Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Blaðsíða 13
sá dagur að hann hugsi ekki til
10. mars og þeirra atburða
sem hann upplifði þá.
Þar sem frá var horfið
„Vertíðin var búin að vera
góð. [ janúar fengum við 100
tonn, 180 tonn í febrúar og þá
fjóra daga sem við drógum í
mars, fengum við 55 tonn. Eftir
óhappið vissi ég ekki hvað biði
mín, eða okkar sem vorum á
Þorsteini.
Þorsteinn GK 16 var 179
tonn smíðaður í Noregi 1963,
en hann var lengdur 1964 og
yfirbyggður 1985. Hóp hf. í
Grindavík, sem gerði bátinn út,
leitaði að nýjum báti og fyrir
valinu varð Svanur SH 111,
138 tonna stálbátur, en hann
var smíðaður á ísafirði 1971.
Eftir að Hóp hafði keypt Svan-
inn voru höfð nafnaskipti og
Svanurinn varð Þorsteinn GK
16. Ásgeir, sem og allir aðrir
sem voru á Þorsteini, voru
ráðnir á hinn nýja Þorstein.
„Ég átti allt eins von á að
ekki yrði keyptur annar bátur.
En ég er mjög ánægður með
þessa ákvörðun og kann vel
við þennan nýja bát. Þegar við
lögðum á ný, nú á öðrum bát,
fór ég strax á þann stað þar
sem við fengum í skrúfuna 10.
mars og lagði á sama stað og
ég var að leggja þegar óhapp-
ið varð. Ég sagði í gríni
við strákana hvort ekki
væri best að byrja þar
sem frá var horfið.“
Þorskurinn er okk-
AR VANDI
Ásgeiri, sem og öðr-
um skipstjórum, er tíð-
rætt umhversu mikil
þorskgegnd er á mið-
unum. Hann nefnir
margar sögur máli sínu
til sönnunar. Merkileg-
ast er þegar segir frá hvað hafi
verið reynt til að fá aðrar teg-
undir. Þeir eru búnir að leggja
net á slóðum sem lítill sem
enginn þorskur hefur verið á,
en það hefur „brugðist". Búið
er að gera margar tilraunir með
að leggja smáriðin net á slóð-
um þar sem á síðustu árum
hefur fengist ýsa eða ufsi, en
allt kom fyrir ekki. Netin búkk-
uð af smærri þorski.
„Þetta er með ólíkindum.
Þeir í landi eru ekki hrifnir af
því að fá þennan smærri fisk
og þess vegna erum við nán-
ast ráðþrota. Það er ekki eig-
andi við aðrar tegundir, það er
allsstaðar þorskur. Ég hef
heyrt þann orðróm að menn
hendi smærri fiskinum, en fyrr
hætti ég til sjós en henda fiski,
sagði Ásgeir Magnússon,
skipstjóri í Grindavík. ■
Hönnun • smíði • viðgerðir • þjónusta
STÓRÁSI 6 • 210 GARDAB/ER • SÍMI 565 2921 • FAX 565 2927
ueistlorar athugiol
Eruð pið i samuandl?
Boðherfin frá ftscom Taleco gera yhhur hieift að
uera í stöðugu sambandl - rétta lausnin fyrir flotannt
..í þeim tilfellum þegar við erum við smíðar eða viðgerðir utan vélarúms
er það ómetanlegur kostur að vera öruggur um að fá aðvörun frá
viðvörunarkerfi vélarúmsins með texta á þoðtækið svo ekki sé talað um
öryggið sem því fylgir".
„Þetta boðtæki hefur að mínu mati gert viðgerðarvinnu um þorð í Málmey
markvissari, ótímabærar stöðvanir tækja og búnaðar skemmri auk þess sem
hugarró okkar er meiri en ella".
Ásgeir Guðnason
vnruéistióri á máimeu
ascomTateco
^P^^NÝHERJI / RAPÍÓSTOFAN SKIPHOLTI 37 - SÍMl 569 7600 - FAX 569 7799
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
13