Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Page 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Page 21
Egill Egilsson, stýrimaður í Stykkishólmi Útqerðin gafst upp! „Deilan snérist um að fá þau laun greidd sem gert er ráð fyrir í samningum. Út- gerðin greiddi stýrimanns- hlut þá túra sem ég var með þátinn. Ég bauð þeim marg- oft að gera upp við mig samkvæmt samningum, en þeir vildu það ekki. Ég átti enga aðra leið en stefna þeim til að fá þau laun sem mér bar,“ sagði Egiil Egils- son, fyrrum stýrimaður hjá Sigurði Ágústssyni í Stykk- ishólmi, en eftir langa deilu hefur útgerðin loks greitt Agli þau laun sem hann átti inni. Guðjón Ármann Einars- son, framkvæmdastjóri Öld- unnar og Jónatan Sveins- son, lögmaður félagsins, tóku að sér ásamt Agli að undirbúa málssóknina. Eigendum Sigurðar Ágústs- sonar hf, var stefnt og skömmu áður en málflutn- ingur átti að vera, bauð fyr- irtækið sættir, sem voru Þær að greiða Agli þau laun sem hann vissi að hann hafði verið hlunnfarinn um. Fleiri deilur Sumrin 1994 og 1995 var Egill stýrimaður á Kristni Fhðrikssyni og leysti af sem skipstjóri. Rök útgerðarinnar voru meðal annars þau að aðalskipstjórinn hafi gegnt starfi sínu þá túra sem hann var í landi og því bæri Agli ekki skipstjórahlutur. Sem fyrr segir greiddi útgerðin Agli áður en málið var flutt fyrir dómi, það er einu og hálfi ári eftir að Egill hætti sem stýrimaður á Kristni Friðrikssyni. Eftir að Egill hætti á Kristni Friðrikssyni var hann ráðinn sem skipstjóri á Hamrasvani, en Sigurður Ágústsson hf. á báða bát- ana. Vorið 1996 kom upp deila um rækjuverð á öllum bátum fyrirtækisins. Úr- skurðarnefnd úrskurðaði 100 króna lágmarksverð. Fyrirtækið sættist ekki á það verð og hótaði áframhaldandi stöðvun allra bátana. Eftir að hafa rætt við einstakar áhafnir sömdu tvær þeirra um 88 króna há- marksverð gegn endurráðn- ingu. Egill og félagar á Hamrasvani vildu ekki sætt- ast á það verð sem útgerðin bauð, en vildu fá það verð sem úrskurðað hafði verið Þá var þeim, gert að binda bátinn og þeir ekki ráðnir á ný. ■ Hafnarbraut 25 • 200 Kópavogur Sími 554 0000 • Fax 554 4167 Hvort sem þú kallar þau Klaka-, teygju- eða teleskópbönd, þá eru útdraganlegu færiböndin frá KLAKA „draumur í dós“. Hægt er að setja fisk og ís beint í fiskkör í öllum hornum lestarinnar. Böndin eru snúanleg 360 gráður og geta flutt uppí- og niðrímóti • Bætir meðferðina á fiskinum verulega • Meiri afköst nást • Gjörbylting á vinnubrögðum í lestinni. Böndin eru úr rafbrynjuðu sjóþolnu áli. Þau eru knúin tromlumótor 0,55 kW, 0,32 m/s. Þau ná frá 2,7 til 4,8 metrum frá upphengju, sem getur verið endi á færan- legu bandi í lestarlofti eða festing beint undir lúgu. Styttri útqáfa fáanleg. SjÓMANNABLAÐIÐ VlKINGUR 21

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.