Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Blaðsíða 10
Hvað er klukkan Skipstjórinn stendur í brúnni Tekur í nefið og svarar Allt í lagi góði Það er glas • • • • Af þessari upptalningu mætti halda að við hefðum verið á leiðinni á einhverja kvæðamannaráðstefnu. Svo var ekki því aðalerindið var að fara á ball í Þórskaffi. Eitt mikilvægt atriði hafði þó gleymst; spariföt Eiríks Sigurjónssonar voru í hreinsun og hreinsunin var búin að loka þegar kvæðamennirnir komu þangað. Þá hófst dauðaleit að fötum á Erík sem end- aði með því að hann skreið inn um glugga hjá systur sinni upp i Hlíðum. Þar fann hann nokkurn veginn passlegan jakka af strætóstjóra. Þeir í Þórskaffi höfðu nýlega lent i vandræðum með ein- hverja hermenn og voru búnir að loka á alla menn í uniformum. Þá reyndum við að komast í Vetrargarðinn en þar var allt fullt og lögreglan búin að setja vörð í eldhúsið, en þar var vanalega hægt að komast inn gegn aukagjaldi ef aðgöngu- miðarnir voru uppseldir. Þarna var orðið það áliðið að við fórum bara aftur suð- ur með sjó, klárir í nýjan róður. Fiskiriið gekk prýðilega. Við vorum mikið í straumnum úti við Eldey og þess vegna vorum við með tvo stóra dreka á hvorum trossuenda og svo fjóra belgi til að halda uppi færunum. Ljósmyndasamkeppni sjómanna Munið að senda myndir í keppnina Eins og sagt var frá í síðasta tbl. Víkingsins hefur blaðið hrundið af stað ljósmyndasamkeppni sjómanna. Keppnin er tvíþætt, annars vegar landskeppni og hins vegar Norður- landakeppni. Myndir í keppnina þurfa að hafa borist Sjómannablað- inu Víkingi, Borgartúni 18, 105 Reykjavík fyrir 15. nóvember næst komandi. Hver keppandi rná senda inn allt að 10 ljósmyndir, svarthvítar, lit- myndir eða litskyggnur en mynda- efnið verður að tengjast sjómennsku. Baujurnar voru svona sex metra langir tréstaurar með korkfloti og nokkrum hlekkjum af ankeriskeðju í kjölfestu. Eitt sinn vorum við með eina trossu i bak- borðsganginum og ég er að drauja bauju yfir trossuna þarna í ganginum þegar hællinn á öðru stígvélinu festist í möskva og ég beint á rassgatið, en gallinn var bara sá að rassgatið lenti fyrir utan lunninguna. Hausinn kom fyrst í sjóinn og mér fannst að sjóhattur- inn myndi týnast og það yrði töluvert tjón. Næsta skynjun er sú að ég held með báðum höndum um baujufærið, sem rekst út en festist fljót- lega. Þarna dróst ég aftan í bátnum og beið björgunar. Sú bið varð ekki löng því allt í einu heyrðust hróp og köll, bátur- inn stöðvaðist, áhlaupasveitin birtist á lunninguni og fallistinn var dreginn um borð. Sjóhatturinn var enn á hausnum, stígvélin voru brett alveg niður á hæla og ég var þurr fyrir ofan mitti. Garðar skip- stjóri varð alveg kolbrjálaður og sagði að ef menn væru skráðir á skip þá ættu þeir að vera urn borð en ekki hangandi aftan í þeim. Mig rak hann ofan í vél til að skipta um sokka og buxur. Buxurnar hengdi ég upp í vélarrúminu, en þessu vélarrúmi átti ég eftir að kynnast mjög vel seinna. í kaffinu var Garðar farinn að róast og sagði okkur frá öðrum loftfimleika- manni sem hafði verið þarna vertíðina árið áður. Sá hafði leikið það að stökkva upp af úrgreiðsluborðinu, í kröppum sjó svona rétt áður en báturinn komst á öldutopp. í