Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 49
Hampiðjan
Þantæknin hefur
sannað sig enn og aftur
Þróun Gloríu trolla Hampiðjunnar er í
fullum gangi og nú er nýr þankaðall
kominn á markað sem margir hafa beðið
eftir, og hefur kaðallinn hlotið nafnið
Hclix. Þessi nýjung i flottrollsköðlum
leysir af hólrni fyrstu kynslóð þankaðla
sem gerðir voru úr tveimur samsnúnum
nylon köðlum. Nýi kaðallinn hefur
niarga kosti umfram þann gainla, helstu
kostirnir eru þeir að nú er búið að koma
þantækninni í einn kaðal í stað tveggja
áður, við þetta myndast meiri þankraftur
og minna viðnám. Þess má geta að nýi
kaðallinn er unnin upp úr Gloríu kaðlin-
unt sem notaður hefur verið til margra
ára í karfatrollum Hampiðjunnar með
góðum árangri en þantækninni hefur
verið komið fyrir í Gloríu kaðlinum.
Seld hafa verið sex Gloríu þantroll
úr Helix kaðlinum í jafnmörg skip hér
við Island til kolmuna síldar og karfa-
veiða. Þessi skip eru Börkur, Hoffell, Þor-
steinn, Bjarni Ólafsson og Faxi, og eru
skipstjórar þessara skipa sammála um að
veiðarfærið skili meiri fiski en önnur
troll, og hafa sérstaklega tekið frarn ágæti
þess hversu létt og meðfærilegt sé að
vinna trollið, opnun mun betri og léttara
í drætti. Einnig er verið að þróa sörnu
tækni fyrir karfaveiðar og hefur Venus
verið að nota nýtt Helix troll seinni hluta
surnars. Vonir eru bundnar við að þessi
tækni muni einnig korna vel út fyrir
karfaveiðar, segir Haraldur Árnason
deildarstjóri trolldeildar Hampiðjunnar.
Nýtt 1280 metra loðnu og síldar-
troll
Á síðustu loðnuvertíð kom Hampiðjan
með nýja gerð af Gloríu trolli, 1280 metra
í ummál með nýrri loðnu útfærslu sem
kom mjög vel út á síðustu verti'ð. Skipin
sem notuðu þessa gerð fyrst voru Bjarni
Ólafsson og Faxi og voru skipstjórar þess-
ara skipa mjög ánægðir með árangurinn,
nánast enginn ánetjun var í belg trollsins
sem var vandamál áður og virkaði trollið
mjög vel í alla staði. Einnig hefur verið
unnið að nýrri gerð poka með þverneti
sem gefur mun betra gegnumstreymi og
er þær tilraunir enn á þróunar stigi.
Öflug vöruþróun
Hampiðjan hefur alltaf leitast við að
gera betur á öllurn sviðum veiðitækninn-
ar og er öflug vöruþróun og náið sam-
starf við notendur veiðarfæranna lykill-
inn af þeirri velgengni sem Hampiðjan
hefur náð á undanförnum áratugum, seg-
ir Haraldur Árnason.
-1 nr oh - mm Lis
Séð inn cftir kaðlaverksmiðju Hampiðjunnar á Bildshöfða. Mynd C1
Sjómannablaðið Víkingur - 49