Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 43
ýmsu tagi, fiskeldi, framleiðslu bætiefna, annarri matvælaframleiðslu og mögu- leikar eru til staðar á sviði líftækni, sem geta gefið af sér störf í framtíðinni. Landsbyggðin er í mikilli þörf fyrir öflug iyrirtæki og i sjávarútveginum eru tæki- færi. Ég vil staðhæfa það að besta byggðastefnan er að stækka og efla sjáv- arútvegsfyrirtæki landsmanna því þau munu ávallt byggja starfsemi sína á þeirri aðstöðu, mannafla og auðlindum sem við höfum allt í kringum landið. í þriðja lagi má nefna sífelldar vinnu- deilur í sjávarútvegi sem auka enn á vandann. En það má nefna fleiri atriði. Greinin höfðar því miður ekki nægjanlega til ungs fólks. Það kemur meðal annar fram í því að ásókn í sjávarútvegstengt nám er í eng- um takti við þau tækifæri sem búa í ís- lenskum sjávarútvegi á spennandi ný- sköpun, erlendum verkefnum og mark- aðsselningu. Til að bæta gráu ofan á svart hafa fjár- festar almennt ekki haft mikinn áhuga á greininni. Aðeins eitl sjávarútvegsfyrir- tæki er inni í Úrvalsvísitölu Verðbréfa- þings en hún inniheldur stærstu fyrirtæk- in, þrátt fyrir að sjávarútvegur sé hér und- irstöðuatvinnuvegur. Fyrirtækin er flest of lítil til að velta með hlutabréf sé næg eða til að gott jafnvægi sé í rekstri, en löggjöf meinar þeim að stækka nægilega mikið. Vonandi mun kaup Eimskips á ÚA breyta þessu og þar sem Eimskip er í úrvalsvísi- tölunni er sjávarútvegurinn búinn að eignast nýjan bakhjarl. Frekari samþjöpp- un í greininni mun einnig breyta viðhorf- unt til hennar. Stöðugar deilur hafa verið um starfsvettvanginn og engin trygging er fyrir því að sátt verði sem tryggir stöðug- leika til framtíðar. Almennt hafa sjávarút- vegsfyrirtækin einfaldlega ekki verið í stakk búin til að keppa við suma aðra fjár- festingakosti, en það mun breytast á næstu árutn. En það eru fleiri skýringar á áhugaleysi fjárfesta. Surnir sjá ofsjónum yfir þeim veiðiheimildum sem starfandi aðilar í sjávarútvegi, sem ekki hafa selt veiðiheim- ildir sínar, hafa yfir að ráða. Þeir tala jafn- Iramt um það að núverandi kerfi komi i veg fyrir nýliðun. Þetta skapar óvissu unt að hugsanlega verði eitthvað tekið af þess- um félögum eða lögð verði á þau mjög í- þyngjandi gjöld. Þessi umræða um nýlið- un er tnjög undarleg og virðist einskorð- ast við sjávarútveg en nær ekki til annarra greina. Með sömu rökum mætti setja svipaða vernd fyrir kaupmanninn á horn- inu eða litla tryggingamiðlarann, eða flutningafyrirtækið. Flestir þurfa að fjár- festa til að komast inn á ákveðnar greinar, hvort setn það er í húsnæði, bíl eða skipi, og vandséð er hvers vegna huga þarf rneira að nýliðun í þessari grein en öðr- um. Því skyldi sjávarúlvegur vera eitt- hvað frábrugðinn? Reyndar sá ég í nýlegu blaði untfjöllun um fólk sem hóf starfsemi í útgerð og fiskvinnslu fyrir örfáum árum síðan og hefur keypt allar sínar varanlegu heimildir á markaði. Það lét vel af starfs- greininni og taldi allar forsendur til að ná að vaxa áfram með arðsömum hætti. Sátt er um það að sjávarútvegurinn greiði gjald fyrir afnot af auðlindinni, en deilt hefur verið um útfærslu og fjárhæð- ir. Flestum er þó orðið Ijóst að gæta þarf hófs í gjaldtöku. Það skal heldur enginn vanmeta þann styrk sem atvinnugreinin getur haft af skilvirkum hlutabréfamarkaði en það sent aðallega hamlar í dag er ímynd greinar- innar og stærð fyrirtækjanna. Úr hvoru tveggja er auðvelt að bæta. Það er eftir- sóknarvert að búa þannig um hnútana að sjávarútvegsfyrirtæki verði á ný eftirsóttur fj árfestingarkostur. Mér sýnist afar