seinasta stökkinu var hann svo óheppinn að bálurinn valt undan og hann lenti í sjónum. Vikuna fyrir páska skiptum við um net. Þetta gekk þannig fyrir sig, að á landsthninu skárurn við af steina og kúl- ur, svo var steinuð niður ný trossa eftir löndun. Vanalega var því ekki lokið fyrr en klukkan þrjú á næturnar, svefntím- inn var þá bara útstímið sem var þrír timar. Um páskana voru slæm veður og mikill straumur, þegar við á endanum komust út fundurn við bara tvær trossur. Þegar þær voru dregnar hófst leit að hin- um. Tvær fundust með dýptarmælinum og voru þær slæddar upp, þetta var ógur- legur ýlduköggull. Það sem heilt var af fiskinum settum við í lestina en hitt á dekkið. Þegar við fórum að landa dekk- Carðar Magnússon shipstjóri farminum gaus upp slík fýla að hafnar- svæðinu hefði verið lokað ef núgildandi mengunarreglur hefðu verið til. Á sumardaginn fyrsta höfðum við lok- ið öllum verkum um níuleytið. Þá datt Óla það í hug, að það væri upplagt að fara á slysavarnaball í Úngó. Kokkurinn sagði að Gestur yrði að styrkja félagið ef hann dytti aftur í sjóinn og þyrfti að kalla út björgunarsveit. Þegar við voruni sestir niður fór Óli að segja sögur, við vorum með appelsín í glösum en ekkert brennivín. Það gerði ekkert til því þeir sem hlustuðu á Óla borguðu með brenni- víni og sögurnar mögnuðust um leið og appelsínið varð ljósara. Skyndilega hætti tónlistin og hljómsveitarstjórinn sagði að það væri áríðandi tilkynning, „Gestur og Ólafur á Svaninum eiga að tala við dyra- vörðinn strax". -Far þú að tala við útkastarann, sagði Óli. Jú, dyravörðurinn sagði að skipsjór- inn hefði verið þarna og sagt að það yrði ekki róið í nótt. Þegar ég kom til baka var Óli að segja söguna af því þegar tog- arinn Júlí strandaði 1. desember 1948. Áður en þeir fóru dreymdi hann að hann væri á bryggjunni í Hafnarfirði þar sem Júlí lá, á bryggjunni voru 24 líkkistur. Óli kíkti í kisturnar og voru þær allar tómar nema ein . Sá sem var í kistunni frétti af draumnum og fór ekki með skip- inu. Skipið standaði í brjáluðu veðri á versta stað yst í Önundarfirði og var öll- um bjargað af togaranum Ingólfi Arnar- syni. Þegar þeir koma suður frétta þeir að sá sem ekki fór með hafi dottið á svelli á bryggjunni og látist af höfuðá- verka. Við fórum beint um borð eftir ballið. Þar voru Halli og Villi eitthvað skrýtnir á svipinn. Halli spurði hvort Garðar hefði verið á ballinu. -Nei, en hann talaði víst við dyravörðinn, sagði Óli. Þá fór Villi að hlæja og sagði að það hefði verið Halli sem talaði við dyravörðinn, en þetta er allt í lagi. Garðar var hérna og sagði að spáin væri svo leiðinleg að það borgaði sig ekki að róa. Þegar við vorum á leið til lands 3. maí, fór veður versnandi. Stýrimaðurinn stoppaði vegna þess að fiskkassi aftan við lúguna hafði brotnað og fiskurinn var kominn út um allt. Við gerðum við þetta og héldurn svo áfram heim. Þegar við komum inn heyrðum við það að það væri týndur bálur úr Njarðvík. Við lönd- unina var ég uppi á bílpallinum og sá unr trogið sem tók hálft tonn. Vegna þess að báturinn valt við brggjuna þá rann ég til á slorhálum pallinum um leið og ég kall- 10 - Sjómannablaðið Víkingui
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.