Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 15
á undanförnum árum. Ég skai taka
dæmi sem skýrir málið. Þegar spurt er í
dag hversu mikið af fiski sé á miðum
norðan Islands fást engin svör. Svörin
fást ekki vegna þess að enginn hefur
lengur möguleika á að stunda veiðar á
svæðum þar sem ekki veiðist blandaður
afli annarra fisktegunda en þorsks. Þetta
sést fljótt þegar skoðuð er sókn t.d. tog-
ara á norðurmið, hún er nánast engin.
Rannsóknir eru líka nánast engar utan
togararalls. Enginn getur því lengur sagt
til um hversu mikið er um þorsk á
norðurmiðum, né hvernig samanburður
er þar við fyrri ár eða áratugi. Saman-
burðarmusterið er ónýtt að þessu leyti og
togararall eitt sér dugar ekki á uppeldis-
slóð með jafnbreytilegum hitafars- og
náttúruskilyrðum sjávar.
ÞESSU SVÖRUÐU SJÓMENN
SJÁLFIR
Kvótabraskið, eins og við sjómenn
köllum það, er einn angi þessa stjórn-
kerfis fiskveiðanna. Að stærstum hluta
snerist það verkfall, sem fiskimenn boð-
uðu til, um að finna aðferð til að koma í
veg fyrir að sjómenn tækju beint eða
óbeint þátt í kvótakaupum útgerðar-
manna. Jafnframt var ástæða verkfallsins
sú að kjarasamningar fiskimanna höfðu
verið lausir í tvö ár og gera þurfti nýja
samninga um fjölmargar veiðigreinar og
vinnsluaðferðir sem teknar hafa verið
upp á fiskiskipaflotanum ásamt veiðum
á fjarlægjum miðum síðastliðin 3-4 ár.
Því var haldið fram af útvegsmönnum í
áróðursskyni að þetta væri verkfall sjó-
mannaforystunnar en sjómenn vildu
óbreytt ástand. Þessu svöruðu sjómenn
sjálfir á mjög skýran og viðeigandi hátt
þegar reynt var að Ijúka aðgerðum með
því að bera miðlunartillögu ríkissátta-
semjara undir atkvæði. Hún var kolfelld
og jafnvel forystumenn útgerðarmanna
áttuðu sig á því að gera yrði samninga
við sjómenn ef ljúka ætti deilunni. Að-
eins fimm dögum eftir að miðlunar-
tillagan var felld var gerður nýr kjara-
samningur, sem sjómenn samþykktu
með 80% atkvæða. Ég verð að segja það
hreint út að verkföll eru algjört
neyðarúrræði og afar leitt að forysta LÍÚ
skuli aldrei fást að raunverulegu samn-
ingaborði án þess að þjóðfélagið beri af
því verulegan skaða vegna verkfalls. I
þessu tilfelli voru þeir fjölmörgu út-
gerðarmenn, sem alltaf hafa staðið rétt
að málum, alltofvægir í gagnrýni sinni á
þá félaga sína sem héldu uppi kvóta-
braski með þátttöku sjómanna. Ef sam-
tök útgerðarmanna hefðu beitt sér gegn
þátttöku sjómanna í kvótakaupum, en
ekki varið þau óheillavinnubrögð, hefðu
þeir heiðarlegu ekki orðið af þeim
tekjum sem raun ber vitni.
Það er engan veginn nóg að
fá stuðningsyfirlýsingar við
löglega boðað verkfall en
síðanfá skipin alla þá
þjónnstu sem þau þurfafrá
verkalýðsfélögum við lönd-
un aflans.
ÞÓTT RÁÐHERRA SEGI AÐ UM
LÖGBROT SÉ AÐ RÆÐA
Ég ætla rétt að vona að næstu kjara-
samninga fyrir fiskimenn megi gera án
verkfalla. Þær fáu útgerðir, sem með
ólögmætum hætti komu sér undan þát-
ttöku í þessum aðgerðum, sýndu okkur
samt sem áður að samstaða verkalýðsins í
landinu er ekki til staðar þegar á reynir.
Það er engan veginn nóg að fá stuðn-
ingsyfirlýsingar við löglega boðað verk-
fall en síðan fá skipin alla þá þjónustu
sem þau þurfa frá verkalýðsfélögum við
löndun aflans. Vinnulöggjöfm virðist
vera þannig úr garði gerð að refsiréttur
hennar við brotum og sektarákvæði
hræða ekki og stjórnvöld gera ekkert
þótt ráðherra segi að um lögbrot sé að
ræða.
KÖTTUR í KRINGUM HEITAN
GRAUT
Með hverju árinu sem líður án þess að
við hefjum hvalveiðar fjölgar þessum
sjávarspendýrum á fiskimiðum við ís-
land. Að mínu viti hafa íslensk stjórn-
völd verið eins og villuráfandi sauðir í
afstöðunni til hvalveiða undanfarin ár.
Stundum hefur átt að setja fram stefnu
um veiðar en ávallt, þegar átt hefur að
knýja á um afgerandi stefnumörkun til
að hefja veiðar, hefur verið farið með
málið líkt og köttur í kringum heitan
graut. Þessi vingulsháttur er gjörsamlega
óþolandi. Ef svo heldur fram sem horfir
næstu ár og áratugi gæti framtíðin orðið
sú að við gætum lítið veitt vegna afáts
friðlýstra dýra á fiskimiðum. Ég legg til
að þegar næsta vor hefjist að nýju
hvalveiðar hér við land.
ALGJÖRT TÓMLÆTI AF HÁLFU
STJÓRNVALDA
Við höfum talið að sú stefnumörkun,
að reyna að efla útgerð farskipa hérlendis
með bættum samkeppnisskilyrðum út-
gerða og sjómanna í vöruflutningum,
væri til góðs og höfum beint því til ráða-
manna að gera breytingar á lögum í
þessa veru eftir að úttekt á stöðu og sam-
keppnisskilyrðum kaupskipaútgerða
hefur farið fram, en eftir því höfum við
óskað við stjórnvöld. Eins og við upplif-
um raunveruleikann í dag við þessum
hugmyndum FFSI þá ríkir algjört tóm-
læti af hálfu stjórnvalda um þennan
hluta atvinnusköpunar Islendinga.
Hugsanlega vegna þess að
Jórna þyrfti einhverjum
núgildandi skattaprósent-
um sem síðar gætu komið til
baka í meiri umsvifum og
fjölgun starfa.
ÞÁ LYPPAST RÁÐAMENN NIÐUR
Það er mikið talað um að efla hér
atvinnu og reisa eitt stykki álver, en þegar
bent er á atvinnu sem fyrir er í landinu,
og mætti auka ef vel væri að samkeppni
búið, þá lyppast ráðamenn niður.
Hugsanlega vegna þess að fórna þyrfti
einhverjum núgildandi skattaprósentum
sem síðar gætu komið til baka í meiri
umsvifum og fjölgun starfa. En þurfi að
slá af tekjum til íslands vegna sölu á
orku, sem þegar er fjármögnuð af ís-
lenskum heimilum og atvinnulífi, má
vinna út frá langtímasjónarmiðum um
aukna atvinnu og tekjur síðar. Ég stóð í
þeirri meiningu, þegar ég greiddi
atkvæði með aðild að EES-samningn-
um, að það þyrfti að gera íslenskt at-
vinnulíf samkeppnisfært á öllum sviðum
ef vel ætti að búa að íslenskri framtíð.
Mér finnst verulega skorta á að svo sé,
þegar farmenn og atvinna þeirra er rædd
við ráðamenn Islands.
VIKINGUR
15