefið fyrir að taka ófrjálsri hendi. Mér er
alveg ómögulegt að skilja að það skuli
ekki vera hægt að lifa öðruvísi og vinna
heiðarlega fyrir brauði sínu. En ég þekki
margt af ungu fólki og það er alveg skín-
andi gott fólk, þó að of margir afvega-
leiðist. Það er ekki að gerast núna fyrst
en það er eitrað meira fyrir það núna en
verið hefúr. Miklu, miklu fleiri hafa því
fallið í freistni. En flest af unga fólkinu er
alveg skínandi góðir unglingar. Unga
fólkið er kátt og skemmtilegt.
Ef eitthvað hefur farið úrskeiðis á eldra
fólkið alveg eins mikla sök á því.“
Jósteinn Finnbogason lést skömmu eftir að
viðtalið var tekið.
Gleðileg jól!
Sjómannablaðið Víkingur
HLJÓODEYFAR
FYRIR VÖKVAKERFI
Á HAGSTÆÐU VERÐI
Við framleiðum hljóðdeyfa fyrir öll vökvakerfi.
Hljóðdeyfarnir jafna út þrýstibylgjur frá
háþrýstidælum við dæluna sjálfa og koma
þannig í veg fyrir að hljóð berist með vökvanum
um kerfið. Einfalt, árangursríkt og ódýrt
LANDVEiAfíHF
SMIÐJUVEGI 66 KÓPAVOGI - SÍMI 557 6600
65