Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Blaðsíða 69
StefánI Ingvasyni, skipstjóra frá
AKUREYRl, VAR MIKIÐ NIÐRI FYRIR ÞEGAR HANN
LÝSTI HVERSU MIKILL ÞORSKUR ER Á MIÐUNUM.
ur á næstu árum, sennilega ekki fyrir aldamót.
Þegar þetta er skrifað hefur Hafrannsóknastofnun
ekki gefið út hvað stofnunin leggur til að veitt
verði af þorski á næsta fisvkeiðiári, en það verður
gert innan fárra daga, og jafnvel á meðan blaðið er
í prentun. Samkvæmt því sem næst verður
komust má búast við að þorskkvótinn á næsta ári
verði á bilinu 210 til 220 þúsund tonn, eða nokk-
ur aukning frá því fiskveiðiári sem nú er, en eins
og kunnugt er var hann 186 þúsund.
Astæða þess að ekki eru líkur á verulegum
aukningum er sú, að fiskifræðingar Hafrannsókn-
arstofnunar segja að ekki sé sterka árganga að
finna í hrygingarstofninum, og á meðan svo er
verður ekki um verulega aukningu að ræða.
En hver er rök fiskifræðinga við fullyrðingum
skipstjóra að mun auðveldara sé að fá þorsk nú en
verið hefur á síðustu árum, og jafnvel að erfitt sé
að komast hjá því að fá þorsk. Það sé erfiðara að
forðast hann nú en að fiska hann fyrir fáum árum?
Svarið er einfalt, hann er veiðilegri, segja fiskifræð-
ingar. Ástæðan er mun minni sókn en verið hefur
og því sé þorskurinn rólegri þar sem hann sé ekki
að forðast fjölda veiðarfæra. Sem sagt, það er meiri
friður í djúpinu.
Það er augljóst að mörgum sjómanninum
bregður þegar hann heyrir að ekki sé verulega
breytinga að vænta, en það er eigi að síður stað-
reynd á meðan stjórnvöld fara að ráðum fiskifræð-
ingana verður ekki umtalsverð breyting á þorsk-
kvótanum.
Ljóst er að þorskkvóti næsta árs verður meiri en
á þessu ári. Það mun vætanlega segja til sín, með-
al annars, í leigu- og söluverði kvóta. Það er hins
vegar ekki eins skýrt hversu mikið það dugar til að
setja upp í þær sprungur sem myndast hafa víða
um land, vegna hliðarverkana kvótans. ■
Rærö þú rt Hf RAFAGNATÆKNI
P.O.BOX 8555-128 REYKJAVÍK
SÍMI 568 7555 FAX 568 7556
öruggu
skipi til
fiskjar ?
STÖÐUGLEIKAVAKT RTm l
AOVÖRVN
BttUN
GM MÖRK BJAILA
GM F.HOURST.
lAqmark l PHÓFUN
sÉÁsllll
ÍiS
4
VS -100 HT M
O
0
Stöðugleikavakt
Varar fljótt við of litlum stöðugleika
*vegna rangrar hleðslu *vegna siglingarstefnu
*vegna yfirísingar *vegna lítillar kjölfestu
*vegna leka
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR