Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Blaðsíða 19
hversu vel er búið að öldruð-
um að Hrafnistu þá mun það
jafnt og aðrir vilja leggja góðu
máli lið með því að eiga miða í
Happdrætti DAS. Kynnum
ungu fólki jafn gott málefni og
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna og við þann skilning
mun þátttaka í Happdrætti
DAS aukast á ný og verða aft-
ur sá hvati að enn megi betur
gera, gera Hrafnistu betri í
framtíðinni. Ungu fólki sem er
að hefja þátttöku í atvinnulífinu
finnst vafalaust að framtíð efri
áranna sé fjarlæg og ótíma-
bært að leiða þar hugann að.
Það fannst mér sjálfum einnig
fyrir 30 árum, en mikið ósköp
voru þau 30 ár fljót að líða. Oft
er það gott sem gamlir kveða
og eigi er gott ráð nema í tíma
sé tekið. Þetta er hvort tveggja
mælt af visku þeirra sem
reynslu hafa og eru þekktir
málshættir. Sem betur fer
þurfa fáir í dag að „lepja dauð-
ann úr skel.“ Verum samtaka
um að koma í veg fyrir að það
hlutskipti úr fortíðinni vitji okkar
ekki á efri árum. Tryggjum
framtíð Hrafnistuheimilanna
með virkri þátttöku í Happ-
drætti DAS. ■
Nýverið var tekin í notkun
HEILSU- OG LÍKAMSRÆKTAR-
STÖÐ í ÞESSU NÝJA HÚSI
Hrafnistu í Reykjavík
Verðmæti landaðs afla upp úr sjó í íslenskum höfnum
Sautján hafnir með yfir milljarð
Verðmæti landaðs afla í ís-
lenskum höfnum nam samtals
52,5 milljörðum króna árið
1995 og er þá miðað við verð-
mæti upp úr sjó. Verðmæti afla
sem landað var í Reykjavíkur-
höfn nam tæplega 6,3 milljörð-
um króna og næst kemur Ak-
ureyrarhöfn með 3,8 milljarða
króna. Aflaverðmæti samtals
17 hafna fór yfir einn milljarð
króna árið 1995.
Þessar upplýsingar eru
byggðar á virðisyfirliti Fiskifé-
lagsins og koma fram í fylgi-
skjali með þingsályktunartil-
lögu um hafnaáætlun 1997-
2000. Landaður afli í íslensk-
um höfnum árið 1995 var sam-
tals liðleg 1,5 milljón tonn, en
að sjálfsögðu fer ekki saman
tonnafjöldi og aflaverðmæti.
Á Vesturlandi var ein höfn
yfir milljarðamarkinu fyrrgreint
ár. Það er Akranes með 1,9
milljarða. Á Vestfjörðum er
sömuleiðis aðeins ein höfn yfir
þessu marki en það er fsa-
fjöröur með 2,9 milljarða. Á
Norðurlandi vestra er einnig
um að ræða eina höfn, Siglu-
fjörð, með aflaverðmæti upp á
einn og hálfan milljarð. Þegar
kemur að Norðurlandi eystra
fjölgar milljarðahöfnum. Á
Ólafsfirði og á Dalvík nam afla-
verðmæti 1,1 milljarði á hvorri
höfn. Akureyri státar af 3,8
milljörðum og Húsavík fer í
tæplega 1,1 milljarð. Á Aust-
fjörðum fara þrjár hafnir yfir
þetta mark.
Neskaupstaður með 1,3
milljarða, Eskifjörður 1,2 og
Höfn með 1,4. í Suðurlands-
kjördæmi eru Vestmannaeyjar
með 2,9 milljarða og Þorláks-
höfn með tvo milljarða. Á
Reykjanesi komast fjórar hafnir
á blað. Það eru Grindavík með
2,3 milljarða, Sandgerði 2,6,
Reykjanesbær 1,1 og Hafnar-
fjörður þrjá milljarða. Loks er
það Reykjavíkurhöfn með
landað aflaverðmæti er nam
6.249 milljónum króna. Erlend-
is var landað afla að verðmæti
þrír milljarðar uppúr sjó árið
1995.
Að lokum má geta þess, að
samkvæmt hafnaáætlun er
áformað að framlög ríkissjóðs
til hafnarmannavirkja á árunum
1997-2000 nemi samtals 2,6
milljörðum króna. ■
Verðmæti afla sem landað var i Reykjavikurhöfn nam tæplega 6,3 milljörðum króna og næst kemur Akur-
eyrarhöfn með 3,8 milljarða króna.
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
19