Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Qupperneq 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Qupperneq 44
Sjómaður segir frá reynslu sinni að vera „sjanghæaður!“ Hafið bláa hafið „Ég var á vertíðarbát, þetta var um 1965, og við Iögðum upp í Reykjavík. Það var kominn apríl og við áttum helgarfrí. Ég datt i það á Iaugardagksvöldinu og drakk lifandis ósköp. Þegar ég rankaði við mér á sunnudeginum langaði mig í afréttara, og það meira en allt ann- að,“ þannig segir fyrrverandi sjómaður frá. Þetta heglarfrí átti eftir að verða lengra en hann óraði fyrir, það er ef frí skal kalla. „Um hádegið hitti ég nokkra sem eins var ástatt um, nema munur- inn var sá að þeir áttu sopa. Ég fékk að drekka með þeim fram eftir degi og áður en ég vissi vorum við komnir um borð í togara, það var svo sem ekki verra en vera á götunni. Það virtist vera nóg til að drekka og ég því áhyggjulaus. Það kom að því að ég sofnaði og vaknaði ekki fyrr en á mánudeginum, en þá var greinilegt að ég var út á sjó. í fyrstu hélt ég að ég væri þar sem mér bar, það er um borð í bátnum sem ég var á. Fljótlega gerði ég mér grein fyrir að svo var ekki. Þetta var ekki kojan mín og umhverfið var mér framandi. Hvar er ég? Þegar ég afréð að teygja hausinn, sem kvaldist af timburmönnum, fram úr kojunni sá ég að það voru fleiri í svipuðu ástandi og ég sá Iíka Hreinsum allar gerðir aftönkum. Vatnstanka, olíutanka, slamtanka, sjótanka, wc tanka, vélabotna ogfleira. Fljót og örugg þjónusta. Margra ára reynsla. Magnús Sigurðsson Skipasundi 40 Sími: 553-8796 - Símb: 846-1766 að ég var um borð í togara. Það tók að renna upp fyrir mér ljós, ég mundi eftir að hafa farið um borð. Ég hafði verið „sjanghæaður". Þá var ekki annað að gera en sættast við hlutskipti mitt. Ég fór upp á dekk, það var gott veður og ég söng „Hafið bláa hafið, hugann dreg- ur“. Það var ekki annað að gera en taka örlögum sínum. Ég komst að því að við vorum að fara í siglingatúr, það átti að selja í Bretlandi eftir þrjár vikur rúmar. Eftir að ég tók að braggast hugsaði ég óneitanlega heim og um borð í bátinn sem ég var á. Enginn vissi hvar ég var, ég hafði svo sem hvorfið áður og ákvað að láta ekki vita af mér. Okkur gekk ágætlega að fiska í skipið og þá var það siglingin. Þegar við komum til Hull var mitt fyrsta verk að detta í það. Ég varð snemma talsvert fullur og flæktist um allt, oft í vafasömum félagsskap. Þegar fór að brá af mér ákvað ég að fara um borð og hitta skipsfélagana. Þeg- ar ég kom niður að höfn var togarann hver- gi að sjá. Ég fór að spyrjast fyrir um skipið, hann var þá farinn til íslands, ég hafði orðið eftir. Bjargvættir Það vildi mér til happs að ég var með nokkuð af peningum, þó svo það hafi ekki alltaf verið vandamál á þessum árum. Ur því sem komið var, var ekki nema eitt að gera, halda áfram þar sem frá var horfið, það er halda áfram að skemm- ta mér. Ég varð ekki var við neina íslendinga og smátt og smátt jukust áhyggjurnar. Að kvöldi var ég staddur inn á bar og mér til mikillar gleði heyri ég talað á íslensku. Þar var mannskapur af Sigurði Bjarnasyni frá Akureyri að spjalla saman. Þeir áttu að fara heim eftir tvo daga og okkur samdist þannig um að ég fengi að fljóta með þeim heim. Það gekk eftir og siglingin heim gekk vel, það var nóg til að drekka og veigarnar hvergi sparaðar. Skipsfélagar á Akureyri Rúmum mánuði eftir að ég hafði dottið í það í helgarfríi í Reykjavík var ég staddur á Akureyri, blankur, hálffullur og ráða- laus. Ég flæktist þar um í nokkra daga. Einn daginn þegar ég er á gangi eftir Hafnarstræti, þá heyri ég nafnið mitt kallað, það ekki af einum manni, nei þeir voru fjórir sem kepptust við að kalla nafn mitt. Þar voru félagar mínir á vertíðarbátnum komnir. Þeir höfðu að lokinni vertíð skellt sér í ferðalag. Þeir voru eðlilega hissa á að hitta mig, vissu eðlilega ekki hvað hefði orðið um mig. Við bjuggum all- ir í sama sjávarplássinu og svo fór að þeir sáu aumur á mér, flýttu heimferðinni og tóku mig með. Það voru þung spor þegar ég gekk upp að húsinu og bankaði. Ég vissi að konan yrði reið.“ ■ 44 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.