Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Page 61
Kristján Pálsson.
flokks, barðist gegn lagasetningunni. „Nú
raunu veiðiréttindi og aflaheimildir safnast á
flerri hendur, stærri fyrirtækin í greininni
munu stækka. Stórfyrirtæki munu hugsan-
lega ráða framtíð heilu byggðarlaganna. Al-
þingi hefur með þessu afsalað sér völdum. Ég
fæ ekki betur séð en krafan um veiðileyfa-
gjald styrkist eftir þetta og allt bendir til að
samþjöppun aflaheimilda muni verða mun
meiri en nú er.“
Sighvatur Björgvinsson sagði að það væri
einsog menn gerðu sér ekki grein fyrir að við
byggjum við frelsi í viðskiptaumhverfi sem
gerði það að verkum að útgerðirnar gætu tek-
ið lán erlendis ef þeim hentaði. Með lögum
sem heimila veðsetningu kvóta er því opnað
fyrir, að útlendingar tækju veð í íslenskum
aflaheimildum, og eignuðust þær, ef íslenska
útgerðin stæði ekki í skilum. Hann sagði að
það væri að vísu svo, að ákvæði laga um bann
Ágúst Einarsson.
við fjárfestingum útlendinga i sjávarútvegi
gerði þeim skylt að selja, kæmust þeir yfir
skip og aflaheimildir. „Þeir hafa hinsvegar
bein áhrif á það, hverjir fá að kaupa í slíkum
tilvikum. Þannig geta þeir komið í veg fyrir
að fyrirtækið leigði eða seldi frá sér aflaheim-
ildir nema til útvegsfyrirtækja, sem sigla með
óunninn afla. Gera menn sér grein fyrir
þessu? Ég held ekki, miðað við það sem
stjórnarliðað hafa verið að segja.“
„í þessu ljósi, sagði Sighvatur, verður þetta
að vera eitt hið fyrsta sem ný ríkisstjórn verð-
ur að breyta, þegar hún kemur til valda.
Hann lýsti sérstökum vonbrigðum með að
Framsóknarmenn, sem höfðu uppi allt ann-
an málflutning fyrir kosningar, skyldu standa
að því að samþykkja frumvarpið. „Sjálfstæð-
isflokkurinn reyndi í fjögur ár að fá málið í
gegnum þingið. Það var alltaf stoppað af Al-
þýðuflokknum. Nú leggst Framsókn enn
Q. Auto -Trawl Winch system
TOGVINDUKERFI
einu sinni í pyttinn fyrir þá, og hjálpar íhald-
inu yfir. Kjósendur, sem að yfirgnæfandi
hluta eru á móti veðsetningu kvóta, munu
ekki gleyma því.“ ■
I LOWARA
RYÐFRIAR
ÞREPADÆLUR
Gæðavara,
mikið úrval,
hagstætt verð,
örugg þjónustat
RAFBuÐI-RAFUR H F
Skeiöarás 3 • 210 Caröabær Sími: 565 8080 • Fax: 565 2150 • Heimasíba: www.@naust.is
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
SjÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR
61
ARGUS/SÍA