mikilvægt að menn horfi í eigin barm og velti því fyrir sér hvort við séum á réttri braut í umræðunni og hvort að við höfum raunverulega efni á að halda áfram með sarna hætti. Ég tel að ef við höldum okkur við núverandi kerfi, lögum þá galla sem eru á þvi, stækkum fyrirtæki, leyfum erlent eignarhald og losnum við sérréllindi stéttarfélaga til á- hrifa í þessari grein að þá rnuni hún eiga eftir að vaxa og geti áfram verið burðarás í íslensku atvinnulífi. Umfram allt þarf að losna við átök og þá „skæruliða“ sem hafa verið að reyna að eyðileggja greinina. Lokaorð Hér að framan ræddi ég unt það hvern- ig sjávarútvegsgreinin gæti litið út árið 2020. Spurningin er hvort að þetta sé raunhæft. Ef ég horfi á eigin reynslu og það sem við höfum verið að gera hjá Út- gerðarfélagi Akureyringa þá tcl ég að við eigum mikla möguleika og við viljunt vaxa áfram með arðsömum hætti á næstu árum. Undanfarin ár hefur Útgerðarfélag Ak- ureyringa aukið við starfsemi sína með þátttöku í rekstri á Hóhnavík og Raufar- höfn og þá hefur félagið urn árabil verið með starfsemi á Grenivík. Á öllum þess- um stöðum reyndist erfitt að halda úti smáum fyrirtækjum enda áhætta nokkur í sjávarútvegi sent kemur fram í miklum sveiflum í alkotnu í einstökum greinum. í öllum þessum tilfellum hefur samstarf við heimamenn gengið vel og innkoma félags- ins eflt starfsemi á viðkomandi stöðum. Stór fyrirtæki hafa á allan hátt betri for- sendur til að reka atvinnu á smærri stöð- um en lítil, þau hafa möguleika á því að beita sérhæfingu og sérþekkingu og þau geta tekið þeim sveiflum sem einkenna þessa atvinnugrein. Útgerðarfélag Akureyringa er nú þátt- takandi í tveimur sprotaverkefnum, ann- ars vegar því sent við kölluin gelatínverk- efnið og hins vegar það sem við köllum próteinverkefnið. Gelatínverkefnið gengur útá að framleiða gelatín sem hægt er að selja á hærra verði en venjulegt gelatín, m.a. til lyfjagerðar og er það verkefni unnið með Spánverjum. Próteinverkefnið er unnið með Haraldi Böðvarssyni hf en það gengur úta á að vinna hrein prótein úr loðnu. Þessi verkefni eru auðvitað enn einungis viðskiptahugmyndir og kannski verður ekkert úr þeim en mjór er mikils visir. Að lokum langar mig til að undirstrika það að sjávarútvegur er undirslöðuat- vinnuvegur á íslandi og verður það næstu ár. Þrátt fyrir það þá hefur hann ekki búið við eðlileg rekstrarskilyrði eins og aðrar atvinnugreinar. Dregist hefur að endur- skoða lög og ýmsar hömlur gilda. Sjávarútvegurinn er vanmelin atvinnu- grein. Við þurfum að ná sátt um hann. Það er hægt að efla hann og við eigurn að lyfta honurn á stall. Það er hættulegt að tala alltaf um að finna þurfi einhverjar nýjar greinar og jafnvel veita ríkisábyrgðir svo erlend fyrirtæki gæti komið hér upp áhætturekstri. Sjávarútvegsfyrirtæki geta haldið uppi góðum lífskjörum á ísland og eiga ekki að gefa neitt eftir í því efni. Við eigum ekki að sætta okkur við það að um okkur gildi einhver sér lögmál eins og það að útlendingar megi ekki vera þáttakend- ur í okkar framtíð með eignarhaldi. Jafn- framt eigum við ekki að sætta okkur við það að ríkisvaldið mismuni atvinnugrein- um og fyrirtækjum með þeim hætti sem við erum að upplifa þessa dagana. Við megum ekki gleyma því á hverju við lif- um og hvað geti verið besta byggðastefn- an í íslandi. Við eigum að tryggja það að sjávarútvegur verði áfram í fyrsta sæti og vera stolt af því. mar dling wlth care Stangarhyl 6, Reykjavík, s.: 587 1300 Sýningarbás okkar er H 20 Sjömannablaðið Víkingur - 43

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.