Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 16
sinna þeim slörfum sem henni er ætlað
að sinna?
Árekstur
Harður árekstur varð á milli tveggja
skipa undan Gotlandi í apríl s.l. þegar
ílutningaskipin Nikar G og Smaland sigldu
með stefnin saman á venjulegri siglinga-
leið. Skipin sem bæði eru þýsk urðu fyrir
miklum skemmdum en urn borð í
Smaland fórust þrír sjómenn. Voru þeir
allir við vinnu sína í bakka skipsins þegar
áreksturinn varð og létust þeir samstundis.
Ástæður árekstursins eru ekki kunnar.
Aðvörun til sjómanna
Lögmenn i Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum hafa gefið út aðvörun til sjó-
manna. Hún er á þá leið að ef þeir lenda
í einhverjum óhöppum hvort heldur um
minni eða meiriháttar atvik er að ræða
þegar skip þeirra eru innan lögsögu
landsins, þá skuli þeir koma sér hið
snarasta úr landi. Ástæðan er sú að þar-
lend stjórnvöld hafa tekið upp þann sið
að kyrrsetja skipstjóra og jafnvel alla á-
höfnina vegna minniháttar óhappa sem
orðið hafa. Ef menn fara ekki að ráðum
lögmannanna mega þeir eiga von á að
vera kyrrsettir um lengri tíma þar í landi.
Nóg að gera
Á síðasta ári fluttu ferjur og skemmti-
ferðaskip um 810 milljónir farþega, 124
milljónir bíla og 20 milljónir flutninga-
vagna samkvæmt samantekt frá ShipPax
í Halmstad í Svíþjóð. Fram kom hjá
þeim að 11. september hefði einungis
haft lítil áhrif á skemmtiferðaskipaút-
gerðir þar sem aðeins varð um 0,2%
samdráttur í farþegum hjá þeim milli ára
en 12 milljónir manna lóku sér far með
slíkum skipum á árinu.
Ókeypis skoðun
Siglingayfirvöld á Kýpur eru farin að
leggja mikin metnað í gæði þeirra skipa
sem undir fána þeirra sigla. Eitt stærsta
vandamál í heimssiglingum eru stórflutn-
ingaskip sem hafa verið að brotna og far-
ast. Mörg þeirra hafa siglt undir fána Kýp-
ur og nú hafa yfirvöld ákveðið að skoða
100 gömul stórflutingaskip í þeim tilgangi
að leita að veikleikum í bol skipanna.
Skoðunin, sem er útgerðum að kostnaðar-
lausu, felst í röntgenskoðun á burðavirki
skipanna og þegar þetta er skrifað hafa 10
skip þegar farið í gegnum slíka skoðun.
Skemmdir fundust í tveimur skipanna sem
varð þess valdandi að annað þeirra sigldi
beint í brotajárn. Þrátt fyrir að skoðun
skipanna sé útgerðum að kostnaðarlausu
hefur fjöldi útgerðarmanna flutt skip sín
undir aðra fána til að þurfa ekki að láta
þau í gegnum þetta fría skoðunarferli kýp-
versku siglingastofnunarinnar.
Mútur
Yfirvöld í Hong Kong hafa dæmt kín-
verskan skipstjóra í fjögurra mánaða fang-
elsi fyrir að reyna að múta skipaskoðunar-
manni til að láta skip sitt fá hreint haffæri.
Við skoðun á skipinu dró skipstjórinn 100
dollara seðil upp úr vasa sínum og rétti til
skoðunarmannsins. Sá sló ekki til heldur
kærði skipstjórann fyrir svokölluðu spill-
ingaráði en mikil barátta er gegn spillingu
þar í landi. Ekki fer sögum um það hvað
það var sem skoðunarmaðurinn var ekki
ánægður með gagnvart skipi skipstjórans.
Ferjur og skemmtiferðaskip jluttu á síðasta ári 810 milljónir farþega
Dómur
ítalskur dómstóll hefur dæmt fimm
menn, þar af skipstjóra og framkvæmda-
stjóra hjá Fincantieri skipasmíðastöðinni í
allt að 26 tnánaða fangelsi vegna mann-
dráps. Fimm tæknimenn stöðvarinnar og
fulltrúi ABS ílokkunarfélagsins létust utn
borð í flutningaskipinu Snam Portovenere
sem var í viðgerð hjá skipasmíðastöðinni.
Voru mennirnir staddir í vélarúmi skipsins
þegar skipstjórinn lét gangsetja C02 slök-
kvikerfi vélarúmsins án þess að ganga fyrst
úr skugga um að það væri mannlaust.
Ódýru of dýrir
Það hefur reyndar áður komið fram
hér á þessum síðum að kínverskir sjó-
menn eru farnir að flæða yfir heimsflotan
þar sem filippínskir sjómenn eru nú tald-
ir vera of dýrir þrátt fyrir að laun þeirra
séu margfalt lægri en það sem við þekkj-
um á vesturlöndum. Eitt stærsta skipafé-
lag Japans K-Line hefur nú skipt út á-
höfnum sínum fyrir Kínverja. Það hefði
einhvern tima þótt saga til næsta bæjar
að of dýrt væri að hafa flippa í vinnu.
Skortur á sjómönnum
Það gæti hugsanlega orðið lausn fyrir
Bandaríkjamenn að fara að ráði K-Line
og ráða Kínverja til að geta mannað þau
90 skip sem eru í viðbragðsflota þeirra.
Nú er svo komið hjá Könunum að skort-
ur er orðin á þarlendum sjómönnum en
kaupskipastóllinn hefur verið að hverfa
frá þeim vegna mikils kostnaðar. Laun
bandarískra sjómanna eru meðal stærstu
vandamála í rekstri þarlendra kaupskipa
en yfirmaður hefur að meðaltali um 11
milljónir í árslaun. Siglingaráðgjafi Bush
forseta, William Schubert, hefur varað
forsetan við þeim vanda að viðbragðsfloti
þeirra, sem ávallt á að vera tilbúinn ef til
stríðs kemur, er það hreint ekki. Þessi
floti á að sigla með vopn og birgðir til á-
takastaða og eru skipin mönnuð óbreytt-
um borgurum.
Svindl
Mikið svindlmál er kornið upp í
Kenya í tengslum við ráðningu á fólki
til starfa á skemmtiferðaskipum. Fimm
mönnunarskrifstofur í Nairobi auglýstu
eftir 50.000 þarlendu fólki til starfa á
skemmtiferðaskipum og segjast þær
hafa gert þetta eftir beiðni fyrirtækis í
Sameinuðu arabísku furstadæmunum,
A1 Najat Shipping. Átti hver og einn að
borga 128 dollara fyrir að fá slíka vinnu
og var þetta sögð vera greiðsla vegna
skráningar og læknisskoðunar. Um 6
16 - Sjómannablaðið Víkingur