Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Blaðsíða 35
Landhelgisgæslan keypti nýja þyrlu af
gerðinni Sikorsky S 76 árið 1980. Hún bar
einkennisstafina TF-RAN. Þyrlan var sér-
hönnuð til landhelgisgæslu og með öflugan
lyftibúnað til björgunarstarfa. RAN fórst í
Jökulfjörðum 1983 með fjögurra manna
áhöfn. Þetta er ein þyrluslys Gæslunnar þar
sem manntjón hefur orðið. Hér á eftir verður
stiklað á stóru í sögu RAN.
Fyrsta eiginlega björgunarferð þyrlunnar
var farin 18. nóvember árið 1980. Maður
sem leysti af vitavörðinn á Hornbjargsvita
fékk slæmt hjartakast snemma um daginn.
Akveðið var að senda RAN eftir manninum.
Veður var mjög slæmt, hvassviðri og lélegt
skyggni. Af þessum sökum varð að fresta
brottför þyrlunnar frá Reykjavík og farið að
skipuleggja leiðangur björgunarsveitarmanna
frá Isafirði til Hornavlkur með varðskipinu
Ægi. Það átti síðan að bera manninn á bör-
um til Hornavíkur og varðskipið að flytja
hann til ísafjarðar. Reiknað var með slíkur
leiðangur tæki um 12 klukkustundir.
Um klukkan 14 tókst RAN hins vegar að
komast á loft og flaug vestur á Horn-
bjargsvita. Lending þar tókst vel þrátt fyrir
mjög slæmt skyggni. Tíu mínútum síðar var
þyrlan farin aftur í loftið með sjúklinginn og
kom með hann til ísafjarðar um klukkan 16.
Skipherra í ferðinni var Sigurður Arnason.
Fyrsta ferð TF-RAN eftir manni í skipi á
hafi úti var farin 13. febrúar 1982. Sjómaður
um borð í skuttogaranum Jóni Baldvinssyni
hafi slasast illa við vinnu sína, en skipið var þá
statt 90 mílur út af Reykjanesi. Ferð RAN
tókst vel undir flugsstjórn Björns Jónssonar
og gekk greiðlega að ná manninum um borð
°g flytja á sjúkrahús I Reykjavík.
Björgun á síðustu stundu
Um miðjan dag þann 31. október 1983
fórst vélbáturinn Haförn SH 22 frá Stykkis-
hólmi við Bjarnareyjar á Breiðafirði eftir að
bafa fengið á sig brotsjói á leið til lands. Sex
tuanna áhöfn var um borð. Þrír náðu að losa
gúmbát og stökkva um borð í hann í þann
mund að Haförn sökk. Ekki náðist að senda
ut neyðarkall. Mennirnir í gúmbátnum
skutu upp neyðarblysi og skipverjar á Þórs-
nesi sáu það. Þórsnes var um tvær mílur á eft-
't Haferninum. Þórsnes fór þegar að kalla
Haförninn upp sem og skipverjar á Gretti,
sem einnig var á heimleið. Þegar ekkert svar
barst varð ljóst að Haförn hafði farist. Strax
var haft samband við land og óskað eftir að-
stoð þar sem ljóst var að bátar kæmust ekki
nálægt slysstaðnum vegna brims og skerja.
RA.N var í
æfingaflugi þennan dag
og settist á þyrlupall
varðskipsins Óðins
sem var útaf
svonefndum Kvíum
milli Veiðileysufjarðar
og Lónafjarðar.
Klukkan 22.53
hóf þyrlan sig á loft
frá Óðni og var
ætlunin að fljúga um
Djúpið og æfa
hífingar. Að því loknu
átti að lenda aftur á
varðskipinu.
Skömmu eftir að
þyrlan fór í loftið
heyrðist
eitthvað óskiljanlegt
í talstöð hennar
og skipverjar á Óðni
sáu hregða fyrir
ljósleiftri nokkuð
frá skipinu.
Þá hafði þyrlan
aðeins verið á lofti
í eina til tvær mínútur
að því er
varðskipsmenn töldu.
