Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Blaðsíða 21
Þetta var gamli Júpiter. Það var allt í lagi nteð útgerðina hjá Einari en skipið var °rðið ansi gamalt. Mesta furða hvað við höfðum upp. En honum var svo lagt urn veturinn. Ég fór á nýsköpunartogarann Brynjar, gerður úl af Axeli í Raflia, frarn á vorið. Pað gekk upp og ofan. Við vor- um eiginlega komnir á Nýfundna- landsmið þegar við heyrðum í Keili, sem Axel var nýbúinn að kaupa, en hann hafði misst skrúfuna við Grænland. Við suerum því við og drógum hann heim. Axel vildi borga okkur þetta sem kar- fatúr, svona 3.500 til 3.700 kall en ég og Halldór Baldvinsson, Túlli, vorum ekki sáttir við það. Fengum okkur lögfræð- tng. t>á lagði karlinn bara kollunni fyrst við vorum svona óþekkir. En við höfð- Um okkar fram og ég man að rninn hlut- ur í björgunarlaunum var 17 þúsund krónur. Þetta fór ekki fyrir dóm heldur var samið og allir fengu sinn hlut í björgunarlaunum. Skrúfan var alveg af skipinu og það ekki langt frá Græn- landsísnum. Það gekk vel að slefa hon- Utn heim, slitum bara einu sinni vegna þess að það brotnaði lás. Hann var samt leiðinlegur í taumi því skrúfan sat á stýrinu sem var svona 20 gráður. Þarna fengum við tveggja mánaða laun. -Hvað með frí á þessum árurn, svo sem um jól? Blessaður vertu, það var bara eitur að Uefna það og ekki mörg jól sem ég var heima. Það var frekar að eldri kallarnir gátu röflað út jólafrí. En siglingafríin komu sér mjög vel. I‘að var orðin lúða með kaffinu -Þú varst áðan að minnast á góðan ufla. Var komið nteð hann allan að landi? Já, svo þú ert að fiska eftir því hvort brottkast sé eitthvað nýtt. Maður er nú búinn að sjá margt í því. Sérstaklega eft- lr þennan túr á Ólafi Jóhannessyni. Ég 1T>an nú ekki aflamagnið senr var landað, en það var allavega fullur dallurinn og hann bar mikið, allt umsaltaður fiskur. heir höfðu þann háttinn á þegar verið var að landa, að saltið var slegið af hon- U|n í Esbjerg svo það var ekki mikið salt senr kom með. En ég efast um að við höfum lrirt helminginn af því senr konr innlyrir. Efa það stórlega. Smælkið fór aUt útfyrir. Ég man ekki hvort það var 15 eða 18 tommur sem var talinn mál- fiskur þá. Mun smærra heldur en er í tlng. Þetta var alveg voðalegt helvítis rusl sem við vorum í þarna upp á bökkun- úm. Það þótti sjálfsagt mál að henda þessu. Það var bara kastað á dekkið eins og komst og svo var lagst í aðgerð. Þetta var nú yfirleitt á grunnu vatni fiskað svo eitthvað af þessu hefur kannski sloppið, en því var rutt út rneðan verið að blóðga. -Hvernig var kosturinn um borð? Þetta var helvítis hörmung. Það var orðin lúða með kaffinu. Kosturinn var orðinn ansi rýr. En svo þegar ég kom á Skúla var þetta ntun betra og auðveldara að fá kost og betri kostur en á Ólafi. Ég tek ekki skip fyrr en 1964. Ég held að það hafi verið 1960 setn ég byrjaði með Guðbirni heitnum Jenssyni á Hval- fellinu, en ég man ekki ártöl svo glöggt. Ég tók við því smátíma þegar hann Guð- björn hætti og fór á Sigurð nýja. Eitt sumar vann ég á netaverkstæði. Svo í millitíðinni fer ég að vinna í virkjuninni við Búrfell en fer svo með Hafsteini Guðna á Kristján Valgeir frá Sandgerði. Svo fer ég sem 2. stýrimaður nteð Guð- birni og Birni Jóns á Ásberg RE. Fyrst á netum og síðan á síld. Það var tilbreyt- ing frá togurunum, en einhvern veginn hef ég aldrei fengið nægilegan áhuga fyr- ir þessum bátum. Ég veit ekki af hverju. Á Hallvcigu i ýsu iU ajJöltli Sjómannablaðið Víkingur - 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.