Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Side 45
Nýjungar frá Poly-Ice
Poly Ice á spænskum bátum
Hampiðju samstæðan er leiðandi fram-
leiðandi á veiðafærum í heiminum. Sam-
stæðan er með höfuðstöðvar á íslandi og
dótturfyrirtæki í Noregi, Namibíu, Nýja
Sjálandi, Bandaríkjunum, Portúgal, ír-
landi, Skotlandi, Danmörku og Nýfundna-
landi.
Vörumerki samstæðunnar eru þekkt fyr-
ir afburða árangur í veiðum. Pau helstu
eru; Gloría flottroll, Poly-Ice toghlerar, Dy-
nex kaðlar og Magnet trollnet ásamt Swan
Net og Cosmos flot- og botntrollum.
Á þessari sýningu leggur Hampiðjan á-
herslu á nýjungar í þantrolllsköðlum og
nýjan toghlera til uppsjávarveiða.
Jafn og stöðugur vöxtur er í sölu Poly-
Ice toghlerum Hampiðjunnar. Á síðasta ári
jókst salan um rúm 20% frá fyrra ári og
allt bendir til að sama aukning verði þetta
árið.
Tvær nýjar tegundir Poly-Ice toghlera
hafa komið á markaðinn á síðustu mánuð-
um. Annars vegar Víking botnhlerar og
hins vegar Sputnik flottrollshlerar.
Víking hlerar
Víking hlerarnir eru hannaðir til notk-
unar við erfiðar aðstæður. Þeir eru kraft-
miklir og sterkbyggðir og hafa notið mik-
illar vinsældar hér heima sem erlendis.
Reynslan sýnir að vegna þanhæfni hler-
anna, þá geta skip komist af með allt að
tveim stærðum minni Víking hlera en
eldri tegundir og samt haldið sama hlera-
bili og trollinu opnu. Auk mikils þankrafts
hleranna, þá eru þeir
líka léttir í drætti sem
minnkar viðnám þeirra
og dregur út olíuþörf.
Mörg innlend og er-
lend rækjuskip nota
Víking hlera með mjög
góðurn árangri. Tæp 50
pör hafa verið seld til
innlendra togskipa sem
er gott dæmi um vin-
sældir þeirra.
Víking hlerar henta
einnig mjög vel til
rækjuveiða og mörg
minni skipanna hér
heima eru mjög ánægð
með reynslu af notkun
þeirra vegna stöðug-
leika, léttleika á togi og
í upphífingu.
Rækjutogarinn Pétur Jónsson er í fyrsta
túr með Víking hlera, sem eru 16,5m fer-
metra hlerar að stærð og 6000 kg að
þyngd. Fyrstu viðbrögð eru mjög góð.
Víking hlerar eru einnig mjög vinsælir
erlendis. Bara á Spáni
höfum við selt yfir
100 pör á síðasta einu
og hálfu ári og vin-
sældir þeirra fara sí-
vaxandi með hverjum
mánuði.
Sputnik hlerar
Sputnik hlerarnir
eru ællaðir til upp-
sjávarveiða. Sputnik
er sambland góðra
eiginleika FHS flot-
hleranna og El Caza-
dor hleranna. FHS
hlerarnir eru kraft-
nrestu flottrollshlerar
sem mælst hafa verið
og eru notaðir af yfir
90% þeirra skipa sem
stunda úthafskarfa-
veiðar. El Cazador
hlerarnir hafa gefið
mjög góða raun við
flottrollsveiðar en
mörg pör eru í notkun
í Alsaka og Okotsk-
hafi, flest skipanna í
Gríðarlegt úrval vinnuvettlinga.
MARIGOLD, 66°N VÍNYLGLÓFINN,
SHOWA, PAL og fleiri
viðurkennd merki.
MIÐHRAUN i 1
NORÐUR
535 6600
SÖLUAÐILAR UM LAND ALLT
Chile sem stunda bæði veiðar í flottroll og
botntroll nota E1 Cazador
Tilgangur með Sputnik hleranum er að
ná fram þankrafti FHS hleranna og stöð-
ugleika E1 Cazador hleranna.
Hér heima eru Hákon og Áskell með
Sputnik hlera sem hafa komið mjög vel út
við uppsjávarveiðar.
Síðan fyrst par var afgreitt seinnipart
síðasta árs, þá eru fleiri en 10 pör komin í
notkun, hér heima við uppsjávarveiðar á
síld og loðnu, við Alaska á ufsaveiðar og
við Maurtainiu við veiðar á makríl og sard-
ínu.
El Cazador og Super Foil hlerar
Eldri tegundir Poly-Ice, Ávalir, Concord,
El Cazador og Super Foil seljast enn vel og
þá sérstaklega E1 Cazador og Super Foil.
Á þeirn þrem árum sem El Cazador hafa
verið á markaði hafa á þriðja hundrað para
verið seld. Þeir henla sérlega vel til veiða
það sem botnlag er gott og eru mikið not-
aðir við rækjuveiðar.
Atli Márjósafatsson
deildarstjóri toghlerasviðs
Sjómannablaðið Víkingur - 45