Óðinsmenn reyndu að
kalla þyrluna upp en
þegar hún svaraði ekki
þótti mönnum ljóst að
slys hefði orðið.
Áhöfn Þórsness sá að gúmbát Hafarnarins
rak að skerjum við Bjarnareyjar og tveir
menn komust þar í land. Bátinn rak frá aftur
og bar síðan upp við eyjuna Lón og sást að
þar komst þriðji maðurinn á land. Ekki var
viðlit að sigla nálægt skerjunum vegna brims
og björgun frá sjó útilokuð. Bátarnir lónuðu
fyrir utan og svipuðust um eftir braki ef vera
skyldi að fleiri hefðu komst af.
Slysavarnarfélagið fékk tilkynningu um
slysið klukkan 14.40 og þar var sagt að að-
stoð þyrfti að berast skjótt. Slysavarnarfélagið
hafði samband við Gæsluna og bað um að
þyrlan yrði send á vettvang og einnig var ósk-
að eftir þyrlu frá varnarliðinu. TF-RAN fór á
vettvang og var Páll Halldórsson flugstjóri og
Benóný Ásgrímsson flugmaður. Klukkan
16.10 var hún komin á staðinn og bjargaði
fyrst mönnunum tveimur af skerinu. Þeir
voru orðnir mjög kaldir og þrekaðir þegar
þeir voru hífðir upp í þyrluna. Ljóst var að
þeim var bjargað á síðustu stundu, enda gekk
sjór yfir skerið. Síðan lenti þyrlan í Lóni og
þriðja manninum bjargað, sem var orðinn
aðframkominn af kulda. Þessi björgun tók
aðeins 10 mínútur. RAN flutti skipbrots-
mennina til Stykkishólms þar sem þeir voru
lagðir á sjúkrahús. Hinir skipverjarnir þrír
fórust. Friðgeir Olgeirsson stýrimaður á
RAN sagði í viðtölum við fjölmiðla, að boða-
föll hefðu gengið yfir mennina á skerinu þeg-
ar þyrlan kom á vettvang. Þetta var síðasta
björgunarflug sem farið var á TF-RAN.
Slysið í Jökulfjörðum
Áttundi nóvember 1983 er svartur dagur í
þyrlusögu Landhelgisgæslunnar. Að kvöldi
þess dags fórst TF-RAN í Jökulfjörðum í ísa-
fjarðardjúpi með fjögurra manna áhöfn.
Mennirnir sem fórust voru Björn Jónsson
flugstjóri, 51 árs, Þórhallur Karlsson flug-
stjóri, 40 ára, Bjarni Jóhannesson flug-
vélstjóri, 36 ára og Sigurður Ingi Sigurjóns-
son stýrimaður, 44 ára.
RAN var í æfingaflugi þennan dag og sett-
ist á þyrlupall varðskipsins Óðins sem var
útaf svonefndum Kvíum milli Veiðileysu-
fjarðar og Lónafjarðar. Klukkan 22.53 hóf
þyrlan sig á loft frá Óðni og var ætlunin að
fljúga um Djúpið og æfa hífingar. Að því
loknu átti að lenda aftur á varðskipinu.
Skömmu eftir að þyrlan fór í loftið heyrðist
eitthvað óskiljanlegt í talstöð hennar og skip-
verjar á Óðni sáu bregða fyrir ljósleiftri nokk-
uð frá skipinu. Þá hafði þyrlan aðeins verið á
lofti í eina til tvær mínútur að því er varð-
skipsmenn töldu. Óðinsmenn reyndu að
kalla þyrluna upp en þegar hún svaraði ekki
þótti mönnum ljóst að slys hefði orðið. Óð-
inn hóf leit þegar I stað og ennfremur komu
bátar frá ísafirði og víðar að til leitar. Klukk-
an tvö um nóttina fann línubáturinn Orri frá
ísafirði brak í sjónum um hálfa mílu frá landi
milli Veiðileysufjarðar og Lónafjarðar og
þótti víst að það væri úr RAN. Síðar um
nóttina fannst fleira úr þyrlunni.
SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR
35