Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 6
Svipmyndk úr siðusta
(?) ferð Óðins
Varðskipið Óðinn hefur sinnt hluiverki
sínu með mikilli prýði áratugum saman,
en hann kom nýr til landsins 27. janúar
1960. „Megi hann koma rammefldur og
heill úr hverri raun,“ sagði Bjarni Bene-
diktsson dómsmálaráðherra í ávarpi sínu
við komu skipsins.
Nú er velmegun þjóðarinnar hins veg-
ar orðin svo mikil að ráðamenn landsins
sjá sér ekki annað fært en þrengja að
starfsemi Landhelgisgæslunnar með því
að leggja gamla góða Óðni í sparnaðar-
skyni. Almenna fjársöfnun þarf til að búa
þyrlusveit Gæslunnar nauðsynlegum
nætursjónaukum. Haldi þjóðarauðurinn
enn áfram að vaxa má búast við stjórn-
völd neyðist til að hætta við smíði á nýju
varðskipi sem áform eru uppi um að ráð-
ast i, ef ekki að leggja Landhelgisgæsluna
niður og bjóða verkefni hennar út í nafni
hagræðingar og sparnaðar.
Ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þess
að halda úti þremur varðskipum hið
minnsta. Þúsundir íslenskra sjómanna
eru á miðunum umhverfis landið og eiga
annað og betra skilið en að dregið sé úr
öryggi þeirra á hafi úti með fækkun varð-
skipa, sem hafa mikilvægu björgunarhlut-
verki að gegna, auk annarra verkefna.
í áliðnum ágúst kom Óðinn úr sinni
síðustu siglingu, ef fram fer sem horfir.
Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður á Óðni,
sem er lesendum Víkingsins að góðu
kunnur fyrir margar frábærar ljósmyndir,
lét blaðinu í té nokkrar myndir sem
hann tók í þessari ferð. -SG
Þyrluœfing erfast-
ur liður um borð.
Varðskipið Óðinn áfullri siglingu.
Halldór Gunnlaugsson skipherra ogjónas Þorvaldsson bátsmaður.
Góða veðrið var notað tíl að mála skipið.
Óðinn er skip með góða sál og mér hcfur alltafliðið sérstaklega vcl
hér um borð,“ segirjón PáII Ásgeirsson stýrimaður.