Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Page 30
Hornbjargsvitinn og ibúðarhús þar voru byggð á árunum 1930 - 1931. Par varföst búseta vita- varðar allt frá því að vitinn tók til starfa árið 1930 ogfram til ársins 1995 að nýting sólarorku og aultin sjálfvirkni tœkja gerði kleift að leggja niður búestu á þessum afskekkta stað. Ljósm. Guðmundur Bemódusson. í eigu Siglingastofnunar Islands. honum einkum hafa verið ætlað að fást við vatnsaflsvirkjanir og járnbrautalagn- ingu, en atvikin höguðu því svo til að ís- lensk vitamál urðu aðal viðfangsefni Krabbes og starfsvettvangur um þriggja áratuga skeið. ÖNNUR TÍMAMÓT Á REYKJA- NESI 1907-1908 Fyrsta verkefni Thorvalds Krabbe í vita- byggingum var ekki smátt í sniðum. Hvorki var um meira né minna að tefla en að reisa nýjan vita á Reykjanesi. Reykja- nesið er jarðskjálftasvæði og skjálftarnir höfðu hrist og skekið vitann frá 1878 svo að hann var hrörlegur orðinn og stóð auk þess orðið tæpt þvi allmikið hafði hrunið úr Valahnúknum. Áleit vitavörðurinn að vitinn myndi steypast í sjóinn þá og þegar og neitaði orðið að standa þar vaktir. Danska vitastofnunin hafði nýjan Reykja- nesvita í undirbúningi en var skammt á veg komin svo augljóst var að langt væri í að hægt yrði að hefjast handa. íslenskir ráðamenn máttu ekki til þess hugsa að vitalaust yrði á Reykjanesi og Stjórnarráð íslands fól þeim Krabbe og Frederik Kiorboe arkitekt, sem þá starfaði hér að byggingu Safnahússins við Hverfisgötu, að gera teikningar að nýjum vita. Danska vitastjórnin hafði ráðgert að reistur yrði járngrindaviti á Reykjanesinu en nú báru þeir Krabbe og Kiorboe arkitekt fram til- lögu að vita úr hlöðnum steini og stein- steypu. Hugmyndir þeirra hlutu samþykki Stjómarráðsins og vitinn, sem enn stend- ur, var byggður veturinn 1907-1908 og þótti takast vel í hvívetna. Reykjanesvitinn yngri var mikið mann- virki á íslenskan mælikvarða og er áreið- anlegt að bygging hans jók rnjög sjálfs- traust allra þeirra sem hlut áttu að máli enda hafði með þessari framkvæmd verið sýnt frarn á að íslendingar væra fullfærir um að ráðast í stórvirki af eigin rammleik og leiða þau lil lykta. Þess má geta að danskir tæknimenn sáu um uppsetningu sjálfs vitatækisins, þ.e. linsu og lampa, og bar nokkuð á deilum milli þeirra og Krabbes, sem taldi að hann sem fulltrúi islensku heimastjórnarinnar væri æðsti yf- irmaður verksins, en það áttu Iandar hans erfitt með að viðurkenna og töldu dönsku vitastjórnina hafa forræði yfir íslenskum vitamálum. VITAMÁL í VEXTI OG VITA- KERFI VERÐUR TIL Árið 1907 veitti Alþingi fé til að byggja vita á Siglunesi og nýjan vita á Dalalanga í stað þess sem Otto Wathne hafði látið byggja og var báðum vitunum komið upp sumarið 1908. Brinch vitafræðingur kom frá Danmörku til að setja upp Ijóstækin í þessa vita og það var í síðasta sinn sem danskur tæknimaður setti upp vitatæki hérlendis. Eftir vel heppnuð afskipti sín af bygg- ingu Reykjanesvitans varð Thorvald Krabbe ráðgjafi íslenskra stjórnvalda í vitamálum en gegndi jafnframt ýmsum öðrum ráðgjafa- og tæknislörfum einkum varðandi hafnargerðir og vatnsveitur Hann hafði þó mestan áhuga á vitamálun- um og hvatti til þess að settur yrði sér- stakur umsjónarmaður með öllum vitum landsins, enda yrði ekki hægt að halda vitum og sjómerkjum í viðunandi horfi nema einhver einn aðili væri ábyrgur fyrir verkefninu. Stjórnvöld brugðust við þessum tilmæl- um og var Krabbe skipaður umsjónar- maður með vitum landsins frá og með I. janúar 1910. Eftir að Krabbe kom til starfa á þessum vettvangi fjölgaði mjög vitabyggingum. Þannig voru reistir 19 nýir vitar víðsvegar um landið á árunurn 1908-1918 að báðum meðtöldum. Krabbe fékk fljótlega starfsheitið „landsverkfræð- ingur vitamála" og á fjárlögum ársins 1914 var í fyrsta sinn veitt fé til sérstaks skrifstofuhalds fyrir vitamálin og lands- verkfræðingi vitamála heimilað að ráða sér aðstoðarmann sem varð Guðmundur J. Hlíðdal verkfræðingur. Mátti þá heita að til væri orðin sérstök stofnun er hefði það hlutverk að sinna vitamálunum. Vitastofn- un var svo formlega sett á stofn þegar ís- land varð fullvalda árið 1918 og varð Krabbe þá vitamálastjóri. GAS OG JÁRNGRINDUR VALDA ÞÁTTASKILUM í VITAMÁLUM Olíuljós voru lang algengust í vitum á síðari hluta 19. aldar þegar vitarekstur á hófst á íslandi og fyrstu vitar hér voru all- ir með olíulömpum en um það leyti sem Dalatangi og Siglunesviti voru reistir fóru að berast fregnir af nýrri gerð vitatækja sem áttu eflir að reynast þarfir þjónar á ís- landi og raunar um allan heim. Þetta voru gasvitar frá sænska fyrirtækinu Gasaccumulator í Stokkhólmi. Þetta fyrir- tæki var stofnað árið 1904 í því skyni að hagnýta kolefnisgas og fór fljótlega að gera tilraunir til að nota það til vitaljósa, enda höfðu Svíar mikla þörf fyrir hentuga vita á hina miklu strandlengju landsins. Þessi viðleitni skilaði svo góðum árangri að brátt var farið að fjöldaframleiða vila sem brenndu kolefnisgasi. Vitamálastjóri Dana, H.O. Ravn, varð til þess í lok árs 1907 að vekja athygli Thor- valds Krabbe á þessari nýjung sem hann taldi líkur til að gæti hentað vel við ís- lenskar aðstæður og Krabbe varð fljótt á- hugasamur um gasvitana enda höfðu þeir þann ótvíræða kost að geta logað langtím- um saman án þess að bæla þyrfti á þá eldsneyti og þurftu þeir því langtum minni gæslu en steinolíuvitarnir. Hann hóf að leita sér upplýsinga í Svíþjóð og þóttist fljótt sjá að gasvilarnir myndu bæði reynast ódýrari í rekstri og uppsetn- ingu en steinolíuvitar, jafnvel svo að byggja mælli tvo gasvita fyrir einn steinol- 30 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.