Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 35
Ragnhildur Hjaltadóttir, formaður Rannsóknarnefndar sjóslysa, er lögfræðingur að mennt. Hún er skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu og fór í nefndina að beiðni ráðherra. Hún er jafnframt fyrsta konan sem tekur |>ar sæti. Sjóslys eru ekki náttúrulögmál „Mér hefur fundist að ég sé að launa honum afa mínum, Erlendi Ólafssyni, góðmennskuna með srarfi mínu fyrir Rannsóknarnefnd sjóslysa. Afi var bátsmaður á Kveldúlfs- togurunum lengst af og síðan á Súðinni og strandferðaskipinu Esju. Við bjuggum nálægt afa og ömmu þegar ég var barnog seinustu árin sem hann lifði bjó hann á heimili foreldra minna. Eg er elsta barnabarnið og var mikið með honum,“ segir Ragnhildur. „Afi minn bar þess merki að hafa verið sjómaður alla tíð. Hann steig náttúrulega ölduna og hafði fjórar tær á öðrum fæti af því hann hafði orðið fyrir slysi um borð. I gegn- um hann bast ég sjómannastéttinni sterkunt böndum. Mér finnst ekki neitt sjálfsagt mál að sjómenn beri líkamleg merki starfs síns.“ Langafi Ragnhildar í föðurætt var Hjalti Jónsson skipstjóri, Eldeyjar-Hjalti, sem margir sjómenn kannast við. Síðan hafa ekki verið sjómenn í nánustu fjölskyldu hennar. „Þótt ég sé ekki alin upp á sjómannsheimili hafði starf Erlendar afa sterk áhrif á heimilisbraginn. Hann átti þrjár dæt- ur og mamma er ein þeirra. Þær borða saman í hádeginu og hækka alltaf í útvarpinu þegar veðurfréttirnar byrja! Það er arfur þeirra af æskuheimilinu, sem flyst áfram til næstu kynslóða." NEFNDIN Á EKKI EINGÖNGU AÐ KANNA ORSAKIR Ragnltildur segir að til þess að fjalla um málefni sjómanna þurfi að skynja heim þeirra og bera hlýjan hug til þeirra. Starf þeirra sé erfitt, unnið fjarri landi, og almenningur þekki því ekki mikið til sjómennsku. Mikill munur sé þó á höfuðborg- inni og landsbyggðinni í þessum efnum þar sem í Reykjavík alist upp kynslóð dæmigerðra borgarbarna. „Því miður er hinn mannlegi þáttur meginorsök sjóslysa. Að mínu mati á aðalhlutverk svona nefndar ekki eingöngu að vera að kanna orsakir einstakra slysa heldur elcki síður að bera fram tillögur til að fækka slysum urn borð,“ segir Ragnhildur. „Rannsóknarnefnd sjóslysa ltefur aðstöðu til þess að koma þeim tillögum á framfæri. Til dæmis getur nefndin vakið athygli Siglingamálastofnunar á ákveðnum öryggisatriðum sem þarf að taka til athugunar í reglulegri skipaskoðun. Það hefur verið töluvert um skipsbruna að undanförnu. Við höfum óskað eftir samstarfi við Rannsóknarlögreglu ríkisins til að kanna hvað veldur bruna um borð í skipum. Er það í hönn- un skipanna eða umgengnin um þau eða eldavélarnar sem valda brunanum?" Rannsóknarnefndin tekur saman niðurstöðu eftir rannsókn á hverju slysi. Mjög oft kemur nefndin með tillögur til úrbóta og eftir ákveðinn fjölda slysa af sömu orsök vekur nefndin sérstaka athygli á því. Ragnhildur nefnir sem dæmi að mörg vinnuslys hafi orðið um borð af því verkstjórn og vinnulagi sé ábótavant. 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.