Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Blaðsíða 59
SlGMAR SVEINSSON SKRIFAR.
Hugleiðingar um þorskveiðar og ráðgjöf fiskifræðinga.
Svarið var, enginn afli
Mér verður oft hugsað til þess, þegar ég lít
til baka yfir síðustu ár, hversu marktæk ráð-
gjöf Hafrannsóknarstofnunar er við ákvörð-
un þorskaflahámarks.
A síðustu þrettán árum hef ég nær ein-
göngu stundað netaveiðar á hefðbundnum
vertíðarbátum.
Ef ég rifja upp vertíðir fyrir svo sem 10
árum, er þess minnst að það þótti viðunandi
VlNNUAÐFERÐIR HAFRÓ VIÐ MAT Á ÞORSK-
STOFNINUM
I orði tala fiskifræðingar um að eiga gott
samstarf við skipstjóra á fiskiskipum, en
hvernig er þetta samstarf?
Þegar fjölmiðlar fjalla um mikla þorsk-
gegnd og landburð af fiski og inna fiskifræð-
inga álits, skortir ekki svörin. Þeir viður-
kenna að „líklega“ sé þorskstofninn eitthvað
á uppleið, en mest sé þetta blásið upp
af skipstjórum og hagsmunum ein-
stakra aðila í útgerð og því beri að
taka þessu með fyrirvara.
Ekkert OG 50 TONN
Mig langar að rifja upp atvik, sem
varðar togararall, frá síðustu vertíð.
Að kvöldi 18. mars 1997 lögðum
við 45 net austur við Ingólfshöfða.
Um nótdna kom Brettingur NS 50
og togaði við endana á trossunum í
togararalli 1997. Hafði ég samband
við skipstjórann og spurði um afla-
brögð. Svarið var; enginn afli. Við
byrjuðum svo að draga trossurnar eft-
ir 10 tíma legu. Við fengum 50 tonn
í þær. Þegar þessi mismunur á afla, í
sitthvort veiðarfærið, er borinn undir
fiskifræðinga, er svarið að tilgangurinn sé
ekki að fá sem mest af þorski.
Togararallið er einn af höfuðþáttunum í
að meta stærð þorskstofnsins. Hvernig er það
hægt ef tilgangurinn er ekki sá að fá þorsk í
trollið?
að fá tonn í trossu af óslægðum þorski, eftir
nóttina. Róður upp á 15 til 20 tonn þótd
mjög góður, það er þegar vertíð stóð sem
hæst, það er í apríl og mars. Þá er ég tala um
afla í tíu til tólf fimmtán neta trossur.
I dag þykja ekki merkilegar fréttir þó ein-
hver sé að fá tvö tonn í trossu í janúar, hvað
þá í mars. Á stærri netabátum væri leikur
emn að skila eitt þúsund til fimmtán hund-
ruð tonnum af slægðum þorski á hefðbund-
inni vetrarvertíð, og þyrfti engar tíu eða tólf
trossur til.
Samdóma álit flestra skipstjóra
Það er samdóma álit flestra skipstjóra að
óhætt væri að auka þorskaflahámark í 250 til
300 þúsund tonn. Það myndi leysa flest
vandamál varðandi svokallað kvótabrask og
brottkast á fiski. Einnig myndi það draga úr
sókn í aðrar tegundir, sem verr er ástatt um,
til dæmis ufsa.
Það hlýtur að vera alvarlegt umhugsunar-
efni að örfáir einstaklingar með einhver
reiknilíkön skuli geta gefið út einhverjar
ímyndaðar tölur um það hversu mikið af
þorski syndir við íslandsstrendur.
Sigmar Sveinsson,
skipstjóri á GuSrúnu VE
Mótorvindingar
og aðrar rafvélaviðgerðir
á vel búnu verkstæði
Raflag naþjón u sta
í skipum, verksmiðjum
og hjá einstaklingum
Vatnagörðum 10 • Reykjavík
S 568-5854 / 568-5855 • Fax: 568-9974
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
59