Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Qupperneq 53
búnaði sem er á mjög samkeppnishæfu
verði. Með því að nota hraðgengari
mótora og fjöldaframleidda gírkassa,
auk hljóðeinangrunar, getum við boðið
mjög hljóðláta en haflrvæma diesel-el-
ectric lausn fyrir allar stærðir skipa og
báta. Þetta á einnig við um vindubún-
aðinn sem NAUST MARINE býður; því
með fjöldaframleiddum gírkössum sem
IBERCISA býður nú einnig upp á, hef-
ur okkur tekist að koma með á mark-
aðinn RAFMAGNS vindur á SAM-
KEPPNISHÆFU verði fyrir allar gerðir
fiskiskipa."
„NAUST MARINE og SKIPASÝN hafa
unnið saman við að draga upp nýjar
línur í skipahönnun og munu fyrirtæk-
in kynna hugmyndir sínar á Sjávarút-
vegssýningunni í september undir hug-
myndarheitinu „WideBody", en þar
hefur hönnun fiskiskipa verið hugsuð
upp á nýtt frá grunni, meðal annars
með tilliti til þess að vélarrúmið þarf
ekki lengur að vera á hinum hefð-
bundna stað, rafstöðvarnar geta til
dæmis allt eins verið fremst i bátnum."
„ELFA-SIEMENS kerfið er heildar-
lausn sem innifelur sjálfvirka stjórnun
rafstöðvanna á hagkvæmasta snúnings-
hraða og getur séð bátnum fyrir 24V
jafnstraum, auk 230V og 380V rið-
straums, einfasa eða þriggja fasa. Kerf-
ið sér því sjálfvirkt um alla orkufram-
leiðsluna um borð og sér utn að dísil-
vélarnar séu keyrðar á hagkvæmasta
mögulega hátt.
Asgeir Erling benti einnig á að þessi
tækni frá ELFA-SIEMENS sem er alveg
ný fyrir notkun í fiskiskipum, sé þó
þaulprófuð tækni sem notuð hafi verið
af viðurkenndustu bílaframleiðendum
heims eins og Mercedes Benz, Iveco
and MAN.
„ELFA-SIEMENS er því í fararbroddi
í framleiðslu dísil-electric búnaðar; all-
ur búnaðurinn er vatnskældur, algör-
lega vatnþéttur IP-65. Hér er því fyrst
og fremst utn það að ræða að flylja
tækni setn er fullprófuð fyrir farartæki
á landi, yfir 1 skip og báta. Þegar menn
átta sig á öllum þeim nýju möguleikum
sem þetta hefur í för tneð sér í bygg-
ingu og fyrirkomulagi um borð í fiski-
bátum, sjá menn að hér er raunveru-
lega um byltingu að ræða.“
„NAUST MARINE hefur einsett sér
að bjóða hagkvæmar dísil-electic lausn-
ir, auk hvers konar rafmagsnvinda og
AUTO-TRAWL búnaðar. Einnig má
benda á að AUTO-GEN kerfið sem
NAUST MARINE hefur nú sett í 17
togara, er í raun ákveðin útfærsla á
dísil-electric kerfi, þar sem afl frá ljósa-
vél er keyrt út á skrúfuásin í gegnum
ásrafalinn til viðbótar afli aðalvélarinn-
ar.“
Nýlega var gengið frá samningi um
sameiningu NAUST MARINE og LOG-
IC, sem einnig mun auka við tæknilega
getu fyrirtækisins og gera NAUST
MARINE kleyft að takast á við verkefni
á leiri sviðum og syrkja einnig útfluln-
ingsstarfsemi fyrirtækisins.
„Sjálfvirkari, hljóðlátari og spar-
neytnari fiskiskip, er markmið okkar
með samstarfinu við SKIPASÝN, og
miðað við þau viðbrögð sem við höfum
þegar fengið frá útgerðum víða um
land, teljum við að við séutn á réttri
leið,“ sagði Ásgeir Erling Gunnarsson
að lokum.
VATNAJÖKULL
-
eiðafjörður
reduwk Laugavæn
112
SLYSnVflRNnFElflGIÐ
LRNDSBJÖRG
NEYÐARSIMI
VIÐBRAGÐTIMI BJORGUNARSKIPA
Sjómannablaðið Víkingur - 53