Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Blaðsíða 31
Segja má að hin góða
reynsla af SIF hafi
hjálpað okkur í
haráttunni fyrir stærri
þyrlu að því leyti, að nú
gerðu allir sér grein
fyrir mikilvægi
björgunarþyrlu. Enda
fengum við mikinn
stuðning frá sjómönnum
og öllum almenningi.
Við höfðum strax
augastað á
Super Puma þyrlu.
til nýja þyrlan TF-LIF kom til landsins.
Hvenær á þeim tíma farið þið að sjá þörfrna
fyrir stærri og öflugri þyrlu?
„Við gerðum okkur grein fyrir því þegar
við fengum SIF, að hún væri millistærð af
þyrlu. En við vissu líka að á þeim tíma vær-
um við ekki tilbúnir til að taka við stærri og
öflugri þyrlu. Við vorum ekki búnir að fá þá
nauðsynlegu þekkingu og reynslu sem þurfti.
Það var heldur ekki aðstaða í flugskýlinu íýr-
ir stærri þyrlu. Ég sá hins vegar alltaf íýrir
mér að reynslan af SIF myndi færa okkur
stærra og öflugra tæki. Þegar við höfðum ver-
ið með SIF í nokkur ár höfðum við rekið
okkur á að við vorum alltof oft á rauðu strik-
unum og þyrftum öflugri björgunarþyrlu,
eins og við vissum fýrir. En fýrst þurfti að fá
eina áhöfn í viðbót, fleiri flugvirkja og endur-
byggja flugskýlið. Þar er nú komin ein besta
viðhaldsaðstaða á landinu.“
Þið farið þá að þrýsta á um kaup á stærri
þyrlu fýrir mörgum árum?
„Já, við fórum að vekja athygli á nauðsyn
þess að fá öflugri þyrlu. Þetta var öðru vísi en
þegar við vorum að hamra í gegn að fá SIF.
Þá vorum við í raun að berjast fýrir áfram-
haldi á þyrlurekstrinum. Nú þurftum að
sýna frammá að nauðsynlegt væri að fá stærri
þyrlu og að við værum undir það búnir að
reka hana. Segja má að hin góða reynsla af
SIF hafi hjálpað okkur í baráttunni fýrir stær-
ri þyrlu að því leyti, að nú gerðu allir sér grein
fýrir mikilvægi björgunarþyrlu. Enda feng-
um við mikinn stuðning frá sjómönnum og
öllum aimenningi. Við höfðum strax auga-
stað á Super Puma þyrlu. Þess má raunar geta
PÁLL HALLDÓRSSON FLUGSTJÓRI I VINNUNNI. ÞEIR FÉLAGAR Á ÞYRLUNUM ERU OFTAR EN
EKKI Á VAKT.
að um 1980 komu Frakkar hingað til lands
með tvær Puma þyrlur til að prófa og þróa af-
ísingarbúnað á þær. Staðreyndin er sú að
þessi þyrlumarkaður er eklci stór. Fólk getur
valið milli tugi eða hundruða tegunda af bíl-
um frá ýmsum löndum. Það er allt annað
þegar kaupa á björgunarþyrlu. Þá er ekki
nema fjórar til fimm gerðir sem koma til
Ægir, eitt af þremur varðskipum Landhelgisgæslunnar.
Sjómannablaðið Víkingur
31