Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 38
Verðið er algjört
ævintýri en
kvótinn er lítill
Skipverjarnir á Guðmundi Jenssyni í
Ólafsvík voru að gera sig klára til að
leggja netin. Fannar Guðmundsson,
Sölvi Þórðarson og Illugi Jens Jónasson
skipstjóri eru ánægðir með fiskeríið og
telja þorskverðið ævintýralegt.
„Það hefur gengið svona upp og ofan á
netaveiðunum í haust,“ segir Illugi Jens,
skipstjóri á Guðmundi Jenssyni frá
Ólafsvík. „Við fiskum bara meira en við
megum og vantar því kvóta. Núna erum
við búnir með fjórðung af kvótanum
þegar ekki eru Iiðnir nema tveir mánuðir
af kvótaárinu. Við róum að meðaltali
tólf daga í mánuði til að spara kvótann.
Þótt það sé ágætt að snúast í kringum
konurnar eru tekjurnar of lágar.“
Þegar Illugi Jens er spurður um stærð
bátsins segir hann stærð vera afstætt hug-
tak. Báturinn var 9,9 tonn í upphafi og
er núna 44 brúttótonn. Síðan er búið að
lengja hann og breyta.
„Við áttum stærri bát en seldum hann
og settum kvótann yfir á Guðmund, sem
hefur mestan þorskkvóta allra báta af
sambærilegri stærð. Báturinn sem við
seldum var 80 tonn og við einfaldlega
minnkuðum við okkur til að aðlagast
aðstæðum. A þessum bát erum við fjórir
en vorum átta á hinum.“
AFLINN Á MARKAÐ OG I
SALTFISK Í REYKJAVÍK
Og er verðið sanngjarnt?
Verðið er algjört ævintýri, því við
erum bara að fiska stóran fisk og fáum
gott mat,“ segir Illugi.
Hann segir að meðalsiglingartíminn á
miðin sé tuttugu mínútur til klukku-
stund yfir veturinn en um sumarið séu
þeir allt að þrjá tíma á miðin.
En þrátt fyrir að Illugi Jens sé með
stúdentspróf og sveinspróf í rafvirkjun
vill hann heldur vera á sjó.
„Ég er engan veginn dæmdur til að
vera sjómaður, en ég get ekki séð mig í
því að stimpla mig inn klukkan átta og
út klukkan fimm.“
Jóhanna A.H. Jóhannsdóttir
Strákarnir á Guðmundi Jenssyni voru að gera klárt.
38